Page 1 of 7

E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 20:45
by Villijóns
Jæja þá er hægt að segja að maður sé hole again. Þennann átti ég fyrir 3 árum, sökum lítins áhuga var hann seldur óþarflega snemma en nú er öldin önnur , Keyptann aftur og nú for good. Hef ætíð séð eftir honum, hlakka til að fara að vinna í honum og gera hann fínann aftur

Image

Náði í hann á föstudaginn síðastliðinn , ekkert voðalega fallegur að sjá en hann leyndi á sér undir öskunni og 3 ára daprar meðferðar . þreif hann ögn og komst að því að ryðlaus er hann að mest öllu leiti nema smá yfirborðsryð neðst í falsinu á afturhurð hægra meginn, fyrri eignanda tókst að skemma á honum M5 stuðarann að framan og toppaði málið með að henda honum og setja venjulegan e34 stuðara í staðinn. EF einhver á svona M stuðara þá langar mig í hann. Vél er í fínu standi malar fínt og skilar sýnu . gírkassi er ágætur og drif í lagi .

Nú bara að laga hann örlítið til og dekra slatta við hann og sjá svo hvort hann nær ekki fyrri hæðum .

mun að sjálfsögðu leyfa ykkur að fylgjast með fyrir og eftir myndum þegar ég byrja á þessu .

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 20:48
by Einarsss
Virkilega flottur 8) Er hann ennþá á þessum felgum?

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 20:56
by Villijóns
já hann er bara svona í dag fyrir utan stuðarann að framan , dauðvantar slíkan by the way , felgurnar eru reyndar ekki alveg eins fallegar, aðeins farið að sjá á lippunum á felgunum samt ekki kantaðar. það stendur til bóta þegar ég kem frá noregi aftur , beint til Jón mar frænda í andlega yfirhalningu.

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 22:42
by Raggi M5
æðislegir bílar! gaman að sjá ef þeir lenda í góðum höndum því þetta er orðið RARE hérna núna... 8)

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:02
by Villijóns
það verður farið mjúkum höndum um hann á næstunni.

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:08
by JOGA
Til hamingju með bílinn.

///M er toppurinn :)

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:51
by Alpina
JOGA wrote:Til hamingju með bílinn.


ALPINA er toppurinn :) :thup: :thup:


:lol:




ps.. til lukku með bílinn,, og velkominn í þröngann hóp eigenda handsmíðaðra farartækja = TEAM BE

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:53
by jon mar
alltaf dásamlegt þetta handsmíðaða blaður :lol:

Annars til hamingju með bílinn frændi, hlakka til að skrúfa í honum.

Re: E34 M5

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:54
by JOGA
Alpina wrote:
JOGA wrote:Til hamingju með bílinn.


BMW er toppurinn :) :thup: :thup:


:lol:

ps.. til lukku með bílinn,, og velkominn í hóp þröngsýnna eigenda handsmíðaðra farartækja = TEAM ME


:mrgreen:

Re: E34 M5

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 00:00
by jon mar
annars þurfti hann ekkert að versla sér M5 til að vera team be fyrir allann peninginn. Þið ættuð bara að sjá fornbílinn sem hann er með í skúrnum hjá sér. 1968 Ford Torino GT með 351w strókuðum í 418 og stútfullur af motorsælgæti. Án alls vafa aflmesti bíll sem ég hef setið í, og mun líklega nokkurtíman sitja í.

Re: E34 M5

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 12:45
by apollo
Til hamingju með þennan :thup:

Re: E34 M5

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 13:46
by tinni77
Til hamingju, fallegur bíll :thup:

Re: E34 M5

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 13:53
by Mazi!
þessi var bara geðveikur þegar Atli átti hann, leiðinlegt hvernig hefur farið fyrir honum undanfarin ár en þú gerir hann góðann 8)

Re: E34 M5

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 16:07
by lacoste
Stendur þessi uppí Leifstöð?

Er að vinna þar og sá að ég held þennan í stæði þarna.

Re: E34 M5

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 16:54
by Geir-H
Villi djöfull haha, ég var búinn að vera að tala við gaurinn sem að átti hann og ætlaði mér að kaupa hann fyrir viku síðann en það var gaur sem að bailaði á því að kaupa 530, þannig að það var ekkert úr því hjá mér að kaupa þennan en til hamingju