bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW Mini Cooper 12/2002
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=45298
Page 1 of 9

Author:  fart [ Sun 13. Jun 2010 15:24 ]
Post subject:  BMW Mini Cooper 12/2002

"Nýji" bíllinn.

Helvíti gaman að keyra þetta 8)

S.s. 116ps Cooper version, alveg orginal. Hálfleður og Harmon Kardon með iPod interface, 16" felgur og lítið annað auka.

Image

Image

Image

Image

Image

Kanski á þetta frekar heima í Off-topic, þá færir þetta einhver admin.

Author:  Alpina [ Sun 13. Jun 2010 18:49 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

:thup: :thup:

Aldrei keyrt svona MINI ,, skilst að það sé helv,,, gaman 8)

Author:  bimmer [ Sun 13. Jun 2010 18:54 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Ætla menn þá að hætta að rúlla í 4ra punkta belti í vinnuna?

Author:  fart [ Sun 13. Jun 2010 20:19 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

bimmer wrote:
Ætla menn þá að hætta að rúlla í 4ra punkta belti í vinnuna?


Hugsa það, enda rúnturinn líklega ekki það besta fyrir byggðan mótor, 2km-4km og 7km.. varla að draslið nái að hitna.

Author:  ///M [ Sun 13. Jun 2010 21:54 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Keyrði svona 2008 cooper slatta í usa og þetta eru frábærir dailíar

Author:  JOGA [ Sun 13. Jun 2010 22:01 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Þetta lítur út eins og nýtt :)
Til hamingju með þetta. Flott að eiga svona með úber-græjunni.

Author:  fart [ Mon 14. Jun 2010 08:22 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Ég setti leirinn á hann, eina létta umferð af fínum massa (með vél), wolfgang paint sealant og svo bón, og hann lítur bara hrikalega vel út eftir þessa meðferð. Næst er interior treatment.

En já, þetta er fínt, nú er ágætis úrval á heimilinu.

Mini Cooper í snattið (og fyrir barnapíuna)
Mercedes Viano (daily fyrir konuna og í ferðalögin, 8seater :lol: )
BMW M3GT í spariaksturinn og hasar á braut.

Author:  gunnar [ Mon 14. Jun 2010 09:54 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Flottur :thup:

Author:  Bannsettur [ Mon 14. Jun 2010 21:34 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Alpina wrote:
:thup: :thup:

Aldrei keyrt svona MINI ,, skilst að það sé helv,,, gaman 8)


Það er gaman, meira að segja mjög gaman.

Author:  HAMAR [ Mon 21. Jun 2010 09:15 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Fart, þú ert helv.... töffari 8) Flottur floti á heimilinu :thup:

Author:  Alpina [ Mon 21. Jun 2010 09:37 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Cool númer MC---------->> mini cooper 8)

Author:  Thrullerinn [ Mon 21. Jun 2010 12:38 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Einn af mínum uppáhalds bílum.

Vel heppnuð endurgerð af gamla miniunum.

Author:  fart [ Tue 10. Aug 2010 09:09 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Early Mini Cooper eru með gírkassa frá Midland, sem er líklega eitt mesta POS sem nokkur maður gæti hugsa sér að setja í high end bíl (mini frekar dýr bíll miðað við stærð).

Þegar ég kom til Frankfurt að sækja þennan heyrði ég strax að það var eitthvað virkilega bilað í gírkassanum, líklega legur farnar. Þá var tekið til við að semja og ég endaði á því að fá €700 í discount út af þessu, eða total tæplega €1000 í discount af €7000 bíl.
Ég var búinn að kynna mér að það væri hægt að fá uppgerðan Midland swap kassa frá UK fyrir c.a. 400-500 Euro ef maður skilaði þeim bilaða. Svo fann ég einn kassa til sölu á ebay og keypti. Planið var að smella honum í, og dunda sér svo við að skipta um legur í bilaða kassanum og selja svo, eða selja hann bilaðan.

Anyway.. brettið kemur með kassanum á og eftir smá skoðun (blasti við) sá ég GETRAG á kassanum... s.s. ég hafið óvart fengið Getrag 6 speed úr 2004 Cooper S. Þá kom upp issue, senda til baka og fá Midland eða vaða í Getrag Swap sem er að verða mjög vinsælt enda Getraginn alveg bulletproof dæmi, en Midlands geta hrunið hvenær sem er og hafa stuttann líftíma.

Anyawy.. er búinn að verða mér úti um allt dótið sem þarf í swappið s.s. Cooper S flywheel, kúplingu, slave, startara og gírkassa/mótorfestingu og svo allskonar smádót. Swappið í heild kemur til með að kosta rétt undir € 1000 sem er að mínu mati vel sloppið fyrir þetta öppgreid. Þá er reyndar ótalið það sem ég fæ fyrir gamla gramsið á Ebay, en vonandi næ ég einhverjum hundruðum Euro til baka.

Swappið ætla ég að gera sjálfur, enda er alveg frábært write up á netinu: http://www.txwerks.com/images/Install_D ... k_Link.pdf

Áætlaður tími í þetta eru 10 tímar.. það verður gaman að sjá hvaða margföldunarstuðul ég þarf á það :lol:

Author:  slapi [ Tue 10. Aug 2010 09:47 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

Ég hef gert þetta tvisvar , þar af einu sinni á gólfi.
Þetta er mjög lítið mál og ef menn hafa eitthvað skrúfað er þetta hæglega gert á 8 tímum.
Þægilegt hvernig bitinn kemur undan með öllu líka , bara losa út í hjólunum.

Author:  fart [ Tue 10. Aug 2010 09:52 ]
Post subject:  Re: BMW Mini Cooper 12/2002

slapi wrote:
Ég hef gert þetta tvisvar , þar af einu sinni á gólfi.
Þetta er mjög lítið mál og ef menn hafa eitthvað skrúfað er þetta hæglega gert á 8 tímum.
Þægilegt hvernig bitinn kemur undan með öllu líka , bara losa út í hjólunum.


Cool, ég er nett stressaður yfir þessu, kanski líka að því að ég stend í þessu einn.

Page 1 of 9 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/