Page 1 of 2

E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 15:19
by Geysir
Jæja fjárfesti aftur í BMW.

Búinn að fylgjast með nokkrum en ekki haft pening í höndunum til að kaupa en núna voru peningarnir til.

Sá að Skúli auglýsti þennann til sölu og ákvað að stökkva á hann. Hafði samband við þennann öðling og renndi svo á hann á Laugardaginn og gengið var frá kaupum sama dag. Bíllinn keyrður í bæinn og fann ekki fyrir því þrátt fyrir að staðið í þónokkurn tíma hjá Skúla.

Gripurinn sem um ræðir er BMW E28 520iA.
Liturinn sem prýðir fákinn er AlpinWeiss
Vélin er M20B20, gríðarlega heill og þéttur mótor. Kemur skemmtilega á óvart enda búið að hugsa mjög vel um þennann bíl. Fylgir með góð þjónustubók, smurbók og fullt full af nótum frá BogL, TB og fleiri verkstæðum.
Biluð sjálfskipting er í bílnum en önnur fylgdi með sem ég ætla að skipta um í næstu viku.
Krókur er á bílnum.

Skúli var búinn að skipta um bremsur að framan, setti í hann dælur og diska úr E32 730.
Ásamt því var hann búinn að fara yfir ýmsa hluti í honum.

Hann er á ósamstæðum felgum, 15" felgum að framan og 14" að aftan. Það komast ekki minni felgur á að framan útaf bremsunum.


Innréttingin er FÁRÁNLEGA heil í þessum bíl, mætti halda að það hafi varla verið setið í bílnum.
Verður mjög flott þegar búið verður að þrífa hana vel.

Set hérna inn myndir af gripnum. Tek betri myndir þegar bíllinn verður þrifinn, bónaður og tekinn í gegn að innan.
Image

Image

Image

Rykug en heil.
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 15:30
by srr
Til hamingju Atli....

Ég veit að þú átt eftir að gera hann enn betri :thup:

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 15:36
by Einarsss
Til hamingju með hann E28 eru bara svalir bílar, dauðlangar í svoleiðis og stefna á svona look

Image

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 15:37
by srr
Og já, það er BANNAÐ að henda honum :!: :lol:

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 16:45
by Fatandre
Fock hvað hann er illa farinn miða við 120 þús km

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 16:50
by gardara
Fatandre wrote:Fock hvað hann er illa farinn miða við 120 þús km


Árgerðin hefur nú oft meira að segja en kílómetrastaðan :lol:
Sérstaklega varðandi ryð...

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 17:15
by bimmer
Verður ekki algjört hell að stoppa allt þetta ryð?????

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 17:22
by Alpina
bimmer wrote:Verður ekki algjört hell að stoppa allt þetta ryð?????


Góð spurning

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 18:46
by gulli
Til lukku með gripinn :thup: Flottir bílar þetta E28 8)

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 19:20
by srr
Alpina wrote:
bimmer wrote:Verður ekki algjört hell að stoppa allt þetta ryð?????


Góð spurning

Held að þið séuð nú aðeins að vanmeta ástand bílsins.
Þetta er yfirboðsryð sem hefur verið reynt að gera við en er að koma í gegn aftur sökum ónægrar undirvinnu.
Nota bene, það er áður en ég fæ bílinn sem þetta var gert.

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 20:08
by Geysir
srr wrote:
Alpina wrote:
bimmer wrote:Verður ekki algjört hell að stoppa allt þetta ryð?????


Góð spurning

Held að þið séuð nú aðeins að vanmeta ástand bílsins.
Þetta er yfirboðsryð sem hefur verið reynt að gera við en er að koma í gegn aftur sökum ónægrar undirvinnu.
Nota bene, það er áður en ég fæ bílinn sem þetta var gert.


Virðist ekki vera mjög alvarlegt, allavega séð það verra.

Versti staðurinn er afturgaflinn, en Skúli lætur annann fylgja með og verður gert við það við tækifæri.

Síðan verður dundað við það að fara yfir ryð í bílnum og reynt að gera við það að bestu getu.
Ekki það að ég ætli að koma með miklar yfirlýsingar en draumurinn væri að láta sprauta bílinn.

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 21:30
by bimmer
Ok, vonandi verður easy að laga þetta og hann verði bling bling.

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 21:34
by kalli*
Geysir wrote:Image


120 þúsund :shock: Mjög heilegur, farðu vel með hann 8)

Heitir annars þessi maður nokkuð Bjarni ?

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 21:35
by ///M
Frekar þreytt boddyið útlitslega séð.. en ekki slæmt burðarlega myndi ég halda (fyrir utan gaflinn).

Klárlega hægt að "bjarga" honum og stoppa ryð en það á öruglega eftir að kosta dálítið að ná honum góðum - útlitslega.

Re: E28 520iA 1987 - ekinn 120 þús.

PostPosted: Sun 07. Mar 2010 21:36
by tinni77
Vonandi að það rætist úr þessum bíl hjá þér, til hamingju með gripinn ;)