Jæja, datt í vitleysuna á fimmtudaginn og fjárfesti í E30. Þetta er fyrrum 316 bíll sem
Hallsson Enterprise umbreytti í 325 fyrir einhverjum árum. Hvar hann hefur verið frá þeim tíma þekki ég ekki, en bíllinn virðist hafa staðið einhvern tíma og ber þessi merki. Bílstjórahurðin er orðin doppótt af ryði og toppurinn aðeins farinn að láta á sjá. Hann er ekinn í dag um 164þús km.
Það sem stendur til að gera með hann núna á næstunni er að taka bremsur í gegn, þær eru orðnar frekar slappar, og svo ætla ég til öryggis að skipta um tímareim. Svo bletta ég eflaust í það ryð sem er komið í hann svona til að hemja það. Svo er það bara skoðun og mæta út á braut að prófa mig áfram á honum.
Og hér eru nokkrar myndir eftir að ég kom með gripinn heim í gærkvöldi:




