Page 1 of 3

BMW e34 525ia 1993 nýjar myndir - Fæðingarvottorð komið.

PostPosted: Sun 02. Aug 2009 23:31
by Vlad
Jæja festi kaup á þessum fyrir um það bil 2 mánuðum, eitthvað þurfti að lappa upp á smá í bílnum og er verið að vinna í því.

En bíllinn er með m50b25 vél sem er ekinn um 268100 og gengur bara virkilega fínt.
Bíllinn er sjálfskiptur

Helstu aukahlutir:

Leðursæti
Rafdrifnar rúður
Glær stefnuljós að framan ( voru að aftan líka en þau voru ónýt svo núna eru appelsínugul)
15" dekk á stock felgum að ég held.
Eitthvað fleira sem ég er að gleyma líklegast.


Það sem ég hef gert við bílinn eftir ég fékk hann er að mála sílsana aftur voru orðnir mög upplitaðir og ljótir auk þess var settur glænýr vatnskassi í sem og ný afturljós, þá hafði fyrri eigandi verið nýbúinn að skipta um bremsdiska og ballansstöng.

Næst á dagskrá er að setja einhverjar flottar 17 " felgur undir hann svo ef einhver lumar á fínum felgum með dekkjum má sá hinn sami endilega láta mig vita. :)

Það sem að hrjáir bílinn núna er að handbremsan er slök sem og lekur hann einhverri olíu en það þarf bara að herða eitthvað sem ég hef ekki ennþá nennt að koma mér í að gera sem og þarf eitthvað að huga að ryði á skottinu.

Læt bara myndirnar tala sínu máli.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

:)

Re: BMW e34 525ia 1993

PostPosted: Sun 02. Aug 2009 23:33
by birkire
Flottur ! Geggjaður að innan

Re: BMW e34 525ia 1993

PostPosted: Sun 02. Aug 2009 23:41
by Vlad
Þakka það, vantar bara mottusett innan í hann. :)

Re: BMW e34 525ia 1993

PostPosted: Sun 02. Aug 2009 23:49
by Aron Fridrik
flottur bíll.. framsætin lúkka mjög mjúk :)

Re: BMW e34 525ia 1993

PostPosted: Mon 03. Aug 2009 00:42
by Róbert-BMW
flottur hjá þér, búin að sjá hann á ferðini á selfossi soldið...

Re: BMW e34 525ia 1993

PostPosted: Mon 03. Aug 2009 14:33
by ömmudriver
Til hamingju með sjálfrennireiðina!

Þessi snarlúkkaði á Rondell 58 hér í denn og svo mætti Sæma afturljósin, þá erum við sko að tala saman :)

Re: BMW e34 525ia 1993

PostPosted: Fri 25. Sep 2009 16:54
by Vlad
Jæja smá update, fékk endurskoðun á hann um miðjan ágúst út á frekar marga hluti en nú hefur það verið lagað og fékk bíllinn athugasemdalausa skoðun rétt í þessu :D

Það sem var helst að var mengunin en þá var bara skipt um hljóðkút [æðislegt hljóð í bílnum núna] sem og loftflæðisskynjara einnig var skipt um spindla og bremsuslöngur að framan sem og strekkt vel á handbremsunni og ýmsir fleiri smáhlutir.

Svo eins og ég segi þá gæti ég ekki verið meira ánægðari að þetta er LOKSINS allt komið í gegn en kostaði þó sitt sem er bara partur af þessu. :santa:

Btw ef einhver á þennan hlut fyrir miðstöðina má sá hinn sami endilega láta mig vita.

Image

:)

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Sat 09. Jan 2010 09:22
by Vlad
Jæja þá er maður farin að gæla við einhverjar breytingar fyrir sumarið... Efst á planinu eru náttúrulega fallegar 17" felgur, einhverjar hugmyndir?

Sem og hef ég verið að gæla við það að surta nýrun en ég er á báðum áttum með það... svo það væri fínt að fá álit á því :)

Einnig mun ég fara að ráðast í að taka burtu stærsta ryðið og mála þar yfir, mun reyna að koma með einhverjar myndir af því ferli.

+ það að gott væri að fá að vita eitthvað um sögu þessa bíls ef einhver veit.

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Sat 09. Jan 2010 16:25
by Daniel 325
Myndir af bílnum sumarið 2007 á 17'' Rondell 58 og með afturljósunum sem að ég keypti á hann.
Ég færi aldrei út í það að surta á honum nýrun, ég reif af honum slík nýru og setti krómuð aftur,allt annað að sjá bílinn eftir þá breytingu.

Image
Image
Image

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Sat 09. Jan 2010 20:17
by Vlad
Já ég sakna helst hvítu stefnuljósanna en þar sem það hafði bráðnað úr perustæðinu þá komst ekki peran í lengur... frekar súrt. :thdown:

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Sat 09. Jan 2010 20:20
by Alpina
Jeeeeesssssss

Þetta er alveg í lagi 8) 8)

Image

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Sat 16. Jan 2010 21:51
by Mr. P
Alpina wrote:Jeeeeesssssss

Þetta er alveg í lagi 8) 8)

Image




AhhH ! þeir voru góðir þarna ! .. vá hvað ég sakna þess að keyra hann (rauða)

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Sun 17. Jan 2010 13:32
by íbbi_
ewr þessi rauði enn til?

þessi 525 er flottur, gaman að sjá hann líka, skoðaði þennan bíl einhverntíman þegar bmw dellan var að byrja, og þá var þetta svo flott að maður átti varla orð

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Sun 17. Jan 2010 22:55
by Mr. P
íbbi_ wrote:ewr þessi rauði enn til?

þessi 525 er flottur, gaman að sjá hann líka, skoðaði þennan bíl einhverntíman þegar bmw dellan var að byrja, og þá var þetta svo flott að maður átti varla orð



Jájá, þessi rauði er enn mínum höndum og bíður bara betri tíma i geymslu.

Re: BMW e34 525ia 1993 [smá update]

PostPosted: Mon 18. Jan 2010 02:32
by Haffi
Nei nei, gamli minn 8) Flott að sjá að hann sé enn á lífi og sé í góðum höndum :thup: