bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW Z3 '96. M52B28 Swapped, "litli"
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=36251
Page 4 of 13

Author:  Zed III [ Wed 27. May 2009 15:21 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

doddi1 wrote:
fáðu þér bara ný framljós, það er mjög flott upgrade, xenon+angeleyes...

svo verðum við að hafa z3 myndatöku einhvern tímann í sumar :D


Image



Það væri nú gaman að hafa Z3 dag með myndatöku eftir stíft bón session.

Author:  Zed III [ Fri 29. May 2009 21:30 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Smá update á mælaborðið.

Kominn með nýja klukku og olíuhitamæli (reyndar ótengdur) ásamt því að færa takkana sem stýra hitanum í sætunum.

Nett breyting

Fyrir:
Image

Eftir
Image

Image

Author:  Axel Jóhann [ Fri 29. May 2009 21:43 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Svalt. 8)

Author:  gunnar [ Fri 29. May 2009 22:01 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Kemur mjög vel út :thup:

Author:  demi [ Fri 29. May 2009 22:13 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

flott með mælana en gírhnúðurinn er ekki flottur IMO

Author:  Zed III [ Fri 29. May 2009 22:34 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

demi wrote:
flott með mælana en gírhnúðurinn er ekki flottur IMO


ekki sá flottasti og sama á við með handbremsuna, en þessi hnúður er mega þægilegur með gúmmíinu sem er á honum

Author:  Róbert-BMW [ Sat 30. May 2009 17:40 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Mikið flottari en hvernig þetta var... :thup:

Author:  Papa.V [ Tue 02. Jun 2009 19:28 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

skuggalega svalur hjá þer, félagi ;)

Author:  Zed III [ Sun 27. Sep 2009 12:43 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

jæja, skellti inn nýjum gírhnúð og nýu handbremsu handfangi.

Image

Setti einnig læst drif (með viscous læsingu) í en á eftir að setja á spóldekkin og prófa það alemnnilega. Verður vonandi gott þegar það kemur hálka.

Author:  Mazi! [ Sun 27. Sep 2009 13:05 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

þetta lúkkar bara vel hjá þér 8)



hvernig handbremsu handfang er þetta ?

Author:  A.H. [ Sun 27. Sep 2009 15:37 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Glæsilegar breytingar :!:

Nú hef ég ekkert vit á svona olíuþrýstingsmælum, er mikið mál að tengja olíuþrýstingsmælinn?

Author:  doddi1 [ Sun 27. Sep 2009 15:59 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

hvar fékkstu þessa krómhringi?

Author:  Zed III [ Sun 27. Sep 2009 16:37 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Mazi! wrote:
þetta lúkkar bara vel hjá þér 8)

hvernig handbremsu handfang er þetta ?


Þeir áttu þetta fyrir mig í TB, mjög gott handfang.


A.H. wrote:
Glæsilegar breytingar :!:

Nú hef ég ekkert vit á svona olíuþrýstingsmælum, er mikið mál að tengja olíuþrýstingsmælinn?


Þetta er olíuhitamælir sem ég þarf að tengja og það eru amk tvær leiðir til að tengja hann. Annarsvegar bora hann í pönnuna eða olíuhúsið og svo er hægt að fá svokallað oil distrubution unit sem er nokkurskonar fjöltengi sem má skúfa þar sem olíumælirinn er staðsettur. Ég hef ekki fundið rétta unitið og ég hef ekki látið vaða að bora í pönnuna, en þetta er á listanum.

doddi1 wrote:
hvar fékkstu þessa krómhringi?


ebay, þetta er bara límt á en ég er að fíla þetta.

Author:  Zed III [ Tue 13. Oct 2009 14:04 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Ég vaknaði í morgun og ætlaði í gymið fyrir vinnu. Röllti út í skúr og á leiðinni heyrði ég svona hissing hljóð og skildi ekki hvaðan þetta var að koma.

Opnaði skúrinn og sá að það hafði sprungið garðslanga út af þrýsting og vatn sprautaðist út um gatið. Ekki kannski stórmál fyrir utan að hurðin var opinn og vatn í nánast upp að hurðastaf bílstjóramegin.

Ég sleppti því að fara í gymmið og í staðinn þurfti ég að fara að ausa úr bílnum eins og lekum bát. Náði megninu með ausu, svamp og þerraði svo slatta meira með handklæðum.

Task fyrir kvöldið: sækja vatnssugu til að ná meiri bleytu úr teppinu og svo verður ráðist á að taka það úr til að þerra það.

Áhugaverð byrjun á deginum, svo ekki sé meira sagt.

Author:  arnibjorn [ Tue 13. Oct 2009 14:05 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Ömm... repost? :lol:

Page 4 of 13 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/