bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW Z3 '96. M52B28 Swapped, "litli"
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=36251
Page 3 of 13

Author:  gunnar [ Sat 11. Apr 2009 20:28 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Ég var einmitt að pæla í því hvað myndi gera mikið fyrir bílinn að hafa OO stúta.

Author:  Zed III [ Sat 11. Apr 2009 20:38 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Ég verð að viðurkenna að ég var dálítið mikill noob þegar pústið var sett undir. Hef enn í dag ekki hugmynd hvort þetta sé að passa vel fyrir vélina. Spurning að fá menn til að taka þetta almennilega út og koma með tillögur um úrbætur (ekki samt túrbó).

Fagna annars svona kommentum, allt sem hjálpar manni að bæta þetta.

Author:  bjornra [ Sun 12. Apr 2009 01:13 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Bíllinn er orðinn glæsilegur hjá þér, til hamingju með það. Ég er nýbúinn að taka minn úr geymslu og er að byrja að sjæna hann til. Ég keypti í hann hvít stefnuljós og er að taka gula ljósið úr aðalljósunum ásamt því að slípa þau og gera eins og ný. Ég keypti líka í hann nýja afturrúðu en hún var orðin mjög ljót. Bremsudiskarnir eru orðnir ljótir hjá mér, hvar er besta verðið á nýjum diskum?

Svona var bílinn á felgunum þínum :D
Image

Ég valdi að færa hann meira í orginal útlit og hafði þennan til fyrirmyndar.
Image

Hér er hann kominn á felgurnar.
Image

Author:  Zed III [ Sun 12. Apr 2009 09:36 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Hann verður þrusu flottur á götunni hjá þér í sumar. Hvað ætli það séu margir z3 bílar hérna á landi?

Ég keypti diskana hjá TB, með kraftafslætti eru veðin fín hjá þeim. Fálkinn er líka með góð verð.

Hvernig ert þú að slípa ljósin ? Ég reif þetta gula úr mínum en þau mega vel við því að vera slípuð, það truflar mig að þau séu svolítið mött.

Ég fór annars í eins rúðu og þú, þ.e. frá Emiata. það var ekki mikið mál að koma henni fyrir en alveg nauðsynlegt að hafa auka hendur til aðstoðar þar sem það þarf að sauma nokkur spor. Þetta tekur ekki nema klukkutíma að skella þessu í.

Author:  Saxi [ Sun 12. Apr 2009 09:42 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Prufaðu að leita að restore headlights eða headlight polishing á youtube. Nokkur góð video þar sem þetta er útskýrt.

Author:  Zed III [ Sun 12. Apr 2009 10:03 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

holy fúkk, þetta er snilld.

http://www.youtube.com/watch?v=kBTXr4vy3Ag
http://www.youtube.com/watch?v=qGMBGQUMtOo&feature=related

og ég á allt til að geta fylgt þessum

http://www.youtube.com/watch?v=bZi6z88lAuE&feature=related

Þetta er semsagt bara sandpappír og svo plastic restore efni.

Author:  JOGA [ Sun 12. Apr 2009 13:25 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Ég gerði svona við E39 sem ég átti.
Notaði nokkra grófleika af sandpappír og svo bara venjulegan massa. Bónaði svo yfir að þessu loknu. Ekki flókin aðgerð.
Tók nokkrar myndir:
Fyrir:
Image
Image

Eftir:
Image
Image

Author:  BirkirB [ Sun 12. Apr 2009 14:49 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Þetta er samt plast en ekki gler?

Author:  Zed III [ Sun 12. Apr 2009 15:36 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Glæsilegt JOGA,

Það er amk plast hjá mér svo nú er komið eitt mini project í viðbót á listan.

Author:  ///M [ Sun 12. Apr 2009 16:15 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Viss um að það sé ekki gler?

Author:  Zed III [ Sun 12. Apr 2009 16:32 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

nokkuð viss, svona 99,5% öruggur. Tékka á því áður en ég byrja.

Það sem er að trufla mig eru upplituð ský frekar en mikill barningur. Ég held að ský komi ekki á glerið.

Author:  ///MR HUNG [ Sun 12. Apr 2009 20:16 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Þetta eru plastljós.

Author:  A.H. [ Mon 13. Apr 2009 12:29 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Skemmtilegt að skoða þetta verkefni hjá þér.

Þú mátt gjarnan post-a fleiri myndum, t.d. af því þegar þú settir veltibogana í bílinn. Hef verið að pæla í að fara út í svipaða aðgerð sjálfur á mínum bíl.

Varðandi framljósin, fær maður svona plastic restore efni í búðum hér á landi eða þarf að panta þetta sérstaklega erlendis frá?

Author:  Zed III [ Mon 13. Apr 2009 14:20 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

Ég skal grafa upp myndir af veltuboga-stuntinu og taka nýjar ef ég finn þær ekki. Þetta var eðal diy aðgerð með mjög litlum tilkostnaði, en að gera þetta samkvæmt bókinni er mjög dýrt. Þetta varð nú auðvitað ekki fullkomið en lokkar mjög vel nema maður grandskoði vinnubrögðin. Reyndar var því nú haldið fram að það væri ekki ekki hægt að setja svona boga í 96 bílana en það er búið að afsanna þá kenningu.

Varðandi efnin til að taka plastið í gegn þá keypti ég mitt í málningarvörum. Ég keypti þetta reyndar til að taka afturrúðuna mína í gegn og þetta virkaði vel á það.
Hér er linkur á plastefnið

Author:  doddi1 [ Wed 27. May 2009 15:11 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '96. M50B25 Swapped

fáðu þér bara ný framljós, það er mjög flott upgrade, xenon+angeleyes...

svo verðum við að hafa z3 myndatöku einhvern tímann í sumar :D


Image

Page 3 of 13 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/