bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

730 E32
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=35932
Page 1 of 1

Author:  Brauður [ Mon 23. Mar 2009 17:37 ]
Post subject:  730 E32

Góðan daginn, ég var að eignast minn fyrsta BMW og er ég bara sáttur 8) mér áskotnaðist þetta líka fína eintak af 730 e32 92 árg, þetta er án efa þægilegasti bíll sem ég hef nokkurntíman keyrt. Krafturinn er reyndar ekkert til að fara þrefaldan kollhnís yfir en hann er samt alveg nóg fyrir svona flugmóðurskip. Eins og mátti búast við af 17 ára bíl sem er keyrður 256þúss kílómetra þá gengur hann eitthvað skrítið, þannig að ég dreif mig með hann í Ingvar Helguson og lét lesa af tölvunu og kom í ljós að það þarf að skifta um súrefnisskynjara, þannig að ég brunaði síðan í N1 og verslaði hann og keyfti líka bremsuklossa í leiðini, sem ætti að vera laungu búið að skifta um. En hérna eru nokkrar myndir sem ég tók áðann til að sína aðeins hvaða bíll þetta er. Njótið :wink:

Image

Image

Image
Hurðarlistin er í skottinu, ég á bara eftir að kaupa nýjar festingar fyrir hann.

Image

Image
ég elska innréttinguna í þessum bíl 8)

Image

Ef það langar einhverjum kunnáttu manni að eignast smá auka pening fyrir að skifta um bremsuklossa og súrefnisskinjara þá má sá maður endilega hafa samband, langar að láta laga þetta sem fyrst :!:

Author:  ingo_GT [ Mon 23. Mar 2009 17:42 ]
Post subject:  Re: 730 E32

Þessi lokkar heillegur

Farðu vel með hann 8)

Author:  sh4rk [ Mon 23. Mar 2009 17:44 ]
Post subject:  Re: 730 E32

flottur þessi hjá þér en ef að þú kemst einhversstaðar inn þá er ekkert mál að redda þessu fyrir þig

Author:  Angelic0- [ Mon 23. Mar 2009 17:51 ]
Post subject:  Re: 730 E32

Flottur, þessi fékk gott viðhald þegar að hann var hér í kef, en sýnist að hann hafi fengið að sjá aðeins svartari hlið heimsins á þessu flakki sem að hann hefur farið á....

Vonandi að þú takir hann í gegn ;)

Author:  Ketill Gauti [ Mon 23. Mar 2009 20:03 ]
Post subject:  Re: 730 E32

Til hamingju með bílinn Baldur 8)

Author:  maxel [ Mon 23. Mar 2009 20:29 ]
Post subject:  Re: 730 E32

Ég skal hjálpa þér með þessa klossa elskan.

Author:  maxel [ Mon 23. Mar 2009 20:46 ]
Post subject:  Re: 730 E32

Á einhver gott háspennukefli til að leyfa meistaranum að prófa hvort það lagi ganginn?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/