bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E39 523I BBS CH "19 Sumar andlitslyfting
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=35418
Page 1 of 10

Author:  Aron [ Mon 02. Mar 2009 21:37 ]
Post subject:  E39 523I BBS CH "19 Sumar andlitslyfting

Ég var að versla þennan í dag smellti 2 myndum af honum svona í flýti. Hann er ekkert augnayndi á stálfelgunum.
Það þarf aðeins að ditta að honum smá riðbólur komnar eins og gengur og gerist á 10 ára gömlum bílum.

En smá um bílin.

BMW 523ia
Vél: M52B25 (þ.e 6 cyl lína 2.5L 170hp)
Litur: Cosmosswartz metallic
-Topplúga
-Klimatronic
-Svört leðurinnrétting


Image
Image
Image

Author:  Einarsss [ Mon 02. Mar 2009 21:41 ]
Post subject:  Re: E39 523

Til hamingju, verður flottur í sumar á einhverju blingi 8)

Author:  Aron [ Mon 02. Mar 2009 21:43 ]
Post subject:  Re: E39 523

Já, það er stefnan. Mikið skoðað þessa dagana hvaða felgur eru heitastar undir e39 hmmm

Author:  Róbert-BMW [ Mon 02. Mar 2009 22:40 ]
Post subject:  Re: E39 523

Þessi gétur orðið flottur á flottum felgum í sumar...

Author:  Axel Jóhann [ Mon 02. Mar 2009 22:41 ]
Post subject:  Re: E39 523

M-Paralell 18" Pólerað lip 8) Snyrtilegasti bíll að sjá. 8)

Author:  Ásgeir [ Mon 02. Mar 2009 23:11 ]
Post subject:  Re: E39 523

Þetta er rosalega flottur bíll, þarf aðeins að ditta að lakkinu en lítur vel út. Innréttingin er liggur við eins og ný.

Author:  Róbert-BMW [ Mon 02. Mar 2009 23:30 ]
Post subject:  Re: E39 523

http://www.live2cruize.com/spjall/showt ... hp?t=89184 ???

Author:  Aron [ Tue 03. Mar 2009 18:32 ]
Post subject:  Re: E39 523

Ef maður er með 19 tommu felgur 10 tommur að aftan og 9 að framan hvernig dekk þarf maður?

Author:  Jón Ragnar [ Tue 03. Mar 2009 19:44 ]
Post subject:  Re: E39 523

19tommu dekk



:lol:

Author:  SteiniDJ [ Tue 03. Mar 2009 20:32 ]
Post subject:  Re: E39 523

Axel Jóhann wrote:
M-Paralell 18" Pólerað lip 8) Snyrtilegasti bíll að sjá. 8)


Thumbs up fyrir því!

Author:  Aron [ Tue 03. Mar 2009 23:16 ]
Post subject:  Re: E39 523

Ég ákvað að skola aðeins af 16" felgunum sem að ég fékk með bílnum. Síðan fann ég styling 93 felgur í geymslu hjá ættingja og fékk að hirða þær.
Ætla að prófa að photoshoppa það undir og athuga hvernig það lýtur út. Þær eru 8x18 kann ekkert á svona dekkja stærðir.

Allar felgurnar komnar inn í skúr.
Image

Búinn að skola innan úr einni 16"
Image

Skrúbb
Image

hreyfð mynd af hreinum felgum
Image
Image

Image

Author:  Axel Jóhann [ Wed 04. Mar 2009 12:09 ]
Post subject:  Re: E39 523

FLOTTUR SKÚR! 8)

Author:  Austmannn [ Wed 04. Mar 2009 14:08 ]
Post subject:  Re: E39 523

Axel Jóhann wrote:
FLOTTUR SKÚR! 8)


Nákæmlega, hengikoja,bjórkælir and i would never leave :)

Author:  Ásgeir [ Wed 04. Mar 2009 14:59 ]
Post subject:  Re: E39 523

Axel Jóhann wrote:
FLOTTUR SKÚR! 8)



Einmitt nýbúið að flísaleggja.. 8)

Author:  Aron [ Wed 04. Mar 2009 17:46 ]
Post subject:  Re: E39 523I

Ég var kallaður út í dag að bjarga litla bróðir mínum sem var rafmagnslaus og fastur uppi á skafli í spönginni :D

Image


Image
Image

Page 1 of 10 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/