Page 1 of 8

635csi - Nýjar myndir á bls. 7

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 00:48
by Dr. Stock
Image
Image

Styttist í sumarið!!! Snilld, dagarnir lengjast. Staðið til býsna lengi að senda nokkrar myndir á Kraftinn af Sexunni okkar feðganna. Eignuðumst þennan bíl sl sumar og erum rétt að byrja að kynnast honum. 1986 bíll 635 CSI, fluttur inn 1998 úr þýsku dánarbúi. Bíllinn stendur í 113.000 km hér og nú. Allur bíllinn er sem nýr, original að öllu leyti, ryðlaus allan hringinn og original lakk. Sér ekki á bílnum nema rispa neðst á framsvuntu sem verður sprautað áður en sumarnotkun hefst. Innréttingin óskemmd, svört og snilldarfalleg. Engar breytingar verða gerðar á þessum bíl, nema það sem árgerðin leyfir. Mikilvægt með svona bíla að þeir séu "original". Er á original 14" style 5 en til stendur að skipta yfir í BBS style 5 16" ef allt gengur upp. Á annarri myndinni hér hér að ofan er hann á þeim felgum til prufu en dekkin verða ekki rauð!!! og liturinn er BBS en ekki BMW og því verður breytt ef til kemur. Við feðgar erum tíðir gestir hér á Kraftinum og ánægjulegt að sjá pælingar og dugnað meðlima. Mottóið okkar er að halda eldri bílum original. Eigum reyndar einnig fulluppgerðan 1942 Chevrolet C15A hertrukk 4x4 með palli, en af skiljanlegum ástæðum förum við ekki að rúnta á slíkum bíl, bíllinn er beinskiptur og bensíngjöfin er í miðjunni! þ.e. staðsett milli bremsu og kúplingar og á honum er einnig "harðgert" vöðvastýri. Ekki beint hægt að tefla þessum gæðingum saman .... en við elskum andstæður.... Lofum að senda inn fleiri myndir af Sexunni eftir að hún kemur undan vetrarseglinu í vor.

Njótið, hlakkið til sumarsins og ekki orð um kreppuna!!!!



Image

Hérna er trukkurinn, mynd tekin 17. júní 2008 í jómfrúarferð eftir uppgerð.


Image
Hérna er verkfæraboxið aftan í skotti. Eins og það var þegar bílinn kom úr verksmiðjunni.

Image
Vélin er HREIN snilld!

Kveðja, jerry og SteiniDJ

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:02
by bimmer
Bara svalur floti og þessi rauði er ótrúlega heill að sjá :shock:

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:02
by Mánisnær
:drool: CLEAN 8)
Vægast sagt.

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:08
by gunnar
Mjög snyrtilegur bíll 8)

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:10
by Steini B
Glæsilegur bíll hjá ykkur :D

Vonandi að maður sjái þennann eitthvað í sumar...

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:11
by SteiniDJ
Steini B wrote:Glæsilegur bíll hjá ykkur :D

Vonandi að maður sjái þennann eitthvað í sumar...


Ég trúi ekki öðru, er að bráðna úr tilhlökkun! :D

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:13
by Sezar
Fallegur og heill gripur hér á ferð 8)

Og ekki spurning að setja hann á BBS :wink:
Grunar annars að þetta séu felgurnar sem ég er að mála.

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:31
by srr
DAMN Þessi bíll er sexy!!! 8) 8) :drool: :drool:

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 01:38
by Bjössi
Glæsilegur bíll hjá ykkur!

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 11:10
by Kristjan
Þetta er óvæntasti þráður ársins! Ekkert smá fallegur bíll hjá ykkur, bara virðingarvert að þið ætlið að halda honum góðum.

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 11:21
by Birkir
Glæsilegur bíll og mér líst mjög vel á áform ykkar með hann :D

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 11:25
by Einarsss
Vá! ótrúlegt hvað þetta er heilt, framúrskarandi framtak ... ekkert smá sem maður öfundar ykkur af þessum mola

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 11:30
by jens
Til lukku með þennan dýrgrip og lýst vel á að fara varlega i allar breytingar.

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 11:30
by bebecar
Maður hefur einstaka sinnum rekið augun í þennan rauða og hann er afar fallegur - BBS 16" myndu líka bara bæta hann 8)

Re: 635csi - Sumarið nálgast

PostPosted: Sun 01. Mar 2009 11:31
by Alpina
Sezar wrote:Fallegur og heill gripur hér á ferð 8)

Og ekki spurning að setja hann á BBS :wink:
Grunar annars að þetta séu felgurnar sem ég er að mála.



SAMÁLA ,, Árna

E24 ber BBS alveg feykivel,,


:shock: ....... á eitt sett :mrgreen: :mrgreen: