Jæja langaði að henda í þráð, um er að ræða E34 540 sem maður hefur verið að dunda sér hægt og rólega í og er þetta reyndar annað skiptið sem ég eignast þennan bíl, sá alltaf rosalega eftir því að hafa selt hann og eftir að hafa rekist á hann aftur ákvað maður að næla sér í hann í smá kæruleysi.
E34 veikin hefur ekkert hægt á sér síðan maður eignast þennan bíl
Kannski byrja á myndun frá því að ég átti hann 2014-2015
Það var hitt og þetta sem þurfti að græja þá í honum og kom maður honum á númer aftur þá.
Rak augun í felgur sem lágu þarna inn í skúr þegar ég sæki hann þá sem fengust keyptar líka og voru það throwing stars felgurnar undan honum, hann stóð á style 5 basketweaves þegar að ég
eignast hann þá.







Svo myndir frá því þegar ég eignast hann aftur



Svona smá basic info til að byrja með
Bíllinn rennur af færibandinu 21.06.1994 frá Dingolfing
Búnaður:
- leður sportsæti rafmagns (Vísundaleður)
- Leður sportstýri
- Minni í sætum og speglum
- Gardína
- Stóra aksturstölvan
- Tvískipt topplúga
- Skíðapoki
- Cruise control
- 3.45 LSD
Almennt ástand núna
Ástandið er ekkert sérstakt, eða allavega er bíllinn langt frá því eins og að ég myndi vilja hafa hann. Til að byrja með að þá var bíllinn ekkert rosalega smekklegur að utan sem innan




Svo hefur hann verið málaður einhvern tíman og hefur það eitthvað klikkað, allavega ekki skemmtilegur frágangur í kringum það, einnig komið svoldið ryð í hann en læt það vera samt miðað við hvað þetta getur orðið slæmt.
Búið var að setja Hella spoiler á hann og var hann festur með einhverjum skrúfum, farið að ryðga vel þar undir.


Svo eru throwing stars felgurnar orðnar hrikalega ljótar og miðjurnar í misjöfnu ástandi, ein miðjan er brotinn og dekk ónýt. Einnig vantar upprunalega 540 stuðaran sem var á honum með hornunum og sílsaplöstinn.
Þessi spoiler fékk að fjúka og var afturhlerinn tekinn og skveraður og málaður.




Allt annað að sjá hleran svona
Hvað varðar plön, þá er margt sem mig langar að gera og klára, bara sem dæmi til að byrja með að þá er ýmislegt sem búið er að panta og er á leiðinni og
margt sem er nú þegar komið, það er hellingur sem á eftir að klára.
- Bilstein B8 fjöðrun hringinn
- Allt nýtt í bremsur eins og það leggur sig
- Allar spyrnur og fóðringar framan og aftan, allt lemförder
- Ýmislegar pakkingar.
- Taka throwing stars í gegn og ný dekk
- Ný framljós, stefnuljós og kastarar, ganga betur frá framenda
- Ný BMW merki oem
- Græja framstuðaran og setja 540 horn / ducts á hann
- Sílsaplöst og allir listar
- Farþegassætið búið að snúa upp á sig / dæmigerða twist, laga það og ganga frá ýmislegu í innréttingu
- Ný olía og sía á vél
- Fara í eitthvað almennilegt púst.
- Bsk swap??
- Mála / laga lakk / ryðbæta
- Fara í kælikerfi / allar pakkingar
- Húdd lokast ekki / húddlæsing virkar ekki
- Olíulekar, bara eðlilegt ástand held ég
- Skiptibarkinn ákvað að kveðja þegar það átti að koma honum á pall uppí skúr
Ýmislegt sem ég er öruglega að gleyma en við skulum bara byrja á þessu, allavega nóg sem þarf að gera
