bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW e23 í uppgerð - Nokkrar myndir komnar https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=35053 |
Page 1 of 9 |
Author: | GunniSteins [ Mon 16. Feb 2009 21:18 ] |
Post subject: | BMW e23 í uppgerð - Nokkrar myndir komnar |
Jæja ég er nú ekki vanur að segja eitthvað hér án þess að það sé tilgangur í því ![]() En ég ætla nú samt að pósta inn myndum af e23 þarsem ég er svo ánægður við að vera búinn að basla í allanótt við að henda hjólalausu hræji úr skúrnum og koma e23 inn og byrja aðeins á honum! Svona til að byrja með. ![]() ![]() ![]() Ég byrjaði á að labba einn myndahring í kringum bílinn, tók afturljósin af og mátaði önnur, tjakkaði hann upp og setti undir hann búkka og hófst svo handa. Þegar við drógum hann stóð hann fastur í bremsu fyrir utan húsið hjá mér og neitaði að fara.. ![]() ![]() Enda bremsurnar illa ljótar ![]() Ég byrjaði að taka pústið undan. ![]() ![]() Allt vel riðgað þarna og þegar ég náði pústinu undan var það ónýtt[enda ekki við öðru að búast] ![]() ![]() Svo var það bara að taka sætin úr. ![]() ![]() Sætin sem voru í honum. ![]() Og svo þegar það var búið að taka teppið leit þetta svona út í bílnum! ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Svo var byrjað að pússa og gera tilbúið fyrir suðu. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Svona leit þetta út þegar ég skildi við bílinn, á eftir að fínesera aðeins og skera út fyrir suðu! Nennti ekki að hanga lengur þar sem ég er ekki búinn að sofa í 33 tíma. Vona að ykkur líki þessar myndir ![]() ----------------------------------------------------------------------------------------- Ég ætlaði nú að pósta þessu inn í gær, en það var eitthvað vesen með að koma myndonum á netið. En já hérna eru s.s. myndir af því sem við Ási gerðum í gær[það var nú ekki mikið samt sem áður] Við byrjuðum á því að taka húdd og frammenda bílsins af. ![]() ![]() ![]() Ási að pússa aðeins, þannig að þetta leit svona út. ![]() ![]() ![]() Það hefur eitthver bara sett kitt yfir riðið og það nátturulega riðgað mikið meira og hraðar undir því ![]() En svo skiptum við um vatnslás í bílnum bara svona á meðan við fengum okkur sígarettu. Svona leit vatnslásinn út sem átti að vera fastur opinn í bílnum. ![]() ![]() Lítið eftir af honum svosem. Svo svona í endan þá ákvöðum við að prufa setja hann í gang. Við beintengdum háspennukeflið í geiminn en það endaði nú bara með ósköpum ![]() ![]() ![]() ------------------------------------------------------------------------------------------------- Jæja ég fór aðeins í skúrinn í dagm, byrjaði á því að taka smá til. En þarsem þessar bremsur eru búnar að freista mín svo ákvað ég að byrja aðeins á þeim. Ég tók bremsudæluna af og skoðaði hana, ég ætla bara að panta nýja í hann að aftan, það er allt fínt að framan. ![]() ![]() ![]() Hálf ónýtt eiginlega bara, en ég skelli í hann nýju núna fljótlega ![]() Svo var það bara haldið áfram með riðið, tók ekki mjög margar myndir. ![]() ![]() Kláraði að pússa allt farþegamegin og skera aðeins úr fyrir suðu. Þegar það var búið byrjaði ég aðeins á golfinu hinumegin. ![]() Þannig það leit svona út. Svo henti ég mér bara aftur í hina hliðina á bílnum og tók hjólaskálina. ![]() Það var nú reyndar svona meira Ási sem gerði þetta ![]() Ég tók því bara rólega í kvöld en helgin er frammundan og er planið að helga sér bílnum bara þá ![]() ![]() |
Author: | arnibjorn [ Mon 16. Feb 2009 21:21 ] |
Post subject: | |
Jæks. Gangi þér vel með þetta ![]() |
Author: | elli [ Mon 16. Feb 2009 21:22 ] |
Post subject: | |
Flott hjá þér... þessi verður vonandi góður... 33 tíma farðu að sofa drengur! |
Author: | ingo_GT [ Mon 16. Feb 2009 21:23 ] |
Post subject: | |
Flott hjá þér Gunni samt aðeins meira rið en ég ýmindaði mér í hausnum ![]() En bara draumur í dós að sitja í þessum leður sæti ![]() ![]() |
Author: | aronjarl [ Mon 16. Feb 2009 22:03 ] |
Post subject: | |
Um að gera ða búa til flottan bíl úr þessu.!!! Geggjaðir bílar.!! |
Author: | Alpina [ Mon 16. Feb 2009 23:02 ] |
Post subject: | |
aronjarl wrote: Um að gera ða búa til flottan bíl úr þessu.!!!
Geggjaðir bílar.!! Rétt en af eiginn reynslu EKKI GÓÐIR bílar 745 E23 er enn í dag einhver mesta goðsögnin af eldri BMW bílunum |
Author: | GunniSteins [ Tue 17. Feb 2009 08:28 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: aronjarl wrote: Um að gera ða búa til flottan bíl úr þessu.!!! Geggjaðir bílar.!! Rétt en af eiginn reynslu EKKI GÓÐIR bílar 745 E23 er enn í dag einhver mesta goðsögnin af eldri BMW bílunum Þessum verður líka breytt.. Þoli ekki kveikjuna í þessu að mestu leiti t.d. elli wrote: Flott hjá þér... þessi verður vonandi góður...
33 tíma farðu að sofa drengur! Ég steinsofnaði eftir þennan þráð líka ![]() |
Author: | GunniSteins [ Tue 17. Feb 2009 08:29 ] |
Post subject: | |
ingo_GT wrote: Flott hjá þér Gunni samt aðeins meira rið en ég ýmindaði mér í hausnum
![]() En bara draumur í dós að sitja í þessum leður sæti ![]() ![]() Já segðu. Og þessi sæti eru ekkert til að kvarta yfir.. Ég þakka góð komment |
Author: | asi91 [ Tue 17. Feb 2009 12:19 ] |
Post subject: | |
Já þetta fór heldur ekki vel með bílinn minn þegar ég var að reyna koma þessum svaka fleka áfram en gaman þegar hann var kominn í skúrinn |
Author: | jens [ Tue 17. Feb 2009 14:06 ] |
Post subject: | |
Æðislegir bílar, vertu duglegur að setja inn myndir fyrir okkur. |
Author: | Axel Jóhann [ Tue 17. Feb 2009 17:50 ] |
Post subject: | |
Þig langar ekkert í LSD í þennan? ![]() |
Author: | Fatandre [ Tue 17. Feb 2009 18:36 ] |
Post subject: | |
Þessi er mega, er þetta í Sangerði, kannast eithvað við þennan stað |
Author: | ingo_GT [ Tue 17. Feb 2009 18:39 ] |
Post subject: | |
Fatandre wrote: Þessi er mega, er þetta í Sangerði, kannast eithvað við þennan stað
Þetta er í sandgerði höfuborg suðurnesjanna ![]() |
Author: | Einarsss [ Tue 17. Feb 2009 18:40 ] |
Post subject: | |
Næg verkefni framundan hjá þér ![]() Endilega að gera þetta samviskusamlega og almennilega... annars tekur því varla að standa í þessu |
Author: | Angelic0- [ Tue 17. Feb 2009 20:26 ] |
Post subject: | |
einarsss wrote: Næg verkefni framundan hjá þér
![]() Endilega að gera þetta samviskusamlega og almennilega... annars tekur því varla að standa í þessu Ég er eitthvað búinn að vera að reyna að stimpla það inn í hann... En þetta verður ofur mega keppnis flott þegar að allt er klárt... |
Page 1 of 9 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |