Jæja compadres,
ég ætla loksins að láta verða af því að smella þessari elsku hér inn í bíla meðlima. Það hefur verið til söluþráður um þennan þónokkurn tíma hér inni en ég er farinn að hallast að því að enginn sé tilbúinn til að borga verð sem ég get sætt mig við sem er ágætt vegna þess að þá neyðist ég til þess að eiga hann áfram
um er að ræða...
BMW E34 540iEkinn 227.xxx km.
Sjálfskiptur
M60, 4.0L, V8, 286 hestöfl
Framleiddur 12 mai 1993
Fyrst skráður 21 mai 1993
Fyrst skáður á Íslandi 22 sept 1997
Helsti aukabúnaður: - Tvívirk topplúga
- Viðarklæðning
- Loftkæling
- Rafmagnssæti með minni
- Létt stýri
- Sætishitarar
- Hvít stefnuljós
- 17“ M-technic álfelgur (OEM)
Eigendaferill:Í október 2004 var bíllinn auglýstur til sölu hér á kraftinum:
http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=7654&highlight=e34+540 Þá var hann keyrður c.a. 120 þúsund og höfðu þá verið 3 eigendur að honum, 1 í Þýskalandi og 2 á Íslandi. Svo keypti hann eldri maður og notaði hann sem leigubíl þangað til ég keypti hann í ágúst 2006 en þá var hann keyrður c.a. 200 þúsund.
Síðan ég eignaðist hann hefur ýmislegt verið græjað og gert...
Skipt hefur verið um:
- Rafgeymi
- Kerti
- Knastásskynjara
- Sveifarásskynjara
- Loftflæðiskynjara
- Báða súrefnisskynjara í pústi
- Bensíndælu
- Lausagangsskynjara
- Hvarfakútum var skipt út og túpur settar í staðinn, púst var yfirfarið og lagað í leiðinni.
- Sjálfskiptingin var tekin upp af Bifreiðastillingu í Kópavogi.
- Splunkunýr alternator var settur í hann en ég var lengi búinn að glíma við leiðinda hleðsluvandamál í bílnum.
- Bremsuleiðslur hafa verið endurnýjaðar að hluta.
- Bensínleiðslur hafa verið endurnýjaðar að hluta.
Það sem þarf að fara huga að:- Vatnsdælan er held ég orðin slöpp.
- Mótstaðan í miðstöðinni er farin, virkar bara á fullu blasti.
- Þarf bráðlega að fara huga að bremsum.
- Annað þokuljósið er brotið.
- Lakkið er mjög vel með farið miðað við aldur en það eru nokkrir staðir sem þarf að bletta í svo það fari ekki að brjótast út leiðindakrabbamein.
Að sjálfsögðu er svo planið að halda honum góðum áfram.
Framtíðardraumar innihalda m.a. xenon, aðrar sumarfelgur (Style 5, BBS Rs, M paralell eða eitthvað smekklegt), lækkunargorma og dempara, shadowline lista, dökkar filmur og gular lamin-x filmur á þokuljósin.
Grunnupplýsingar um bílinn skv. framleiðanda: VIN long WBAHE61090GF03653
Type code HE61
Type 540I (ECE)
Dev. series E34 ()
Line 5
Body type LIM
Steering LL
Door count 4
Engine M60/2
Cubical capacity 4
Power 210
Transmision HECK
Gearbox AUT
Colour BROKATROT METALLIC (259)
Upholstery SILBERGRAU STOFF (0407)
Prod. date 1993-05-12
Aukabúnaður með bílnum skv. framleiðanda: No. Description
216 SERVOTRONIC
240 LEATHER STEERING WHEEL
320 MODEL DESIGNATION, DELETION
401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC
428 WARNING TRIANGLE
437 FINE-WOOD TRIM
459 SEAT ADJUSTM., ELECTR. W MEMORY F DRIVER
488 LUMBAR SUPPORT DRIVER/FRONT PASSENGER
494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER
510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM
530 AIR CONDITIONING
661 BMW BAV. CASS. III
801 GERMANY VERSION







Eldri myndir:


Fleiri myndir væntanlegar um leið og ég finn hleðslutækið að myndavélinni minni...