bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

635csi, 745i, 528i, ofl.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=31
Page 1 of 1

Author:  saemi [ Wed 04. Sep 2002 08:52 ]
Post subject: 

Image

Author:  Djofullinn [ Wed 04. Sep 2002 09:18 ]
Post subject: 

Þetta er svo flott safn hjá þér drengur!! :P

Author:  Svezel [ Wed 04. Sep 2002 14:32 ]
Post subject: 

Djöfull er sexan suddalega flott hjá þér. Þetta eru þeir bimmar sem mér þikja einna flottastir, var einmitt að spá í svona bíl fyrir um þremur árum síðan en eigandinn vildi ekki láta hann fyrir normal verð. Kannski seinna.

Author:  iar [ Wed 04. Sep 2002 18:23 ]
Post subject: 

Ótrúlega lagleg sexan! Þumlar á alla kanta, hlýtur að snúa hausum hvert sem hún fer.

Author:  bebecar [ Thu 05. Sep 2002 13:04 ]
Post subject: 

Ég er sammála. Þessi sexa er einn fallegasti BMW sem ég veit um á landinu. Ég hrífst ofboðslega af þessu lúkki og hef gert alveg síðan ég sá að mig minir þriðju LETHAL WEAPON myndina. Þar fór einn rauður reyndar í spað.

Ofboðslega fallegur bíll hjá þér Sæmi.

Ekki slæmt safn hjá þér, og ekki versnar það við E28 bílinn sem er á leiðinni.

PS, hvar geymir þú þetta allt saman? Leigir þú geymslu eða hvað?

Author:  saemi [ Fri 06. Sep 2002 22:17 ]
Post subject:  Svar við fyrirspurnum

Já, ég get ekki neitað því að það er hort á eftir sexunni, ég átti nú ekki von á að það yrðu svona mikil viðbrögð. En sexan er alveg definately einn af fallegustu bílunum...

Bíllinn sem þú varst að tala um Svezel, var það ekki vínrauði 635csi bíllinn? Það var einhver bílskúrskall sem átti hann, man að hann vildi fá 1500 þús fyrir bílinn, frekar mikið. Kannski maður láti bara bílinn sinn ef maður fær svoleiðis tilboð :shock: ... en ætli menn séu nú nokkuð tilbúnir til að borga það verð fyrir svona bíl... þó það sé nú ekkert hrikalega langt frá því sem þetta stendur í.

Hvar geymi ég þetta... humm... Ég er nú með þetta hizt og her. Ég er með fimm- sex- og sjöuna heima hjá mér, geymi sexuna á veturna, en sjöuna á sumrin. Mig vantar alveg sárlega svona 150 fm húsnæði... ef einhver veit um svoleiðis fyrir svona 200 þúsund kall þá endilega láta mig vita.. hehe. Nei það er eina sem er leiðinlegt við þetta, þetta tekur alltof mikið pláss.

Sæmi

Author:  Svezel [ Sat 07. Sep 2002 10:34 ]
Post subject: 

Jú ég var að spá í vínrauða 635csi bílinn, geðveikur bíll en eins og ég segi þá var hann full stífur á verðinu þó bíllinn væri geðveikur (keyrður aðeins 80 þús!).

p.s. ég sá hvítan 628 bíl á bílasölu upp á höfða, sett á hann 440 þús, '81 módel. Veit einhver eitthvað um þennan bíl

Author:  Djofullinn [ Sat 07. Sep 2002 13:51 ]
Post subject: 

Sáuð þið sexuna í DV í dag??? 100 þ. kall!! 633csi '77.

Author:  saemi [ Sun 08. Sep 2002 15:23 ]
Post subject:  Hvíta sexan, og 633 bíllin í DV

Ég skoðaði aðeins hvíta 628csi bílinn, hann er svona skástur af þeim sem eru hérna af þeim eldri. Alveg sæmilegur, bara þyrfti að skella í hann 3.5L vél. Innréttingin nokkuð smekkleg, og lakkið allt í lagi.

Bíllinn sem var auglýstur í DV, ég veit nú ekkert um hann, hef séð einn standa í kópavogi, silfraðann, kannski er þetta hann.

Sæmi

Author:  zx [ Sun 22. Sep 2002 16:14 ]
Post subject: 

það er ekki sá silfraði í kópavogi, hann er 628 1981 módel og er ekki til sölu

Author:  morgvin [ Sat 01. Feb 2003 18:09 ]
Post subject: 

6 urnar eru suddalega flottar mig langar í alpina 6-u.

Author:  saemi [ Sat 01. Feb 2003 19:05 ]
Post subject: 

Hehe, þá er bara að opna buddunu og beygja sig :lol:

Sæmi

Author:  siggiii [ Fri 07. Feb 2003 21:24 ]
Post subject: 

Fallegur bíll hjá þér saemi.

Author:  saemi [ Fri 07. Feb 2003 23:11 ]
Post subject: 

Þakka þér.

Hrikalega sem ég hlakka til að draga hann út úr skúrnum í vor.....

ussussusssssssss

Sæmi

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/