bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1994 E34 525i - Ekkert spennó
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=30607
Page 1 of 12

Author:  birkire [ Tue 08. Jul 2008 14:38 ]
Post subject:  1994 E34 525i - Ekkert spennó

Ég sá þennan bíl á bílasölu uppá Kletthálsi í gær, fannst það frekar undarlegt að sjá hann þarna í svona annarlegu ástandi með engin söluplögg.
Ræddi svo aðeins við kappana og rúllaði heim á honum áðan.

Sumir kannast örugglega við þennan bíl en bæði Danni og Hannes hafa átt hann, en eftir að hann fór af Suðurnesjunum hefur hann snarversnað.

T.d.
Ryð hefur heilsað upp á nokkra fleti á bílnum
Einhver snillingur hefur tjakkað hann vitlaust upp
Skiptingin er að fremja sjálfsmorð - Fer í Transprogram og er leiðinleg
Billjón sprungnar perur
Endurskoðun 2, sett út á helling af smotteríi
Og svo ónýtur rafgeymir

En vélin virðist mjög solid þrátt fyrir 256þ km, drifið er læst, , innrétting mjög heil og boddí bara fínt. Og ég þarf varla að minnast á þetta SLAMM ! :lol:

Vonast til að gera OZ390 meira en góðan á ný.

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Ákvað að henda inn lista af öllu viðhaldi/breytingum sem hafa átt sér stað, svo ég muni nú hvað ég hef gert

Nýr rafgeymir í 256þ km
Skipt um diska að aftan, ásamt klossum, handbremsuklossum og gormum fyrir handbremsu í 257þ km
Beinskipting sett í staðinn fyrir sjálfskiptingu vorið 2009, allt til þess fengið úr NT-235.
Læsingin færð yfir í 3.23 drif
OEM e60 short shift gírstöng og ZHP M-tech gírhnúi(styttri og þyngri) hent í með gírkassanum, glænýtt - Stutt og solid á milli gíra
Nýar pústpakkningar í 257þ km
Nýir gírkassapúðar í 257þ km
Skipt um bensínslöngur frá tanki í 257þ km
Powerflex poly fóðringar í ballansstöng að framan í 258þ km
Allir stýrisendar endurnýjaðir ásamt millibilsstöng og stýrisupphengju í 258þ km
Driflokspakkning og pakkdósir við úttakssköft nýtt með nýrri vs500 olíu í 258þ
Nýir spindlar báðu megin að framan í 258þ
Nýir ballansstangarendar að framan í 258þ
Nýar spyrnur báðu megin að framan í 258þ
Nýr vökvi á vökvastýrinu í 258þ
Nýir handbremsubarkar í 259þ

Hellingur eftir svo maður verði sáttur og svo þarf ég að lappa upp á útlitið á næstunni, búinn að eiga bílinn í ár og keyrt hann rúma 2500 þ km :|

Author:  Einarsss [ Tue 08. Jul 2008 15:00 ]
Post subject: 

ótrúlegt hvað þessi bíll helst á kraftinu, vonandi að þú klappir honum hressilega :D

Author:  maxel [ Tue 08. Jul 2008 16:04 ]
Post subject: 

Slaaaammaðuuuur.
Víst ssk er að fara væri kúl að breyta honum í BSK.
Laga sma ryð hér og þar og smá TLC og þá ertu svalööör 8)

Author:  Danni [ Tue 08. Jul 2008 18:29 ]
Post subject: 

Noh fyrsti bimminn minn búinn að poppa upp aftur :D

Þú ert þá sjötti eigandinn á Kraftinum sem ég veit af. Ég kaupi af JónP, svo kaupir Hannsi af mér og setur hann upp í 540iA sem hann fékk frá Danna Djöfli, Danni Djöfull selur Arnari ömmudriver bílinn sem að gerir heiðarlega tilraun að koma honum í toppstand aftur og komst góða leið með það. Svo selur hann bílinn og enginn veit hvað varð um hann fyrr en þú kemur með hann núna hehe.

Þessi bíll var alveg geggjaður þegar ég átti hann. Ég endurnýjaði alveg heilan helling og setti læst drif í hann sem brotnaði svo sama dag v/rangrar olíu geri ég ráð fyrir, þannig ég setti annað læst drif í sem að brotnaði svo hjá Hannesi og loks setti Arnar 4.10 læst drif í hann sem hann keypti fyrir sjöuna en passaði ekki í hana.

Svo má líka til gamans geta að það var skipt um hedd í þessum bíl þegar Danni Djöfull átti hann því að Hannes hélt að það væri sprunga í gamla heddinu, en í rauninni var bara farin heddpakkning. Heddið úr þessum bíl er núna í PO-700 hans Viktors.

Þetta var góður bíll og ég vona að þú getur gert hann góðan aftur ;) Til hamingju með kaupin.

Author:  ömmudriver [ Mon 14. Jul 2008 21:57 ]
Post subject: 

Suddalegt að sjá hvernig bíllinn lýtur út í dag :? Eins og ég ausaði peningum í hann :x Skiptingin lak þegar að bíllinn var í minni eigu og fór ég reglulega með hann á smurstöð og lét bæta á hana, þannig að mig grunar að það hefur ekki verið gert eða ekki nógu oft og þess vegna sé skiptingin orðin svona "skemmtileg". Skiptingin skipti alveg silkimjúkt þegar að ég átti bílinn og mótorinn sló ekki eitt feilpúst 8) Svo lét ég setja KW demparana í að framan en hann Hannes nennti því ekki þegar að hann átti hann og því var hann bara á KW lækkunargormum að framan en ónýtum OEM dempurum. Svo keypti ég nýjan vatnskassa í bílinn en hann Hannes átti einnig heiðurinn af því að hinn kassinn míglak en þó fara nokkrar sögur af því :roll: Diskar og klossar að framan voru einnig endurnýjaðir og dælurnar liðkaðar en það var keypt í TB og ásamt því var skipt líka um jafnvægisstangarenda og demparapúða að framan sem einnig voru keyptir í TB. Það á að vera enskur manual í bílnum en ég keypti hann í B&L því að það var EKKERT í hanskahólfinu þegar að ég keypti bílinn. Ég keypti svo líka nýja ljóskastara í framstuðaran á bílnum en hann hafði fram að því ekki verið með ljóskastara.

Hér er svo söluauglýsingin frá því að ég var að selja hann:http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=21917&postdays=0&postorder=asc&highlight=til+s%F6lu+e34+525ia+lsd&start=0

Til hamingju með bílinn og vonandi reynist hann þér vel :D

Author:  birkire [ Mon 14. Jul 2008 22:35 ]
Post subject: 

Takk fyrir endurminningarnar strákar :lol:
Mjög fínt að vita hvað hefur verið gert fyrir hann. Einnig hversu mikið hann hefur lækkað í verði. Búinn að þrífa og setja dekk á fjórðu felguna(sprungið á henni í skottinu) og rúnta smá. Ennþá fáránlegt slag í stýrinu en þessi bíll liggur vangefið vel á götunni.

Hver valdi þennan pústkút BTW ? :lol:
Image

Author:  Danni [ Mon 14. Jul 2008 22:38 ]
Post subject: 

Er ennþá Xenon í honum? Á báðum??

Author:  Lindemann [ Mon 14. Jul 2008 22:39 ]
Post subject: 

Danni wrote:
Noh fyrsti bimminn minn búinn að poppa upp aftur :D

Þú ert þá sjötti eigandinn á Kraftinum sem ég veit af. Ég kaupi af JónP, svo kaupir Hannsi af mér og setur hann upp í 540iA sem hann fékk frá Danna Djöfli, Danni Djöfull selur Arnari ömmudriver bílinn sem að gerir heiðarlega tilraun að koma honum í toppstand aftur og komst góða leið með það. Svo selur hann bílinn og enginn veit hvað varð um hann fyrr en þú kemur með hann núna hehe.

Þessi bíll var alveg geggjaður þegar ég átti hann. Ég endurnýjaði alveg heilan helling og setti læst drif í hann sem brotnaði svo sama dag v/rangrar olíu geri ég ráð fyrir, þannig ég setti annað læst drif í sem að brotnaði svo hjá Hannesi og loks setti Arnar 4.10 læst drif í hann sem hann keypti fyrir sjöuna en passaði ekki í hana.

Svo má líka til gamans geta að það var skipt um hedd í þessum bíl þegar Danni Djöfull átti hann því að Hannes hélt að það væri sprunga í gamla heddinu, en í rauninni var bara farin heddpakkning. Heddið úr þessum bíl er núna í PO-700 hans Viktors.

Þetta var góður bíll og ég vona að þú getur gert hann góðan aftur ;) Til hamingju með kaupin.


Sá sem átti bílinn á undan Jóni var líka á kraftinum, man ekki hvað hann heitir. Þetta var virkilega góður bíll og verður það vonandi aftur 8)

hérna eru nokkrar myndir sem ég tók af honum einhverntíman
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram032.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram027.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram026.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram021.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram017.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram014.jpg

Author:  birkire [ Mon 14. Jul 2008 22:43 ]
Post subject: 

Danni wrote:
Er ennþá Xenon í honum? Á báðum??


Já 8000k skilst mér.. fullblátt, en mjög þægilegt í myrkri. Og já.. skipti um öryggi og BING ! Xenon hægra megin komið í lag.

Author:  Aron Andrew [ Tue 15. Jul 2008 00:21 ]
Post subject: 

Djöfulli var ég alveg pottþéttur á að birgir sig ætti bílinn þarna þegar ég rakst á þig á laugarveginum um helgina :lol:

Author:  maxel [ Tue 15. Jul 2008 00:29 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Djöfulli var ég alveg pottþéttur á að birgir sig ætti bílinn þarna þegar ég rakst á þig á laugarveginum um helgina :lol:

Ég var líka að heyra að þú hefðir slasað mannin í hasarnum.

Author:  birkire [ Tue 15. Jul 2008 01:08 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Djöfulli var ég alveg pottþéttur á að birgir sig ætti bílinn þarna þegar ég rakst á þig á laugarveginum um helgina :lol:


Hahah, hljópst svoleiðis að bílnum og skildir mig eftir svona :hmm: og með sár á puttanum eftir hurðarskellinn :lol:

Author:  Danni [ Tue 15. Jul 2008 06:29 ]
Post subject: 

birkire wrote:
Takk fyrir endurminningarnar strákar :lol:
Mjög fínt að vita hvað hefur verið gert fyrir hann. Einnig hversu mikið hann hefur lækkað í verði. Búinn að þrífa og setja dekk á fjórðu felguna(sprungið á henni í skottinu) og rúnta smá. Ennþá fáránlegt slag í stýrinu en þessi bíll liggur vangefið vel á götunni.

Hver valdi þennan pústkút BTW ? :lol:
Image


Þessi pústkútur var á bílnum þegar ég fékk hann allavega. Stendur D&W á endunum. Hann hékk samt eins og hann á að gera þegar ég átti hann :lol: Verst að ég finn ekki myndirnar ef því þegar ég eyddi mörgum mínútum í að þrífa, pússa og sjæna stútana og komst að því að það var D&W merki á þeim :lol: Svo stendur 525iS á plötu sem er soðin undir kútinn veit ekki hvað það þýðir samt...

Author:  SER [ Tue 15. Jul 2008 21:48 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
Danni wrote:
Noh fyrsti bimminn minn búinn að poppa upp aftur :D

Þú ert þá sjötti eigandinn á Kraftinum sem ég veit af. Ég kaupi af JónP, svo kaupir Hannsi af mér og setur hann upp í 540iA sem hann fékk frá Danna Djöfli, Danni Djöfull selur Arnari ömmudriver bílinn sem að gerir heiðarlega tilraun að koma honum í toppstand aftur og komst góða leið með það. Svo selur hann bílinn og enginn veit hvað varð um hann fyrr en þú kemur með hann núna hehe.

Þessi bíll var alveg geggjaður þegar ég átti hann. Ég endurnýjaði alveg heilan helling og setti læst drif í hann sem brotnaði svo sama dag v/rangrar olíu geri ég ráð fyrir, þannig ég setti annað læst drif í sem að brotnaði svo hjá Hannesi og loks setti Arnar 4.10 læst drif í hann sem hann keypti fyrir sjöuna en passaði ekki í hana.

Svo má líka til gamans geta að það var skipt um hedd í þessum bíl þegar Danni Djöfull átti hann því að Hannes hélt að það væri sprunga í gamla heddinu, en í rauninni var bara farin heddpakkning. Heddið úr þessum bíl er núna í PO-700 hans Viktors.

Þetta var góður bíll og ég vona að þú getur gert hann góðan aftur ;) Til hamingju með kaupin.


Sá sem átti bílinn á undan Jóni var líka á kraftinum, man ekki hvað hann heitir. Þetta var virkilega góður bíll og verður það vonandi aftur 8)

hérna eru nokkrar myndir sem ég tók af honum einhverntíman
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram032.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram027.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram026.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram021.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram017.jpg
http://i15.photobucket.com/albums/a390/Jakobb/bmw525-ram014.jpg


Sælir

Ég er fyrsti eigandinn að þessum bíl hérna á bmwkrafti. Foreldrar mínir fluttu þennan bíl inn frá Þýskalandi 1997 og ég kaupi hann af þeim 2003 og sel Jóni hann svo 2005. Þetta var frábær bíll einn af þeim betri sem að ég hef átt.

Þessi púststútur var undir honum þegar að hann var fluttur inn.

Kv.

Author:  Hannsi [ Tue 02. Dec 2008 01:14 ]
Post subject: 

hvernig er svo þessi í dag?

Page 1 of 12 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/