bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E32 750 '91 nýjar/betri myndir + fix. MYNDAALBÚM LAGAÐ https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=28609 |
Page 1 of 2 |
Author: | elli [ Sun 06. Apr 2008 23:28 ] |
Post subject: | E32 750 '91 nýjar/betri myndir + fix. MYNDAALBÚM LAGAÐ |
Jæja þá hef ég bætt við einum V12 í safnið. Um ræðir: BMW E32 750 M70 ekinn 216.xxx km Steingrár LSD Leður Sportstólar með rafmagni og hita framí Nýlega sprautaður Shadowline ![]() ![]() ![]() Undir honum eru frekar aulalegar 16" felgur og auðvitað er planið að bæta úr því seinna í sumar. Ég hef verið pæla í hvort ég ætti að stefna á lækkunarsett svona til að minka fendergap-ið að framan eða svartholið eins og ég kýs að kalla það ![]() Ég er bara svoldið hræddur um að hann verði enn stýfari við það og eins og staðan er nú á vil ég ekki að hann stífist meira. Ég fékk bílinn síðastliðinn mánudag (ég veit að maður á ekki að kaupa bíla á mánud). Fyrsta rúnturinn endaði ég STOPP á ljósunum Grensás /Mikklabraut ![]() Ég fékk Bjögga bróðir með mér í lið við að kippa honum úr og Kiddi í Rafstillingu reddaði þessu. Eða gerði hann upp. Og nú startar hann og hleður eins og vindurinn! + nýr 105 Ah geymir. Ég tók hann og þreif á laugardag og ég get ekki sagt annað en að bíllinn sé alltaf að koma mér betur og betur á óvart. Hversu heill hann er og óslitinn. En það var einmitt það sem heillaði mig þegar ég skoðaði hann. Ég treysti mér til að fullyrða að þetta er einn af betri E32 M70 bílum á landinu. Ég ætla alls ekki að segja besti (svona til að gera nú ekki allt brjálað), en alveg pottþétt topp 5 eintak. Ég þarf að sýna ykkur hann á næstu samkomu. Það eina sem gera þarf fyrir bílinn er að laga smá víbring sem kemur þegar verið er að keyra hann upp. Á ca. 40 km/h þetta er mjög vægt. Gæti verið liðir á skafti, skiptingapúðar, drifpúðar eða eitthvert annað gúmmi. Síðan held ég að það þurfi að skoða annað hvort sjálfskiptitölvuna eða vélatölvuna. Þegar hann skiptir sér þá slær hann ekki af vélinni á meðan eins og hann á að gera til að fá mýkri skiptingu og hlýfa skiptingunni. Ég er ekki byrjaður á að lesa mér til um þetta en ef þið vitið hvað það er þá endilega látið mig vita. Ég vil ekki hafa hann svona, þetta er svipaður fílingur og að aka gömlu amerísku fjósi þegar hann skiptir sér í rólegum akstri. Annars er skiptingin hrikalega þétt, það vælir ekkert í kúpplingunum í akstri alveg silent! Það eins sem heyrist er grimmilegt vélahljóðið í M70 vélinni. Það ætti bara að vera bannað að setja útvarp í þessa bíla. Maður hefur ekkert við það að gera ![]() Jæja ég er kominn á kaf í lóðningar. Bílinn hrjáði þetta klassíska "mustard realy" vandamál. Þetta lýsir sér í því að OBC er sífellt að koma með fölsk boð um sprungnar ljósaperur. Ég sem þokkalega vel lesin E32 hneta var nokkuð snöggur að átta mig á þessu og reif "sinneps" relay-ið úr og lóðaði það upp, og viti menn þetta svínvirkaði. ![]() Ef rýnt er vel í lóðningarnar þá má sjá að þær eru rofnar á sumum stöðum og eftir viðgerð |
Author: | ömmudriver [ Sun 06. Apr 2008 23:54 ] |
Post subject: | |
Djöfull lýst mér vel á þennan vagn hjá þér og til hamingju með hann, svo er þetta í þokkabót rétta árgerðin af E32 750 ![]() Þetta er alveg rétt hjá þér með útvarpið, til hvers þarftu útvarp í 6cyl.+ BMW, ég hef reyndar rekið mig það og það er fyrir farþegana ![]() ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Mon 07. Apr 2008 00:22 ] |
Post subject: | |
skuggalega flottur bíll.. held að style 32 yrðu alveg rosalega flottar undir honum ![]() ![]() til hamingju með þennan ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 07. Apr 2008 00:55 ] |
Post subject: | |
Kíkti við í dag og ,,,,,, ![]() ![]() ![]() |
Author: | Bjöggi [ Mon 07. Apr 2008 11:59 ] |
Post subject: | |
var með þennan aðeins í láni eftir að hafa gert við hann. djöfull er gaman að keyra þetta ![]() til hamingju með vagninnn elli !! |
Author: | elli [ Mon 07. Apr 2008 12:39 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir commentin. Planið er að fara í TB á eftir og kaupa nýja sogbelgi frá loftsíuhúsi og að soggrein. Þeir eru orðnir morknir og ljótir. Síðan er ég í einhverju veseni með myndir af honum. Krafturinn neitar að sýna þær. Ég er að nota picasa.com (google product). Annað hvort fæ ég bara kassa => enga mynd eða bara textann. Ég ætlaði að koma inn fleyri myndum. Some ideas? Síðan gengur mér illa að fá greiðsluseðil þannig að ég geti notað myndasvæðið á kraftinum ![]() |
Author: | Bjöggi [ Mon 07. Apr 2008 13:03 ] |
Post subject: | |
notaðu bara það sem ég lét þig hafa í gær. það er nóg pláss þar fyrir okkur báða. ég á að eiga einhver 2 gíg af plássi og búið að greiða fyrir það. |
Author: | elli [ Thu 17. Apr 2008 18:36 ] |
Post subject: | |
Nýjar myndir á 1. síðu ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 17. Apr 2008 18:46 ] |
Post subject: | |
eitthvað klikka þessi hýsing hjá þér ![]() |
Author: | elli [ Thu 17. Apr 2008 18:49 ] |
Post subject: | |
Aron Fridrik wrote: eitthvað klikka þessi hýsing hjá þér
![]() Djö! ég er búinn að vera í fjandans vandræðum með þessi hýsingarmál. Búinn að prófa: Picasa 123.is og nú driveHQ Garg! |
Author: | elli [ Thu 17. Apr 2008 19:03 ] |
Post subject: | |
elli wrote: Aron Fridrik wrote: eitthvað klikka þessi hýsing hjá þér ![]() Djö! ég er búinn að vera í fjandans vandræðum með þessi hýsingarmál. Búinn að prófa: Picasa 123.is og nú driveHQ Garg! Jæja ... komið í lag ![]() Þurfti víst að gefa upp eitthvað betra netfang heldur en .hotmail.com það er víst ekki nægilega vandað ![]() |
Author: | Danni [ Thu 17. Apr 2008 19:16 ] |
Post subject: | |
Borga bara í kraftinn og fá aðgang að myndasafninu ![]() Annars þá er þetta stórglæsilegur E32 sem þú ert með! Áttu ekki til myndir að innan? |
Author: | elli [ Thu 17. Apr 2008 19:28 ] |
Post subject: | |
Danni wrote: Borga bara í kraftinn og fá aðgang að myndasafninu
![]() Annars þá er þetta stórglæsilegur E32 sem þú ert með! Áttu ekki til myndir að innan? Það er nú ekki hlaupið að því að fá greiðsluseðil ![]() Ég þarf eiginlega að taka betri innan myndir af honum. |
Author: | trigger [ Thu 17. Apr 2008 19:50 ] |
Post subject: | |
elli wrote: Danni wrote: Borga bara í kraftinn og fá aðgang að myndasafninu ![]() Það er nú ekki hlaupið að því að fá greiðsluseðil ![]() Já það er ekki hlaupið að því að gerast limur í Kraftinum ![]() Glæsilegt ökutæki samt en greinilega eitthvað með þessa v12 gaura og að vera til vandræða strax og maður fær þá í hendurnar. Vonandi samt bara byrjunarörðugleikar .. 7 9 13.! |
Author: | elli [ Sat 29. May 2010 09:06 ] |
Post subject: | Re: E32 750 '91 nýjar/betri myndir + fix. MYNDAALBÚM LAGAÐ |
Alveg langt síðan þessi átt skilið smá slide show! BT bróðir hjálpaði mér mikið með þennan í fyrra sumar og í vetur og afraksturinn er þessi. Nýr startari [aftur] Nýjar ventlalokspakkningar Nýjir boddy púðar [aftan] Bremsur complet nýtt Tintuð ljós Tintuð nýru Skyggð afturljós Felgur.... Nú er bara eftir að lóða upp eitt helvítins mælaborð [er mega latur við það, sorry BMW owner] og skipta út stýrisdælu sem lekur meira en meðal foss í jökulá á íslandi ![]() Bíllinn var að koma úr mössun og létt blettun stendur fyrir dryrum. Svo nú er bara að frysta allar sölupælingar og rönna út í sumarið ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |