bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E38 750i 1997 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=28539 |
Page 1 of 5 |
Author: | trigger [ Thu 03. Apr 2008 19:20 ] |
Post subject: | E38 750i 1997 |
Ég er líklega búinnn að gera grín að honum Ingimari vini mínum í sléttan áratug út af BMW eigninni hans og oft höfum við gert okkur glaðan dag um að ræða kosti og galla framhjóla og afturhjóladrifs. Þið getið því ímyndað ykkur hvað hann varð glaður þegar ég tók þennan forláta 750i upp í Toyotu sem ég átti (og já ég fékk smápening með...). Bíllinn sem umræðir er dökkgrænn, 750i (e38) framleiddur 10/1997 og fyrst skráður úti 26.11.1997 og kom til Íslands 17.03.2003 þá keyrður um 158.000km. Síðan þá er búið að bæta tæpum 100.000km við (stendur í 252.000km) og hann er búinn að vera skráður á 14 aðila, þar af 8 fjármögnunarfyrirtæki. Þetta virðist vera alveg sæmilega útbúinn sjöa með síma (framí og afturí), pjattljós afturí, DSC, lúgu, leðri (grænt), aðgerðastýri, ECC (tvískipt), 17" felgur, streptronic 5 þrepa sjálfskipting, hiti í fram og aftursætum, rafmagn í framsætum, Xenon ljós, þokuljós, cruise control, vasaljósi í hanskahólfi, dráttarbúnaði og ýmsu öðru nauðsynlegu dóti. Aðalmálið í þessum bíl er samt í mínum huga v12 vélin sem á að skila 326hp og 490Nm í togi. Bara eitt orð um það að segja: "Vá!". Hann var reyndar ekki búinn að vera í minni eigu nema nokkra klukkutíma þegar vandræðin byrjuðu, þjófavörnin fór í gang í tíma og ótíma. Líklega var hann bara að væla yfir því að ég skyldi ekki Þýsku nógu vel eða hann saknaði fyrri eigenda sinna. Raunin varð hins vegar sú að sparað hafði verið til rafgeymakaupa í desember 2005 og var 95Ah geymirinn orðinn slappur (innan við 75% af uppgefnum straum) og var honum skipt út fyrir 110Ah geymi. CD Changer portið á kassettutækinu reyndist svo líka bilað þegar það átti að tengja Dension Ice>Link við til að hooka upp iPod þannig að því var hent og sett Alpina iPod-ready tæki í staðinn (CDE-9881). Bíllinn var á Akureyri þegar ég keypti hann og á leiðinni suður s.l. sunnudag var frekar slæmt færi á Öxnadalsheiðinni og lenti ég í því að þurfa að stoppa vegna blindu þegar snjóruðningstæki mætti mér á leiðinni upp í brattasta kaflanum. Þá dugðu ónelgdu vetrardekkin ekki, enda ekki stætt í brekkunni, og það tók mig talsverðan tíma og lægni að koma mér af stað aftur. Í stuttu máli: Steptronic í 3ja þrep og DSC af og litla táin á bensíngjöfina, þetta hafðist með þolinmæðinni. Eyðslan á leiðinni var samt alveg ágæt eða 10,4L/100km sem er magnað fyrir tveggja tonna bíl með svona vél, enda hægt að krúsa á 1500rpm á 100km/klst sem telst ekki slæmt. Ég er sannfærður um að það má ná henni neðar þegar maður lærir inn á bíl/vél/skiptingu. Hvernig er hann svo m.v. aðra bíla sem ég hef átt? Tja, hann drífur ekki jafnmikið og Toyota Land Cruiser 80 á 44" dekkjum (döh), sætin eru ekki alveg jafnþægileg og í Volvo S60 (amk framí en betri afturí!) en ég hef aldrei átt bíl áður sem er yfir 200 hp hvað þá yfir 300hp! Það sem er hins vegar svo skemmtilegt við þennan bíl er að stundum er hann svo ógurlega ljúfur og bara mjög gaman að krúsa á 50km/klst en svo fellur gríman annað slagið og geðsjúklingurinn losnar úr spennitreyjunni ef maður stígur of fast á bensíngjöfina. Ég tók fyrstu bónsession mína í tvö ár í gærkvöldið, enda á þessi bíll skilið að fá bón (og eigandinn Thule) og því myndatakan ekki alveg komin af stað ennþá en þessar myndir tók ég þegar ég kom frá Akureyri á sunnudaginn frá Akureyri út á Gróttu: ![]() ![]() ![]() ![]() Það á svo að taka þriftörn um helgina og þá detta vonandi fleiri myndir inn á vefinn. Ég greiddi svo félagsgjaldið í BMWKraft í dag og aldrei að vita nema maður komi til með að eiga þennan bíl eitthvað áfram... |
Author: | lulex [ Thu 03. Apr 2008 19:24 ] |
Post subject: | |
átti kall sem heitir benni hann ? og stóð lengi vel uppá toyota ? |
Author: | trigger [ Thu 03. Apr 2008 19:25 ] |
Post subject: | |
lulex wrote: átti kall sem heitir benni hann ? og stóð lengi vel uppá toyota ?
Alveg hárrétt hjá þér. Og sá Benni einmitt safnar svona LC80 dollum eins og ég átti. Hann á tvær núna en ég þekki auðvitað líka menn sem eiga 2 BMW-a ![]() |
Author: | lulex [ Thu 03. Apr 2008 19:27 ] |
Post subject: | |
Já okay... já ég var buinn að skoða þennan bil hellviti oft uppá toyota og ef mig minnir rétt er nýlega búið að skipta um allt i hjólabúnaði og eithva bla bla bla bla.... til hamingju með þennann ![]() |
Author: | Einarsss [ Thu 03. Apr 2008 19:28 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með BMWinn ... its no turning back eftir þett get ég lofað þér ![]() Virkar sem mjög flottur og ríkulega útbúinn. |
Author: | iar [ Thu 03. Apr 2008 19:29 ] |
Post subject: | |
Þolinmæðin þrautir vinnur allar! Þetta hafðist hjá mér á endanum. ![]() Velkominn í Kraftinn og til hamingju enn og aftur með vagninn! |
Author: | íbbi_ [ Thu 03. Apr 2008 19:30 ] |
Post subject: | |
þessir E38 bílar eru ljúfari en alveg langflest annað.. en ég vona að þinn komi til með að bila minna en minn gerði, flottur bíll, góður litur, ég væri vel til í sona 12cyl e38 |
Author: | trigger [ Thu 03. Apr 2008 19:31 ] |
Post subject: | |
lulex wrote: já ég var buinn að skoða þennan bil hellviti oft uppá toyota og ef mig minnir rétt er nýlega búið að skipta um allt i hjólabúnaði og eithva bla bla bla bla....
Jú passar, það eru nýlegar nótur fyrir öllum slithlutum í framhjólabúnaði í hanskahólfinu (við hliðina á vasaljósinu...). Reyndar hélt Benni að þetta væri 750iL bíll sem segir mér að hann veit meira um LC80 en BMW ![]() |
Author: | lulex [ Thu 03. Apr 2008 19:33 ] |
Post subject: | |
trigger wrote: lulex wrote: já ég var buinn að skoða þennan bil hellviti oft uppá toyota og ef mig minnir rétt er nýlega búið að skipta um allt i hjólabúnaði og eithva bla bla bla bla.... Jú passar, það eru nýlegar nótur fyrir öllum slithlutum í framhjólabúnaði í hanskahólfinu (við hliðina á vasaljósinu...). Reyndar hélt Benni að þetta væri 750iL bíll sem segir mér að hann veit meira um LC80 en BMW ![]() ójújú, heyrði að hann hafi bara tekið þetta uppí annað bíl.... maður sér hann bara blasta um á þessum ofurblöðru LC sýnum ![]() |
Author: | trigger [ Thu 03. Apr 2008 19:37 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: þessir E38 bílar eru ljúfari en alveg langflest annað.. en ég vona að þinn komi til með að bila minna en minn gerði, flottur bíll, góður litur, ég væri vel til í sona 12cyl e38
Hehe, já ég las einmitt hryllingssöguna þína áður en ég ákvað að taka þennan. Mér bauðst líka 523i (1999) uppí sem hefði e.t.v. verið skynsamlegri kostur en skemmtun (og grænkan) sigraði að lokum... stundum er líka gott að eiga góða vini sem bitch-slappa mann og segja: "Taktu sjöuna!" (takk IAR ![]() |
Author: | trigger [ Thu 03. Apr 2008 19:40 ] |
Post subject: | |
lulex wrote: ójújú, heyrði að hann hafi bara tekið þetta uppí annan bíl....
Já hann tók þennan bimma upp í Patrol, þó skárra að hafa BMW á planinu en Patrol... munar líka svona 450 hestöflum á þeim. |
Author: | trigger [ Thu 03. Apr 2008 19:42 ] |
Post subject: | |
einarsss wrote: Til hamingju með BMWinn ... its no turning back eftir þetta get ég lofað þér
![]() Takk, takk, sennilega dýr fíkn sérstaklega þegar maður byrjar á "öflugum" enda. Það gæti alveg orðið spurning um grundvallarmannréttindi að eiga v12. |
Author: | Mánisnær [ Thu 03. Apr 2008 19:48 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með bílinn e38 12cyl er alveg í lagi |
Author: | Angelic0- [ Thu 03. Apr 2008 20:23 ] |
Post subject: | |
hehehe.... VONA ÞÍN VEGNA að bensínverð fari að lækka á næstunni ![]() En flottur vagn... innilega til hamingju með að vera kominn í hóp alvöru karlmanna ![]() |
Author: | trigger [ Thu 03. Apr 2008 20:28 ] |
Post subject: | |
Angelic0- wrote: hehehe.... VONA ÞÍN VEGNA að bensínverð fari að lækka á næstunni
![]() Miðað við það sem ég keyrði áður þá er þetta allt í plús ![]() |
Page 1 of 5 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |