bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E36 318i 03/91 - Project Rauðhetta Restoration https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=28452 |
Page 1 of 2 |
Author: | _Halli_ [ Tue 01. Apr 2008 01:59 ] |
Post subject: | E36 318i 03/91 - Project Rauðhetta Restoration |
Jæja, ég ákvað að henda upp þræði fyrir greyið áður en það verður of seint! Þetta er semsagt E36 318i, keypti hann sumarið 2005 af Skúra-Bjarka! Svona leit kvikindið út þá: ![]() Í fyrra tók ég allt ryð í botninum í gegn, fyllti upp í 2 göt sem voru komin þar og hljóðeinangraði hann í leiðinni. Skellti í hann skíðapoka og einhverju smotteríi. Hann er kannski ekki í alveg jafn góðu standi í dag ![]() ![]() Ég er kominn með facelift stuðara, bretti og nýja sílsa, en á eftir að næla mér í framstykkið og þarf að næla mér í nýru líka, þau verða klárlega svört! Ég er aðeins byrjaður að koma honum í stand, byrjaði á fjöðruninni. Dempararnir, aðeins farið að sjá á þeim!! ![]() Gormarnir... ekki í betra standi! 3 af 4 brotnir ![]() ![]() Þetta fór í staðinn... keypti nýja í TB ![]() og gormarnir frá Ingsie ![]() Skemmda hliðin! ![]() ![]() Allt komið undir, setti nýja ballansstangarenda í leiðinni. Skiptir ekki um neitt meira í bili, það er allt annað að keyra bílinn. Byrjaður að rífa boddýhlutina af til að kíkja aðeins á ryðmál og svona. ![]() Ágætis ryð hérna. Perustæðið var ekki lengi að detta af. ![]() Þarf að mixa nýja festingu fyrir brettið, þ.e.a.s. þar sem það er fest neðst. hún er bara algjörlega horfin. ![]() ![]() Veit ekki hvað maður á að nenna að vesenast í þessum ryðgötum. Þetta er nú bara gamall 318 ![]() ![]() Fattaði svo að ég ætlaði bara rétt að kíkja á bílinn, var ekki með neinn annan bíl til þess að fara á heim svo ég gat ekki parkað honum þarna á lyftunni alveg strax!! Svo ég fór heim á bílnum svona! ![]() Ekki beint mest spennandi projectið í gangi í dag, en maður er alveg ástfanginn af Rauðhettu gömlu, gaman að hafa hana í standi, það þarf ekki að henda miklum pening í þetta. Kannski 1-3 afborgunum af nýjum bíl ![]() Hendi inn updates þegar ég held áfram með þetta, býst við að næst á dagskrá sé að kaupa framstykkið og henda því ásamt húddinu, stuðaranum, sílsunum og brettinu í sprautun. Þar verður einnig farið í alla ryðbletti á boddýinu. |
Author: | Aron Andrew [ Tue 01. Apr 2008 02:05 ] |
Post subject: | |
Þessar myndir eru ekki alveg að rokka. En hljómar vel samt ![]() |
Author: | _Halli_ [ Tue 01. Apr 2008 02:09 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Þessar myndir eru ekki alveg að rokka.
En hljómar vel samt ![]() ![]() EDIT: Fixed! |
Author: | Aron Andrew [ Tue 01. Apr 2008 02:12 ] |
Post subject: | |
Ef ég geri view in new tab þá bara saveast myndin inn á tölvuna hjá mér. Þetta er eitthvað spes... |
Author: | _Halli_ [ Tue 01. Apr 2008 09:03 ] |
Post subject: | |
Það er smá vandamál með rúðuþurrkurnar. Þær eru í hvíldarstöðu frekar ofarlega á rúðunni. Þær fara alveg upp á rúðu og virka vel, en svo stoppa þær ekki á sama stað og þær byrja, heldur fara alveg niður á plastið (niður fyrir rúðuna) og svo aftur upp á byrjunarstað. Vídjóið lýsir þessu best: http://video.google.com/videoplay?docid=-6660130520580206326&hl=en Hefur einhver lent í þessu vandamáli eða hefur skýringar? ![]() |
Author: | Bjöggi [ Tue 01. Apr 2008 12:39 ] |
Post subject: | |
mig grunar að armarnir séu bara ekki á réttum stað á spindlunum. það er best fyrir þig að taka armana af og kveikja einu sinni á þurrkunum og láta þær klára til að brakketið stoppi á réttum stað svo geturðu hent örmunum á aftur og hafa þá í "park" stöðu |
Author: | burgerking [ Tue 01. Apr 2008 13:34 ] |
Post subject: | |
_Halli_ wrote: Það er smá vandamál með rúðuþurrkurnar.
Þær eru í hvíldarstöðu frekar ofarlega á rúðunni. Þær fara alveg upp á rúðu og virka vel, en svo stoppa þær ekki á sama stað og þær byrja, heldur fara alveg niður á plastið (niður fyrir rúðuna) og svo aftur upp á byrjunarstað. Vídjóið lýsir þessu best: http://video.google.com/videoplay?docid=-6660130520580206326&hl=en Hefur einhver lent í þessu vandamáli eða hefur skýringar? ![]() Ég á við svipað vandamál að stríða :/ hún stoppar alltaf aðeins of ofarlega og þegar að ég set hana í gang þá fer hun niður "í rétta stöðu" og svo upp og aftur niður og stoppar aðeins of ofarlega ![]() |
Author: | fart [ Tue 01. Apr 2008 14:00 ] |
Post subject: | |
Dont take this the wrong way... en er þetta alveg þess virði? |
Author: | íbbi_ [ Tue 01. Apr 2008 14:10 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Dont take this the wrong way... en er þetta alveg þess virði?
bingóbingóbingóbingó, fínir fúttarar samt sona gamlir E36 |
Author: | fart [ Tue 01. Apr 2008 14:12 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: fart wrote: Dont take this the wrong way... en er þetta alveg þess virði? bingóbingóbingóbingó, fínir fúttarar samt sona gamlir E36 Jújú, þessi virkar samt svolítð þreyttur og nett klesstur. Fyrir restoration pening og hugsanlega minna væri mögulega hægt að fá annan sem er klár í slaginn. Var bara að velta því fyrir mér. |
Author: | _Halli_ [ Tue 01. Apr 2008 14:25 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Dont take this the wrong way... en er þetta alveg þess virði?
Hahaha no hard feelings. Þetta er ekki þess virði! Ég læt hann duga út sumarið allavega, er ekki að fara að henda einhverjum tugþúsundum í sprautun. Þessi bíll er bara búinn að lifa allt af, verður að fá smá respect ![]() |
Author: | Danni [ Tue 01. Apr 2008 14:58 ] |
Post subject: | |
Bróðir minn á til svona stykki sem þig vantar, prefacelift, óryðgað, óbeyglað, ekki með framljósaþvotti. Getur prófað að senda honum PM og sjá hvort hann vilji ekki láta þig fá það á góðum díl, heitir stebbimj hérna ![]() Annars er þessi litur alveg að gera sig, og aðeins 3 eigendur frá upphafi! Verður flottur ef þú setur hann sama ástand og hann var 2005 ![]() |
Author: | Benzer [ Tue 01. Apr 2008 18:39 ] |
Post subject: | |
hvað fær fólk til að skíra bílana sína ![]() eins og t.d. Rauðhetta ![]() |
Author: | Stebbimj [ Tue 01. Apr 2008 19:52 ] |
Post subject: | |
Danni wrote: Bróðir minn á til svona stykki sem þig vantar, prefacelift, óryðgað, óbeyglað, ekki með framljósaþvotti. Getur prófað að senda honum PM og sjá hvort hann vilji ekki láta þig fá það á góðum díl, heitir stebbimj hérna
![]() Annars er þessi litur alveg að gera sig, og aðeins 3 eigendur frá upphafi! Verður flottur ef þú setur hann sama ástand og hann var 2005 ![]() jebb, þú bara sendir mér PM ef þér vantar pre facelift grill |
Author: | _Halli_ [ Tue 01. Apr 2008 20:49 ] |
Post subject: | |
Benzer wrote: hvað fær fólk til að skíra bílana sína
![]() eins og t.d. Rauðhetta ![]() Þetta er gömul sál Annars festist þetta við bílinn og mér finnst þetta bara fyndið. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |