Sælir
Ég kynni til sögunnar BMW 323i, Limousine, árgerð 1997, desember. Bíllinn er keyrður 119xxx kílómetra og er að honum einn fyrri eigandi fæddur 1939 ásamt fullkominni þjónustubók.
Efirfarandi er pantað í bílinn:
e36 323i framleiddur 18.12.1997l
Avus Blau Metallic M3/M5
Stoff Amaretta BOA/BOA
243A Airbarf fuer beifahrer
260A Seitneairbag fuer fahrer/beifahrer
288A Leichtmetallraeder
305A Fernbedienun F. Zentralveriegelung
401A Schibe-hebedach, Elektrisch
410A Fensterheber elektrisch, Vorne
415A Sonnenschutzrollo fuer Heckscheibe
423A Fussmatten in Velours
428A Warndreieck
431A Innenspiegel automatisch abblendend
441A Raucherpaket (aldrei reykt í bílnum enga að síður)
464A Skisack
481A Sportsitze fuer Fahrer/Beifahrer
494A Sitzheizung fuer Fahrer/Beifahrer
498A Kopfstuetzen im fond
510A Leuchtweitenregelnd abblendlicth
520A Nebelscheiwerfer
528A Atomatische umluft controll (AUC)
534A Klimaautomaktik
556A Aussentemperaturanzeige
669A Radio BMW Business RDS
672A CD Wechsler 6-Fach
704A M Sportfahrwerk
710A M Lederlenkrad
715A M Aerodynamikpaket
719A Sport Editon
775A Individual dachhimmel anthrazit
785A Weisse blinkleuchten
801A Deutschland-Ausfuehrng
818A Batteriehauptschalter
863A Servicekontrakt-Flyer Europa
879A Deutsch/Betriebsanl./Serviceheft
971A Exclusiv Paket
Eins of sjá má er þetta einhver slatti og hefur án efa kostað sitt á sínum tíma. Það vantar reyndar armpúðann en ég sakna hans ekkert og svo vanter stóru OBC.
Það fór þannig að þar sem ég var staddur í vinnuerindum í Vín, tók ég næturlest til Hamborgar og náði í bílinn hjá Smára. Keyrði svo ca. 1100 km. til Bratislava í Slóvakíu þar sem meiri vinna beið. Bíllinn var súper á keyrslunni, eyðir ca. 12-14 lítrum í 150+ og 10-12 lítrum max á mínus 150. Ótrúlega þéttur að öllu leyti og algerlega ónotaður bíll.
Síðan keyrði ég um 650 km. til Belgrad og það einnig helv. fínt.
Bíllinn er sem áður segir algerlega ónotaður, einn eigandi fæddur 1939 og lítið sem ekkert ekinn. Ég stórefa að aftur- og eða farþegahurð hafi verið opnuð að ráði og það sér ekki á innréttingu að neinu leyti.
Innréttingin er kannski aquired taste en mér finnst þetta bara funky, ekki kannski fyrsta val en venst fínt. Sætin súper þannig að það skiptir mig allavega meira máli. Ég keypti á hann í Hamborg ///M gírhnúð eða öllu heldur tappann oná hnúðinn þar sem leðrið er mjög gott á hnúðnum sjálfum. Stýrið er í súper formi, leðrið ekkert farið að láta á sjá. Allt virkar, öll ljós, meira að segja við meik speglana og alles.
Það er meira að segja nýtt og ónotað 16" varadekk í skottinu á álfelgu! Ekki bjóst ég við því.
Meiningin er að kaupa 17" M felgur eða Alpina, frekar Alpina held ég í vor og nota þessar undir vetrardekkin. Þessar eru reyndar ótrúlega fínar, ekki einu sinni hoggnar til eftir kanta né nokkuð.
Ég er því farinn að halda að fyrri og eini eigandi hafi farið nokkrum sinnum á viku útí mjólkurbúð, lagt í 2 stæði, haft bílinn alltaf inní bílskur þess á milli og hugsað einstaklega vel um hann eins og þjónustubók og í reynd bílinn allur ber augljós merki um.
Einnig ætli á að kaupa mér Ipod unit frá Harman Kardon þar sem ég á 4gen iPod með dáinn skjá, svona unit sum sé:
Bæði hægt að tengja í AUX eða CD tengi og er líka með FM sendi.
Einnig er ég að gæla við AC Scnitzer púst en er ekki viss um að það komist þar sem "diffuserinn" hýsir jú einungis einfalt púst frá fæðingu. Ég er ekki hrifinn af skítamixi og þyrfti þvi að kaupa nýtt M unit að aftan og nenni því varla. Einnig er spurning að fara í mjög smávægilegar kraft auknigar, en það þyrfti að vera mjög subtle þar sem ég get verið soldið anal og aðhyllist stock police aðferðir.
Ég ætla reyndar að fara í Angel Eyes og Xenon líka, einhverjar ráðleggingar??
Nokkrar mjög lélegar myndir, tek fleiri í vikunni og pósta:
Og svo þessar gömlu, bæti við í vikunni:
Og þetta er meira og minna það eina sem sér víst á bílnum!!
