Bmw 316i Compact - E36
Framleiðsluár - 1994
Nýskráður - 1995
Boddý keyrt - 226.xxx Km.
Er búinn að eiga þennan núna í 1 og hálft ár.
Þegar ég keypti hann var hann ekki í alveg í besta ásigkomulagi..
- Rúðan var brotin
- toppurinn ryðgaður
- Tjón á vinstra framhorni
- öll ljós í klessu
- Vatnskassinn var í mauki
- Vélin hafði misst vatnið allt of oft
- Stýris dælan frussaði út um allt
- Bíllinn hafði lent í afturtjóni og afturendinn kíldur inn um nokkra cm
- Aftur fjöðrunin var ekki í góðu standi
- og ég ætla ekki að minnast á hversu ílla lakkið var farið.
Ætla að fara gróflega yfir uppgerðina í myndum
Byðst afsökunar ef að myndirnar eru lélegar eða of stórar
Svona var hann fyrst þegar ég fékk hann
Þarna er hann með bráðabyrða vatnskassa úr toyotu.
Fékk að eyða góðum tíma í réttingarbekknum
Svo var sparslað í þetta mesta og versta sem enþá var eftir eftir réttinguna
Svo hófst undir vinnan af alvöru
Svo var byrjað að sprauta,hér er grunnurinn kominn á
Meira er ég ekki með af myndum af þessari endurhalningu á litlu dolluni.
Ég keypti 1997' E36 sedan 316i partabíl af IceDev hérna á spjallinnu og reyf hann í tætlur.
notaði af honum annað frambrettið, húddið, stuðarann og vélina þar sem hún var minna keyrð
og í betra ástandi heldur en vélin úr þessu gamla greyji.
Hér er svo listi yfir það sem er nýtt og breytt..
- Nýtt framstykki
- Húdd af partabíl
- Frambretti af partabíl
- Nýr framstuðari
- Framljós Angel eye
- Xenon 8.000k Aðalljós
- Heilsprautaður
- Nýr vatnskassi
- Önnur vél M43B16 Keyrð 172.xxx Km.
- Nýtt kúplingssett
- Nýjir skór
- Nýjir mótorpúðar
- Nýr 11 miði
man ekki meir í augnablikinu en það er pott þétt einhvað meira
svona lýtur hann nú út fyrr í sumar á gömlu fúnu dekkjunum enþá reyndar
Sést ekki mikið enda hef ég ekki myndavél í að taka almennilegar myndir
Þótt að hann hafi ekki stórt hjarta þá finnst mér hann alveg vera þess virði