Keypti KW stöff af GStuning...60/40 lækkunargorma og dempara...
Bíllinn er miklu skemmtilegri ... það hafa líklega verið einhverjir venjulegir demparar í honum fyrir. Hann lækkaði líka aðeins við þetta ... mun flottari lækkun en var í honum fyrir.
Núna er bara hægt að vera með tvo farþega í bílnum, þar af einn léttan aftur í... verð að fræðast aðeins meira um svona brettafix, þori varla að gera þetta sjálfur (kannski duga bara aðeins mjórri dekk?)
Skipti líka um vatnskassa þar sem hinn var farinn að leka...
Ég keypti líka fínan massa (G3 minnir mig) og prófaði að massa smá með svona buffer-vél. Það kom ágætlega út miðað við reynslu og græjur og sumar rispur fóru, þarf bara að redda mér einhverri alvöru mössunarvél og fikta mig áfram...
Og ég endaði á því að kaupa helvítis nýru, Hrói gat því miður ekki reddað þeim...
Svo er ég að pæla að finna M3 spegla næst...festidæmið á speglunum sem eru á er byrjað að flagna og orðið ljótt ... mig langaði líka í rauð og hvít afturljós en ég er smá hrifin að þessum orange sem eru. Annars verður þessum lagt í vetur, og vonandi, mun ég þora að fara í M50 manifold-dæmið...Samt best að vera ekki með e-r yfirlýsingar
og já...veit einhver hvernig er best að laga móðu í fkn inpro ljósum?
Lélegar myndir eftir ísetningu og smá bón:
Varð að taka mynd af þessari mynd sem einhver skoskur auglýsingateiknari gerði.