Page 1 of 1

Bíllinn minn,E46 320i

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:14
by Stefan325i
Ég hef ekki verið mikið á kraftinum síðastliðið ár en hérna er bíllinn minn og konunar.

E46 320i árgerð 2000.
Búnaður:
Leður (grátt)
Topplúga
Xenon
Rafmagn í hliðarrúðum frammí, speglum og topplúgu
18" felgur.
MSDesign bodykit (mjög smekklegt kit)
Efri og neðri spoiler.
Beinskiptur
Og eitthvað fleira
Lækaður 50/20

Mjög skemtilegur bíll.



Image

Image

Image

Image

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:22
by Aron Andrew
Nei, langt síðan maður hefur séð þig!

Enginn smá munur á bílnum svona lækkuðum, og felgurnar fljótar að venjast!

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:47
by DABBI SIG
Virkilega flott og smekklegt kitt. Tilviljun að ég var akkurat að sortera einhvern RISA bílablaðabúnka hjá mér í gær og þar var gamalt sona MS-design blað og þar sá ég akkurat nákvæmlega sama kit!! Fannst það mjög smekklegt og svo eru þetta líka sömu felgurnar og lip-spoiler.
Kemur VEL út...hvað erum við að tala um í $$$ fyrir svona með spoilerum? Hvar nældirðu þér í þetta.

Kv. Dabbinn

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:16
by Aron Fridrik
geggjaður bíll Stebbi.. ekki komið nema 6 mán síðan að þú keyptir hann þannig að þú ert ekkert að draga þetta of lengi :lol:

merkilega smekklegt kitt alveg.. passa alveg gífurlega vel við línurnar í bílnum..
8)

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:59
by Stefan325i
DABBI SIG wrote:Virkilega flott og smekklegt kitt. Tilviljun að ég var akkurat að sortera einhvern RISA bílablaðabúnka hjá mér í gær og þar var gamalt sona MS-design blað og þar sá ég akkurat nákvæmlega sama kit!! Fannst það mjög smekklegt og svo eru þetta líka sömu felgurnar og lip-spoiler.
Kemur VEL út...hvað erum við að tala um í $$$ fyrir svona með spoilerum? Hvar nældirðu þér í þetta.

Kv. Dabbinn



Þetta kit og spoilerar voru settir á bílinn af fyrsta eiganda og ásamt lækkunar gormum og felgunum , þannig að billinn er búinn að vera svona í 7 ár. Það var reyndar búið að setja orginal gormana í hann aftur. Ég auðvitað setti lækkunar gormana aftur í bíllinn.
Hann er ótrúlega rétt lækkaður og þessar felgur fara honum ótrúlega vel, ég var ekkert svo hrifinn af þeim til að byrja með en þær venjast mjög vel.

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 23:18
by sh4rk
Virkilega smekklegur bíll Stebbi bara flottur

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 23:19
by Knud
Virkilega fallegur bíll, kittið kemur mjög vel út, felgurnar eru svolítið öðruvísi.. En maður þyrfti að sjá þær í eigin persónu til að geta myndað sér betri skoðun á því

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 23:43
by gstuning
þær virka best á ferð, annars virðast þær alltaf skrýtnar þegar þær eru stopp.

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 23:59
by HelgiPalli
Sérlega flottur E46, lækkunin alveg smellpassar

PostPosted: Tue 30. Oct 2007 02:27
by bjahja
Þetta er geggjaður E46, fyrst fannst mér felgurnar ekki kúl en þær eru flottari með berum augum og ég mér finnst þær bara orðnar helvíti töff.
Þær eru samt BARA í lagi á ferðinni 8) 8)

PostPosted: Thu 06. Dec 2007 23:41
by Stefan325i