bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E30 v8 project - LW flywheel
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=23895
Page 1 of 124

Author:  Einarsss [ Sat 25. Aug 2007 16:02 ]
Post subject:  E30 v8 project - LW flywheel

Ég vill kynna til sögunnar E30 325 1989 eða öllu heldur ætti hann að vera 1991 árg þar sem hann fór á götuna þá. Hlynurst átti þennan bíl og flutti hann inn árið 2004 held ég.
Búið er að skipta um fjöðrun í bílnum og er hann með Koni sport og IE stage III gorma ásamt e46 m3 afturdemparafóðringum, poly subframe fóðringum, z3 skiptiarm (shortshifter í e30).

Fór uppá braut í gærkvöldi og verð að segja að það var algjör snilld, Vélin togar alveg þokkalega og skilar sínu afli vel miðað við m20b25 8), Virkilega gaman að keyra bílinn so far og á gott dempara/gormakombo hlut þar á :)

Bíllinn sjálfur er með AC schnitzer kitti og felgum, sportstýri(ekki viss hvað þetta heitir?), topplúgu, stóru aksturtölvunni, leðruðum hurðarspjöldum og einhverjum græjum með magazíni.

Hann er mjög krúttlegur (segir konan).

Ég get auðvitað ekki átt e30 án þess að modda hann þannig að ég er að fara panta strutbrace, poly fóðringar í: mótorpúða, gírkassa og afturspyrnur ásamt 25/22mm stillanlegu swaybar kitti og allt frá bmw2002.com ... þetta verður pantað sennilega í kvöld (ef einhver vill vera með í pöntun þá senda mér PM og borga fyrirfram)

Ég er líka búinn að fjárfesta í splunkunýjum bottlecaps og 14" dekkjum til að drepa uppá braut verður gerð góð tilraun til þess á morgun. :twisted:

Tek nýrri myndir í kvöld eftir að ég er búinn að bóna með meguiars 8)

Hérna eru nokkrar myndir frá Hlyni

Image

Image

Image

Author:  Djofullinn [ Sat 25. Aug 2007 16:06 ]
Post subject: 

verulega fallegur bíll! Til hamingju með kaupin 8)

Author:  HPH [ Sat 25. Aug 2007 16:06 ]
Post subject: 

Þessi er fock geðveikt svalur á lista yfir topp5 svölustu E30 á íslandi. :clap:

Author:  Mazi! [ Sat 25. Aug 2007 16:38 ]
Post subject: 

Geggjaður! mér langarí :(

Author:  Kristján Einar [ Sat 25. Aug 2007 17:22 ]
Post subject: 

þér leiddist ekki í bleitunni uppá braut í gær :)

Author:  aronjarl [ Sat 25. Aug 2007 19:14 ]
Post subject: 

Huggulegur bíll.

læst drif ?


Quote:
Þessi er fock geðveikt svalur á lista yfir topp5 svölustu E30 á íslandi.





Væri nú gaman að fá listan yfir þá bíla.


Til lukku með þennan.!

Author:  arnibjorn [ Sat 25. Aug 2007 19:34 ]
Post subject: 

aronjarl wrote:
læst drif ?


Jébb 8)

Author:  Einarsss [ Sat 25. Aug 2007 20:12 ]
Post subject: 

aronjarl wrote:
læst drif ?



Að sjálfsögðu, annars væri það í pöntun ef það væri ekki :lol:

Author:  JOGA [ Sat 25. Aug 2007 20:15 ]
Post subject: 

Þetta er helsvalur bíll. Þessi litur er alveg að gera sig 8)

Til hamingju og skemmtu þér vel!

Author:  aronjarl [ Sat 25. Aug 2007 20:21 ]
Post subject: 

ok flottur.

þá er þetta nær lagi.!


búin að vita af þessum bíl síðan Hlynur keypti, aldreið skoðað hann.

Author:  ömmudriver [ Sat 25. Aug 2007 20:24 ]
Post subject: 

Fallegur þessi og til hamingju með hann :)

Author:  Einarsss [ Sat 25. Aug 2007 20:27 ]
Post subject: 

aronjarl wrote:
ok flottur.

þá er þetta nær lagi.!


búin að vita af þessum bíl síðan Hlynur keypti, aldreið skoðað hann.



jebb ég hafði aldrei séð hann áður en hef altaf verið mjög spenntur fyrir að sjá hann. Þannig að ég var ekki lengi að ákveða mig eftir fyrsta rúntinn.

Author:  Einarsss [ Sun 26. Aug 2007 00:08 ]
Post subject: 

Meguiars er undradót 8) crappy myndir en þó nýjar ... möst að redda sér þrífót og góðri linsu.

Image

Image

Image

Image

Author:  Lilja [ Sun 26. Aug 2007 00:12 ]
Post subject: 

:loveit:

Author:  Róbert-BMW [ Sun 26. Aug 2007 00:38 ]
Post subject: 

Rosarlega fallegur...

Til hamíngju með nýja bílinn

Page 1 of 124 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/