Page 1 of 1

Fyrsti Bimminn

PostPosted: Tue 24. Jul 2007 01:33
by flatbeat
Var að fjárfesta í fyrsta Bimmanum mínum, og verð að segja að ég er hel sáttur með kaupin 8)

Bíllinn er E30 316i árgerð 1990 og keyrður 144þús frá upphafi. Örfáir eigendur og varla neitt teljanlegt ryð nema aðallega í sílsunum. Hann mun byrja að sjást á götunni innan skamms en áður en að því kemur ætla ég að gera hann jafnvel sætari :D

Það sem er að honum er að bensínleiðslan er öll götótt og því hauglekur bensíni af bílnum. Fjárfest verður í nýrri bensíndælu fljótlega og skipt um allt heila klabbið.

Einnig virðist geymirinn missa hleðsluna og því er hann alltaf rafmagnslaus eftir að hafa staðið í einhvern tíma. Allt þetta verður lagað en ég geri ráð fyrir að bíllinn mun fara að sjást reglulega á götunni fyrir enda ágúst 8)

Image
Image
Image
Image
Image
Image

PostPosted: Tue 24. Jul 2007 01:52
by srr
Til hamingju með gripinn.

Mæli með nýrri númeraplötu að framan og nýjum felgum :wink:

PostPosted: Tue 24. Jul 2007 02:05
by gunnar
Þessi virðist nú bara vera frekar heillegur.

Til hamingju 8)

PostPosted: Wed 25. Jul 2007 02:52
by BMW_Owner
vel nettur ekki var minn fyrsti með rafmagn í rúðum :cry:

til hamingju með nýja bílinn

PostPosted: Thu 26. Jul 2007 23:39
by ömmudriver
Hey ok þessi er á kraftinum, ég sé hann nefnilega á hverjum degi.

PostPosted: Fri 27. Jul 2007 00:09
by flatbeat
ömmudriver wrote:Hey ok þessi er á kraftinum, ég sé hann nefnilega á hverjum degi.


Meinarðu bara parkeruðum fyrir utan Bernhard? Því hann stendur bara þar núna bíðandi nýju bensíndælunnar sinnar :lol: