Page 1 of 2

topless í sólini.. alpina

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 00:34
by íbbi_
við félagarnir duttum nú nokkurnvegin í lukkupottin þegar annar okkar var spurður hvort við vildum ekki fara norður á bíl kunningja hins sama svo hann gæti verið með á sýninguni sem var fyrr í dag,

bíllin er að gerðini Alpina B3 cabrio E36, 10/93 og hefur nú verið nefdur hérna á spjallinu, við vorum náttúrulega alveg til í að eyða bíladögunum á þessum bíl og því var hann sóttur á höfðahöllina, fylltur af 98 og brennt á bíladaga,

ég var BARA forvitin hvernig mér líkaði við þennan bíl, en alpina er eitthvað sem maður kemst ekki í á hverjum degi hérna heima,

bíllin sem slíkur sker sig nú ekki mikið frá bara venjulegum 325 cabrio, eina sem maur sér á útlitinu eru felgurnar, og svo er hann verulega lágur, hann kemur samt fljótt upp um sig þegar maður sest inn í hann og sér alpina stýrið, fjólubláu mælana, "steðjaplötuna" á mælaborðinu og flr,

fyrst þegar maður sest undir stýri virðist bíllin ekki svo frábrugðin í akstri heldur, hljóðið er aðeins dimmara en flest voðalega normal bara, en leið og maður er búin að keyra hann smá spotta fer fljótt að koma í ljós munurinn á þessum bíl og stadart 325, fjöðrunin í bílnum er algjör snilld, hann er svo lágur að maður er með framstuðaran í nippinu á hverjum kant og hraðahindrun, bíllin hallast ekkert í beygjum og svarar ofsalega vel og agressíft, en samt er hann dúnmjúkur í akstri, við erum mikið búnir að klóra okkur í hausnum yfir því hvernig bíllin getur fjaðrað sona vel en samt verið með kantin á dekkjunum uppundir brettabogunum,

vélin í bílnum er svo ekkert minni snilld, þetta er að sjálfsögðu engin m3, en vélin er alpina own's 3.0l m50, slétt 250hö, bíllin vinnur mjög skemmtilega, togar mjög vel og er ekkert að kippa sér uppvið að maður sé ekkert að skipta niður í brekkum, svo ef maður vill leika sér aðeins þá er bara að setja bílin í um 4þús snúninga og þá mokvinnur hann í öllum gírum og hljóðið úr mótornum í þenslu er algert listaverk,

við keyrðum bílin eflaust ekki undir 1500km við flestar aðstæður, í steikjandi sól með blæjuna niðri að krúsa, í grenjandi rigningu og roki, innanbæjar og utanbæjar,
við vorum báðir alveg "stunned" yfir því hvað þessi að verða 14 ára gamli bimmi skemmti okkur vel og setti skemtilegan brag á ferðina, þegar við vorum að rúlla í bæinn rétt í þessum vorum við ennþá að´dásama hann við hvorn annan.. og við vorum báðir sammála um það að þetta er bíll sem maður væri til í að eiga,

kom mér á óvart að á leiðini norður keyrt mjög löglega var bíllin að eyða 7.2l, eftir að hafa rúntað svo yfir alla helgina innanbæjar á ak var eyðslan komin upp í 9.4l, og eftir að við brenndum í bæinn aftur og.. keyrðum þetta bmw style var hún rétt að skríða up í 10l, við tókum bensín í rvk á miðvikudaginn og tókum ekki bensín aftur fyrr á akueyri klukkan rúmlega 7 í kvöld áður en við lögðum af stað til rvk aftur,

myndavélin min beilaði á mér fyrir norðan, þannig að ég læt nokkrar lásí símamyndir duga, það eru nú eflaust til fullt af bílnum frá sýninguni í dag,

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 01:33
by siggik1
mig langar í hann :(, var myndarlegur á sýningunni

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 01:34
by gunnar
Ohhh mér langar svo í þennan bíl :x :x

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 01:47
by íbbi_
sá sem kauðir þennan bíl verður ekki svikin, þetta er GOTT eintak vægast sagt, rétt skriðin yfir 100þús km, og er eins og nýr í akstri, stýri skipting pedalar og allir slitfletir eru alveg eins og í nýlegum bíl, og það er LANGT síðan ég rakst á E36 sem er ennþá þannig, hurðaspjödlin í honum eru meirasegja alveg stráheil

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 01:54
by siggik1
verst að þetta er svona gamallt bíll, ekkert lán :)

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 02:04
by íbbi_
bankalán bara

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 02:47
by íbbi_
Image

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 03:05
by Angelic0-
Verulega smekklegur bíll :)

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 08:50
by Danni
Sjúklega flottur bíll! Sá hann nokkrum sinnum á ferðinni fyrir norðan og svo á sýningunni og ég slefaði í hvert skipti :drool:

Image
Image
Image
Image

Horfði svo mikið á bílinn þegar ég var að mynda hann að ég tók ekki eftir slökkvitækinu sem læddist inná eina myndina :oops:

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 10:33
by íbbi_
þetta er nú svosum nokkuð öfligt, 6.0 í 62 mílur og 21sec í 124 mílur

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 12:21
by Kristján Einar
amagad ég var á gistiheimili með íbba :oops: :oops:

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 12:23
by bjornvil
Flottur, en djöfull þarf að skipta út afturljósunum á honum. Þau eyðileggja bílinn algerlega fyrir mér með svona appelsínugult :(

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 12:55
by bebecar
bjornvil wrote:Flottur, en djöfull þarf að skipta út afturljósunum á honum. Þau eyðileggja bílinn algerlega fyrir mér með svona appelsínugult :(
:slap:

:lol:

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 14:14
by bjornvil
bebecar wrote:
bjornvil wrote:Flottur, en djöfull þarf að skipta út afturljósunum á honum. Þau eyðileggja bílinn algerlega fyrir mér með svona appelsínugult :(
:slap:

:lol:


Haha, þú vilt þetta svona old school er það ekki? :D

Þá væri nú skárra að vera með appelsínugult allan hringinn. Eða hvítt allan hringinn.

Ekki svona í bland :)

PostPosted: Mon 18. Jun 2007 22:12
by BrynjarÖgm
sat í þessum smá hring... mig langar :cry: