Kominn tími til að sýna ykkur nýjasta gripinn. Þessi bíll kom með skipi á þriðjudag fyrir viku. Var síðan leystur úr tolli síðasta föstudag:
BMW 530d Touring
Sapphire Black Metallic
M Sportpaket
2/2003
Hér er svo COPY/PASTE svona af þessu helsta í búnaðinum:  
 
201 	RAPE METHYL ESTER VERSION (RME) 
210 	DYNAMIC STABILITY CONTROL (DSC) 
216 	SERVOTRONIC 
227 	SP/SUSPENSION W SELF-LEVELING SUSPENSION 
249 	MULTI-FUNCTION FOR STEERING WHEEL 
261 	SIDE AIRBAG FOR REAR PASSENGERS 
302 	ALARM SYSTEM 
320 	MODEL DESIGNATION, DELETION 
337 	M SPORTS PACKAGE 
339 	SATIN CHROME 
352 	DOUBLE GLAZING 
354 	GREEN STRIPE WINDSCREEN 
386 	ROOF RAIL 
403 	GLAS ROOF, ELECTRIC 
423 	FLOOR MATS, VELOUR 
428 	WARNING TRIANGLE 
430 	INT/EXT RR VW MIRROR W AUT ANTI-DAZZLE 
434 	INTERIOR TRIM 
441 	SMOKERS PACKAGE 
459 	SEAT ADJUSTM., ELECTR. W MEMORY F DRIVER 
481 	SPORT SEATS F DRIVER/FRONT PASSENGER 
494 	SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER 
500 	HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING 
508 	PARK DISTANCE CONTROL (PDC) 
521 	RAIN SENSOR 
522 	XENON LIGHT 
534 	AUTOMATIC AIR CONDITIONING 
536 	AUXILIARY HEATING 
601 	TV FUNCTION 
609 	NAVIGATION SYSTEM PROFESSIONAL 
620 	VOICE INPUT SYSTEM 
644 	PREP. FOR. MOB. PH. BLUET. INTERF. 
672 	CD CHANGER BMW FOR 6 CDS 
677 	HIFI SYSTEM PROFESSIONAL 
710 	M LEATHER STEERING WHEEL 
715 	M AERODYNAMICS PACKAGE 
775 	INDIVIDUAL ROOF-LINING ANTHRACITE 
785 	WHITE DIRECTION INDICATOR LIGHTS 
788 	M LT/ALY WHEELS 
915 	BODY SKIN CONSERVATION, DELETION 
970 	BUISNESS PACKAGE 
202 	STEPTRONIC 
470 	CHILD SEAT ISOFIX ATTACHMENT 
520 	FOGLIGHTS 
548 	SPEEDOMETER WITH KILOMETER READING 
851 	LANGUAGE VERSION GERMAN 
220 	SELF-LEVELING SUSPENSION 
431 	INTERIOR RR VW MIRROR W AUT ANTI-DAZZLE 
473 	ARMREST, FRONT 
555 	ON-BOARD COMPUTER 
Ég hafði samband við Georg (Uranus) í mars til að fá hans hjálp við að sækja bíl. Það hafa margir bílar verið skoðaðir og oft misstum við af bílum sem seldust rétt áður en Georg hafði samband út. En biðin hefur borgað sig. Þessi bíll er eins og tölvugerð mynd af því hvernig bíl mig langaði í. 
Það voru nokkur atriði sem voru nánast skilyrði:
Sjálfskiptur, rafmagn í sætum m/minni, M-Aerodynamic, glertopplúga, gott hljóðkerfi, leður, dökk innrétting, TV/Navi 16:9 og allt fleira var vel þegið  
 
Þessi bíll er chiptuned af AC Schnitzer og er 218 hestöfl og togar 480Nm. Aflið er MJÖG skemmtilegt í bílnum. Hann er keyrður 121.000km og er að sjálfsögðu óaðfinnanlegur í akstri.
Það gekk eitthvað illa að UP-loada myndum sem ég var búinn að taka en nokkrar komu þó í gegn en engin af innréttingunni þó. Það er svört leður innrétting með ál-lista. Sport sæti með rafmagni og minni og M-leður stýri. Svo eru M-listar í hurðarfölsunum. Toppurinn að innan í bílnum er Individual, þ.e.a.s anthrazit svart. Kemur mjög vel út.
Bíllinn er með DigitalSoundPaket þó að einhverja hluta vegna það komi ekki fram í "fæðingarvottorðinu". Það eru 10 hátalarar sem gefa frábæran hljóm og einhverjum "effecta" pakka sem er í raun algjörlega ónauðsynlegur að mínu mati. En DSP í samspili við auka-hljóðeinangrunina sem tvöfalt gler gefur er stórkostlegt þegar verið er að krúsa úti á þjóðvegum með góða tónlist.  Ekkert nema vegurinn framundan og tónlist í samspili við frábæra fjöðrun og aksturseiginleika.
Lakkið er auðvitað eins og nýtt enda ekki mjög gamall bíll. Það eru auðvitað nokkrar litlar rispur á honum. Þær voru samt allar merktar með appelsínugulum límmiðum af BMW-umboðinu sem hann var keyptur af. Það var mjög gaman líka hvað bíllinn var hreinn og góður þegar ég fékk hann. Greinilega nýbónaður og allur eins og nýr að innan og utan og öllum  fölsum og hvar sem maður leitaði.
Georg á mikið hrós skilið fyrir sínu vinnu við þetta. Allt sem sagt var stóðst og öll pappírsvinna var óaðfinnanleg. Hann stoppaði mig nokkrum sinnum af þegar ég taldi mig hafa fundið rétta bílinn og þar trúi ég að hans reynsla nýtist vel. Mjög naskur að sjá út hvaða bílar eru "go" og hvaða ekki. Hann fær full meðmæli frá mér til hverra þeirra sem eru að velta fyrir sér að kaupa sér bíl að utan.