Page 1 of 3
Nýr BMW 320da í heimreiðinna kl: 15:00 á morgun

Posted:
Wed 25. Apr 2007 23:47
by 2002tii
Já 3ji bimmin minn, nýr 320d bættist við í dag.
Fyrir á ég M5 E34 MY1994 & 2002tii MY1974
Kveðja kraftsfélagar, Óskar Haukur, Njarðvík.

Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:02
by steini
semsagt E90?
þessi m5 sem þú átt er hann á götunni? man ekki eftir að hafa séð svoleiðis á suðurnesjanum semsagt E34


Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:10
by Arnarf
Til hamingju með það!
Endilega koma með fullt af myndum, sérstaklega af þessum fjólubláa!


Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:11
by 2002tii
Diesellinn er silber metallic - ljósgrátt leður inni - þ.e. sama litacombo og á hárinu á mér. M5inn er inni í skúr á Bakkafirði - kemur hingað í júní - ég flutti hingað í jan til Njarðvíkur (innri). M5 inn er ekki á skrá á veturna, set hann alltaf síðastliðin 7 ár á skrá í maí. Kominn með M/// fiðring - 320d minnti mig á togið í M-inum.

Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:18
by 2002tii
Takk fyrir hamingjuóskirnar - félagar, ég er í skýjunum, fór í bæinn til að kaupa MY2002 - 2004 af E46 - en ekkert til að þeim. Fór því í B&L - kaffið er svo gott hjá þeim !!!! - og kláraði dæmið. Nýr 3ristur.....
Sama gerðist þegar M5inn var keyptur - var á leið í Kópavog - drepast úr kaffileysi - vissi af góðu kaffi á Nýbílaveginum - fór út með E34M5 daytona violett MY94 - þetta var á 5tugs afmælisdaginn minn.

Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:43
by Aron Andrew
Til hamingju með þetta
Ég hlakka til að prufa það einhvertíman í framtíðinni að kaupa mér bíl úr kassanum


Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:52
by zazou
Til lukku, býð þér einhvern tíman í kaffi


Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:57
by Aron Fridrik
glæsilegt óskar.. þú verður að sýna mér þennan

og ///M5 að sjálfsögðu.. tala nú ekki um ef ég verð að vinna hjá ratsjá í sumar


Posted:
Thu 26. Apr 2007 00:59
by 2002tii
T A K K ! - T A K K félagar
Ég er svo spenntur, ég á 3 bimma, M5 í skúr á Bakkafirði, 2002tii í skúr á Akureyri (ekki ökuhæfur þ. e. bíllinn), 320d í B&L "skúrnum" og ég sit einn í nýja húsinu mínu við Kópubraut, með gamla LandCruserinn minn fyrir utan, en engan Bimma. 320d var eiginlega keyptur handa konunni minni, en hún fær "okkar" ekki notið þar sem hún er á Bakkafirði. úfff !

Posted:
Thu 26. Apr 2007 01:03
by 2002tii
Takk Aron Friðrik, kíki á ykkur feðga annaðkvöld ef ég mögulega get á "grútarlampanum" ein og einhverjir kalla þetta.

Posted:
Thu 26. Apr 2007 01:16
by Aron Fridrik
lýst vel á það


Posted:
Thu 26. Apr 2007 01:20
by 2002tii
" S T A R T - S T O P " takki, ekki ólíkt tracktor eða ljósavél, enda eru það traust verkfæri, þetta venst býst ég við. Razer sharp stýri og bremsur, (ekki "hæjur") eins og ég kalla það á LCruiser90. Millihröðunin er undraverð með þessum litla mótor....
P.S. áfram X - Mótor

Posted:
Thu 26. Apr 2007 01:21
by Danni
Flottur! Hlakka til að sjá þennan og hlakka ennþá meira til að sjá E34 M5 þegar þú viðrar hann í sumar. Þú munt viðra hann í sumar er það ekki?

Posted:
Thu 26. Apr 2007 01:30
by 2002tii
Jú, takk fyrir. M'inn verður viðraður í sumar, synd að segja frá því að hann var aldrei settur á skrá síðastliðið sumar. Var að byggja 54fm hreiður (bílskúr)með syni mímum undir Bimman hans og Mini 1.3i cooper.
Ath! fyrir vikið voru númerin af honum hökkuð og ég þurfti að kaupa ný númer - þeir geyma þau mest í eitt ár-ooooffffbeldi.

Posted:
Thu 26. Apr 2007 22:20
by Aron Fridrik
kallinn kíkti til mín í heimsókn á áðan..
og þetta virkar ekkert smá.. alveg svakalega skemmtilegur mótor

.. úff.. alveg svakalega fallegur bíll.. enn og aftur til hamingju óskar..