Page 1 of 3

BMW E23 735

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 13:14
by Knud
Ég fór á laugardaginn og sótti draumadósina.
Image

Stal þessari mynd frá Sæma

Um er að ræða upprunalegan '84 módel af 745, sem er 3.5 turbo.
Reyndar er sú vél núna í sexunni hans Sæma og hjartað er "einungis" 3.5 non turbo. Ástand á boddý er mjög gott, ryð lítið sem ekkert. Eina sem er ryðgað er farþegahurðin frammí, en það fylgdi önnur góð með (sem komst í skottið!)

Það er nánast fáránlegt hvað er mikið af aukabúnaði í bílnum sem dæmi má nefna

#Rafdrifnar rúður
#Rafdrifin sæti
#Fjarstýrt farþegasæti að framan úr miðjustokk aftur í
#Stýring fyrir útvarp úr miðjustokk aftur í
#Læst drif
#Aksturstölva
#Gardína í afturrúðu
#Buffaló leðursæti

Þessi bíll þarfnast reyndar smá umhugsunar, sem dæmi má nefna að glæran er farinn að flagna aðeins hér og þar.

Það sem stendur til fyrst er að selja E34 540 svo ég geti sópað seðlum í þennan

Það á að taka þennan í gegn í sumar og hafa gaman að.
Skal reyna að henda inn myndum og koma með smá upplýsingar um hvað er í gangi

kveðja,
Einn trylltur E23 eigandi

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 14:05
by srr
Very nice 8) 8)

Var með augastað á þessum áður en ég fór út í E28 ævintýrið....

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 14:18
by Angelic0-
Til hamingju með þennan :)

Hlakka til að sjá þennan í góðum gír ;)

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 14:23
by siggik1
úú nice og flottur aukabúnaður, e34 540 hljómar spennandi

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 14:41
by Knud
siggik1 wrote:úú nice og flottur aukabúnaður, e34 540 hljómar spennandi


Takk takk strákar, er bara sáttur við þennan langaði alltaf í svolítið oldschool BMW með "shark" framenda sem mér finnst bara fallegur.

Þetta er víst Executive útgáfa sem var með meiri aukabúnað sem kom í þessum bílum.

540 verður til sölu í sumar þegar það verður búið að kíkja á hann, var að brenna svolítið olíu, gekk samt fínt og vann vel. Spurning hvað er að hrjá greyið, datt í hug ventlaþéttingar án þess að fullyrða neitt. En ef einhverjir hafa áhuga mega þeir senda mér EP..

En nóg um það, get ekki beðið eftir að fá þennan á götuna aftur 8)

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 17:07
by Saxi
Til hamingju með þennan! Alltaf gaman að sjá svona höfðingja á ferðinni.

Fyrsti BMWinn sem ég keyrði var hvítur E23 745. Það má segja að eftir að prufa kickdownið einusinni hafi maður verið fallinn. Minnir að Sæmi hafi keypt þann bíl.

E23

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 18:18
by Þórður Helgason
Til hamingju. Gaman að sjá E23 aftur í slaginn.

ÞH

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 20:06
by ömmudriver
Já til hamingju með gripinn :P Hlakka til að sjá hann á götunni.

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 20:32
by Knud
Takk piltar.

Vonum bara að þetta gangi allt nokkuð vel fyrir sig í sumar, spurning hvort það náist ekki að gluða smá lakki yfir hann og koma honum í umferð með turbo powah!

Annars veit ég bara að sæmi keypti hvíta 745, veit reyndar ekkert hvað varð um hann

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 22:17
by sh4rk
Til hamingju með gripinn, það verður gaman að sjá þennann aftur í umferð. Það munaði ekki miklu að ég hefði keypt þennan af Sæma

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 22:26
by ömmudriver
sh4rk wrote:Til hamingju með gripinn, það verður gaman að sjá þennann aftur í umferð. Það munaði ekki miklu að ég hefði keypt þennan af Sæma


Hverju munaði??

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 22:28
by sh4rk
Bara einni vél

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 22:33
by ömmudriver
sh4rk wrote:Bara einni vél


Já ok :lol:

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 22:44
by srr
sh4rk wrote:Bara einni vél

Meinaru að ef 4,5 hefði fylgt með bílnum? :wink:

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 22:52
by hlynurst
srr wrote:
sh4rk wrote:Bara einni vél

Meinaru að ef 4,5 hefði fylgt með bílnum? :wink:


3,5 turbo?