bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E30 -316i https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20747 |
Page 1 of 1 |
Author: | pacey [ Wed 07. Mar 2007 18:01 ] |
Post subject: | E30 -316i |
Sælir félagar,, Þá hefur maður loksins kjark til að skrá sig, eftir að keypt mér minn fyrsta BMW. Bílinn er af gerðinni E30 -316i og er 1990 árgerð. Hann er rétt tilkeyrður eða aðeins 85.XXXkm. Eigandasaga bílsins er stutt, en því um betri. Fyrstu 6 mán. í lífi hans var hann í eigu hins ævaforna fótboltafélags 1811 München og var víst notaður þar til að skutla leikmönnum á völlinn (en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það). Svo keypti fyrrverandi eigandi bílinn handa dóttur sinni sem var við nám í Skotlandi (veit ekki hvort hann stoppaði þar e-ð að ráði). En var svo fluttur til landsins stuttu síðar og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu hér á landi í 16 ár. Fyrrum eigandi vottaði fyrir að þessi bíll hefði aldrei farið út fyrir höfuðborgarsvæðið á þeim tíma. Fastanúmerið á honum er VR-980. Hann hefur fengið gott viðhald og alltaf verið skipt um það sem þurft hefur. Hann hefur mikið verið geymdur inni þannig hann hefur sloppið nokkuð við ryð þótt það sé e-ð sjáanlegt neðan á framhurðum bílsins. En ekkert sem ekki er hægt að kippa í liðinn. Tók þessar mjög lélegu myndir í flýti í gærkvöldi en ég lofa betri myndum fljótlega. http://i154.photobucket.com/albums/s263 ... 1173301996 http://i154.photobucket.com/albums/s263 ... 1173304179 Bíllinn er ekki á númerum þarna, en ég sótti þau í morgun og skellti þeim á. Planið til þess að byrja með er að koma honum í gegnum skoðun. Þarf að ég held að skipta um spindla og skoða e-ð annað smávægilegt. Svo er það lækkun, xenon (svezel ætlar vonandi að redda því), mössun og felgur. Og svo bara sjá hvað maður getur teygt veskið langt (fátækur námsmaður). Þessi bíll væri náttúrulega ideal í swap,, en maður lætur sig dreyma í bili. Góðar stundir |
Author: | arnibjorn [ Wed 07. Mar 2007 19:32 ] |
Post subject: | |
Blessaður Skorri ![]() Til hamingju með bílinn ![]() Er þetta bíllinn sem stóð alltaf úti í suðurhlíðunum? |
Author: | IceDev [ Wed 07. Mar 2007 19:34 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | Omar [ Wed 07. Mar 2007 19:52 ] |
Post subject: | |
Quote: Blessaður Skorri Wink
Til hamingju með bílinn Smile Er þetta bíllinn sem stóð alltaf úti í suðurhlíðunum? Jú! þetta er einmitt sá, var tekinn af númerum fyrir svona 2 mánuðum og skorri skellti bara miða á hann í seinustu viku og fekk hann í gær. |
Author: | arnibjorn [ Wed 07. Mar 2007 19:54 ] |
Post subject: | |
Omar wrote: Quote: Blessaður Skorri Wink Til hamingju með bílinn Smile Er þetta bíllinn sem stóð alltaf úti í suðurhlíðunum? Jú! þetta er einmitt sá, var tekinn af númerum fyrir svona 2 mánuðum og skorri skellti bara miða á hann í seinustu viku og fekk hann í gær. Næss... hef oft keyrt framhjá honum... langaði sjúklega mikið í þennan bíl ![]() Virðist vera alveg þokkalega heill ![]() |
Author: | Henbjon [ Thu 08. Mar 2007 00:08 ] |
Post subject: | |
Alltaf að bætast hingað fyrrum hlíðskælingar ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |