bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 385 of 423

Author:  fart [ Mon 28. Oct 2013 19:20 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Þetta lítur allavega ágætlega út, engir lekar.

Dálítið dúbíus að ég er búinn að setja rétt rúma 7lítra og rétt farinn að merkja kvarðann að neðan. Reyndar tæmdi ég mótorinn alveg, kæririnn var alveg tómur og að sjálfsögðu alveg galtómt olíusíuhús. Lét hann hitna áðan og þarf núna að mæla.

Vaders er ágætis sæti, en hliðarstuðningurinn er ekki mikill.

Það er 10-15 mín verk að skipta um sæti.
Recaro Pole Position eru frábær sportsæti og þau fara í þegar ég þarf.

Krakkarnir mínir 3 koma fyrst.

Btw fæ ekki X5 fyrr en í Mars, og konan verður á honum 99%ott

Author:  Fatandre [ Mon 28. Oct 2013 19:22 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

þannig að búrið fékk að fkjúka?

Author:  bimmer [ Mon 28. Oct 2013 19:22 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Notarðu sömu sleða undir sætin?

Author:  fart [ Mon 28. Oct 2013 19:24 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Fatandre wrote:
þannig að búrið fékk að fkjúka?


Ég er búinn að keyra með aftursæti í rúman mánuð. Það tekur mig c.a. klukkutíma að henda búrinu og 4ra punkta belltnum aftur í bílinn.

bimmer wrote:
Notarðu sömu sleða undir sætin?

Ég er með stillanlegan Recaro (sleða) bílstjóramegin og fastan Sparco farþegamegin fyrir Pole Position.

Author:  fart [ Tue 29. Oct 2013 08:44 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Keyrði 15km áðan, engir lekar (ennþá ;)) og hitinn var steady í 98-99°C síðustu 5km.

Maður verður að vona að þetta sé komið.

Færði í loftsíurnar á annan stað, þær eru meira í húddinu núna en samt fyrir framan eldgreinarnar. Gefur skemmtilegt hljóð þegar maður keyrir, sérstaklega þegar maður slær af :alien: .

Author:  Romeo [ Tue 29. Oct 2013 10:42 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

segðu okkur meira um x5inn :)

Author:  Fatandre [ Tue 29. Oct 2013 11:01 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Þetta er loksins allt að koma til. Kominn tími á það. Nú er það bara að hafa gaman af lífinu

Author:  fart [ Tue 29. Oct 2013 12:41 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Fatandre wrote:
Þetta er loksins allt að koma til. Kominn tími á það. Nú er það bara að hafa gaman af lífinu


Ég reyni að hafa gaman af lífinu, alltaf, og þessi bíll kemur því lítið við :D

En já, hann er orðinn meira og minna nýr.

Author:  fart [ Tue 29. Oct 2013 16:58 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Back to Basics.. 8)

Image

Author:  Fatandre [ Tue 29. Oct 2013 17:24 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Satt að segja þá er þetta kúl

Author:  íbbi_ [ Tue 29. Oct 2013 17:45 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

þetta er flott, mér finnst alvöru götubíll sem er græjaður til að éta flest annað í morgunmat mikið svalari en búraður bíll með körfustólum sem þarf að virka eins og hann gerir bara til að réttlæta hversu grófur hann er orðinn

Author:  fart [ Tue 29. Oct 2013 18:58 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

íbbi_ wrote:
þetta er flott, mér finnst alvöru götubíll sem er græjaður til að éta flest annað í morgunmat mikið svalari en búraður bíll með körfustólum sem þarf að virka eins og hann gerir bara til að réttlæta hversu grófur hann er orðinn

Allt hefur sinn tilgang, ég er nett að fíla OEMið núna, fyrir utan stóraukið notagildi

Author:  gardara [ Wed 30. Oct 2013 14:31 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Þar sem menn eru farnir back to basics, værirðu þá ekki til í slétt skipti á þínu krami og mínu? :mrgreen:

Author:  fart [ Wed 30. Oct 2013 16:25 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

gardara wrote:
Þar sem menn eru farnir back to basics, værirðu þá ekki til í slétt skipti á þínu krami og mínu? :mrgreen:


Ekki alveg :D en ef þú borgar eitthvað á milli getum við rætt það.

Fór í langan bíltúr áðan, olíuhitinn perfect.

Það er dálítið mikið öðruvísi að keyra bílinn með Vaders heldur en Recaro. Mikið meiri lúxus fílingur, mikið auðveldara að umgangast bílinn en á móti fær maður ekki eins mikið út úr akstrinum og finnur mun minna fyrir bílnum.

Author:  fart [ Sat 09. Nov 2013 09:27 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Þá held ég bara að bíllinn sé orðinn eins mechanically góður og hann getur orðið. Smáhlutir sem mig langar að laga eru t.d. að safna fyrir nýju coiloverkerfi þar sem að mitt er orðið frekar gamalt, en það er meira framtíðarmúsík.

Í millitíðinni ætla ég að láta hjólastilla, enda mikið búið að skrúfa í sundur síðan það var gert síðast.

Hinsvegar þarf ég núna að fara að skoða smávægileg útlitsvandamál, og það sem liggur mest á er þverbitinn milli afturljósanna en það er týpískt E36 vandamál.
Hann er farinn að hlaupa aðeins upp, líklega vegna þess að gúmílistinn er aðeins rifinn.

Ég á professional sprautukönnu og lakk, og því engin spurning að ég laga þetta bara sjálfur. Sker þetta bara á samskeitunum við afturbrettin. Eini pirringurinn er að bíllinn hefur væntanlega verið málaður einhverntíman, og liturinn sem hann var síðan málaður með þegar ég klessti hann (húdd, hægra frambretti, grillbiti og framstuðari) er allt annar.. og því líklegt að sá litur sem ég mála bitann með passi ekki alveg.

Image

Image

Image

Image

Page 385 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/