bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 377 of 423

Author:  fart [ Tue 07. May 2013 22:31 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Bónhomm bls 376

Fatandre wrote:
Hvernig ertu að fíla UUC dæmið fyrir shifterinn?

Hef náttúrulega ekki prufað það ennþá, en það pirraði mig að ég þurfti að modda glænýjan OEM BMW shifter til að koma honum í UUC DSSR dótið.....

Author:  fart [ Sat 11. May 2013 12:40 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Bónhomm bls 376

Dótið komið frá Svíþjóð, illa spenntur að fara í samsetningu og test-drive. :o

Author:  fart [ Mon 20. May 2013 17:12 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Ready (again)

Þá er búið að raða saman. Nýtt í þessu roundi er endurhönnun á downpipes, krumpulakk á vélarlokinu, 3.15 Drifið komið aftur, endurbyggt Vanos, UUC DSSR (tvöföld skiptistöng), breytt olíuöndun, Vírofin kúplingsslanga, Ný sveifaráspakkdós, og svo í raun 420G+UUC Twin Disk.

Svo er lakkið náttúrulega nýmassað, og glansar helvíti flott.

Ég ætlaði að nota E46 330d short shifter, en það rakst í Guiboið ef ég parað hann við UUC DSSR, þannig að ég er að nota OEM shifterinn í dag með UUC DSSR.

Tók rönn áðan og þetta virkar solid fyrir utan að Vanosið var ekki að taka við sér rétt. Kíki á það seinna. Nú er bara að vona að þetta hangi lekalaust.

Image

Image

Image

Author:  Angelic0- [ Mon 20. May 2013 17:16 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Bónhomm bls 376

Flottur Sveinn, as always :!:

Author:  fart [ Tue 21. May 2013 07:04 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Takk fyrir það,

Virkilega notaleg tilfinning að keyra á honum í vinnuna í morgun :thup:

Author:  Fatandre [ Tue 21. May 2013 22:29 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Þessi er svo klárlega málið.
Koma svo. Ég vil fá meira info um hvernig þetta UUC dót er að virka

Author:  fart [ Wed 22. May 2013 06:34 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Fatandre wrote:
Þessi er svo klárlega málið.
Koma svo. Ég vil fá meira info um hvernig þetta UUC dót er að virka

UUC dótið er frekar nice, ofboðslega ljúft í akstri og heldur mínu afli.

Annars var ég að sjá sprungu í aftara manifoldinu við efri vinstri boltann á cylinder 5... :thdown: :thdown: :thdown:
Bara leiðinlegt að sjá það eftir að vera búinn að raða saman. Það hefði verið svo skítauðvelt að taka manifoldið af um helgina.

Author:  fart [ Fri 24. May 2013 06:39 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Skemmtilegt hvað áhugaverð vandamál dúkka upp í þessum

Það nýjasta er að olíuhitinn rýkur upp þó svo að vatnshitinn sé mjög stöðugur. Olía í 125°c í rólegum akstri á meðan vantið er steady í 95°c.

Olíukælirinn er ískaldur sem og leiðslurnar í hann á meðan að mótorinn er sjóðandi.

Líklegar skýringar eru að það sé ekkert flæði í olíukælinn annaðhvort vegna þess að hann sé stíflaður eða að termostatinn í síuhúsinu sé bilaður. Kælirinn er glænýr, og þetta vandamál byrjaði eiginlega eftir að ég lét setja hann í. Það er spurning hvort að mechinn sem installaði hafi gleymt að taka tappa úr honum,, það væri quick fix. Hin skýringin gæti verið bilaður termostat í síuhúsinu, en til að komast að honum þarf að taka húsið af blokkinni. Termostatinn hleypir olíu í gegnum kælinn þegar kjörhita hefur veirð náð.

Ef að er vandamálið er annaðhvort að kaupa nýtt hús, eða að fara í constant flow breytingu, sem þýðir að olían flæðir stöðugt í gegnum kælinn. Slíkt er yfirleitt bara gert á dedicated Track bílum og er ekki mælt með því í daily bíla. Hinsvegar er ég með tvo auka olíuhitara (GT2252) þannig að mig grunar að þetta sé bara í fínu lagi hjá mér.

Author:  bErio [ Fri 24. May 2013 07:55 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Vá hvað þetta ert þú í vinnunni miðað við hvernig þetta ævintýri með þennan helv bíl hefur verið

Image

Author:  fart [ Fri 24. May 2013 08:17 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

:lol: :lol:

Þetta er nú ekki stærsta aðgerð sem ég hef lent í.

Author:  ömmudriver [ Fri 24. May 2013 13:31 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

fart wrote:
Hinsvegar er ég með tvo auka olíuhitara (GT2252) þannig að mig grunar að þetta sé bara í fínu lagi hjá mér.




:lol:

Author:  fart [ Wed 29. May 2013 13:11 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Flushaði olíukælinn og vandamálið er ekki þar.

Ég er farinn að hallast að biluðum hitamæli, eða útleiðslu í honum. Olíuhitinn klifrar í 120°c c.a. en sveiflast dálítið á leiðinni þangað. Ef ég drep svo á mótornum en svissa strax á fer mælirinn niður í 98°C c.a. og svo upp í 120°c ef ég set í gang. Það er sénslaust að hitinn sveiflist um 20°C á sekúndu.

Author:  gstuning [ Wed 29. May 2013 14:53 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Enn ef þú lætur hann bara sitja ekki í gangi? Fer hann aftur í 120 eða er það bara tengt því að vera í gangi.

Svipar til vandamáls í Skyline sem ég sá um daginn, jörðin á vatnshita skynjara var tengt á sama stað og tvær viftur voru tengdar, þegar þær fóru í gang þá fór hitinn upp um 40° samstundis.

Author:  fart [ Wed 29. May 2013 17:08 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

gstuning wrote:
Enn ef þú lætur hann bara sitja ekki í gangi? Fer hann aftur í 120 eða er það bara tengt því að vera í gangi.

Svipar til vandamáls í Skyline sem ég sá um daginn, jörðin á vatnshita skynjara var tengt á sama stað og tvær viftur voru tengdar, þegar þær fóru í gang þá fór hitinn upp um 40° samstundis.

Ég prufaði að hafa svissað alla leið í 20 mínútur um daginn, mælirinn hreyfðist ekki.

Þannig að þetta tengist því að hafa bílinn í gangi.

http://www.facebook.com/photo.php?v=472 ... =2&theater

Annars skreið hann í 110 gráður áðan á leiðinni heim, samt fastur í traffík lengi. Svo var ég að taka af stað og drap á bílnum, setti í gang og mælirinn fór í 102c.s. og var þar þangað til að ég kom heim.

100% rafmagnsvandamál held ég.

Author:  Lindemann [ Wed 29. May 2013 22:33 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 On the road again bls. 377

Spurning um að hreinsa upp kontaktana á hitaskynjaranum og jafnvel að mæla viðnámið í honum ef þú getur nálgast upplýsingar up viðnám miðað við hitastig.

Page 377 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/