bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 363 of 423

Author:  fart [ Fri 11. Jan 2013 05:15 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

gardara wrote:
Powerbleeder ftw!

Klárlega, var að fá póst frá einum mjög reyndum og vandvirkum sem sagði að þetta væri í raun 3 man job ef vel ætti að gera, einn á ventlinum, einn á pedala og einn á forðabúrinu, því að það mætti alls ekki falla of mikið þar sem það sýnir oft að það sé nóg í því þó svo að það sé komin loftbóla við slönguna sem fer í master.

Gunni fóturinn á þér hlýtur að vera eitthvað spes, ég er búinn að pumpa pedalann miklu oftar en þetta, sîðast í gær, og það án árangurs. Ég var kominn með krampa í fótinn.

Það er ekki séns að þú getir lofttæmt kerfið án þess að hleypa loftinu eitthvað. Það fer aldrei alla leið frá þræl, í gegnum master og upp í forðabúrið með því að pumpa bara hefði maður haldið...

Author:  gstuning [ Fri 11. Jan 2013 08:44 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Ég veit ekki hversu oft ég hef gert þetta svona orðið og það hefur alltaf virkað ef master og slave eru í góðu standi. Ekkert spes í gangi því að bremsuvökvi er þunnur og hleypir lofti frekar auðveldlega tilbaka í forðabúrið þar sem að það er opin leið upp þegar maður sleppir pedallanum.

Author:  fart [ Fri 11. Jan 2013 08:53 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

gstuning wrote:
Ég veit ekki hversu oft ég hef gert þetta svona orðið og það hefur alltaf virkað ef master og slave eru í góðu standi. Ekkert spes í gangi því að bremsuvökvi er þunnur og hleypir lofti frekar auðveldlega tilbaka í forðabúrið þar sem að það er opin leið upp þegar maður sleppir pedallanum.


Þú ert þá væntanlega að tala um þar sem að þrælnum hefur kanski verið kippt af? Hjá mér tæmdist kerfið.

Author:  gstuning [ Fri 11. Jan 2013 10:03 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Nei alls ekki, kerfið hefur verið alveg opnað og fullt af lofti.

Author:  fart [ Fri 11. Jan 2013 10:16 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

gstuning wrote:
Nei alls ekki, kerfið hefur verið alveg opnað og fullt af lofti.

Þá ert þú greinilega betri en flestir :lol: því menn tala um að þetta sé alveg notoriously hard

Author:  ///M [ Fri 11. Jan 2013 10:53 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Væri þetta ekki bara málið að eiga. Sérstaklega ef maður er að skipta oft um bremsuvökva og svona.

Image

Author:  gardara [ Fri 11. Jan 2013 11:07 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

///M wrote:
Væri þetta ekki bara málið að eiga. Sérstaklega ef maður er að skipta oft um bremsuvökva og svona.

[img]http://www.kaedings.com/images/krp-brake_bleeder.jpg[img]



Ég keypti mér amk svona græju, var hálftíma að bleed-a bremsur og kúplingu, sem var nota bene allt tómt af bremsuvokva.

Author:  fart [ Fri 11. Jan 2013 11:56 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

gardara wrote:
///M wrote:
Væri þetta ekki bara málið að eiga. Sérstaklega ef maður er að skipta oft um bremsuvökva og svona.

[img]http://www.kaedings.com/images/krp-brake_bleeder.jpg[img]



Ég keypti mér amk svona græju, var hálftíma að bleed-a bremsur og kúplingu, sem var nota bene allt tómt af bremsuvokva.


Það væri ekki slæmt að eiga svona.. sé hvort að ég get fundið þetta á eftir.

Ég á hinsvegar svona, en finnst það virka illa

Image

Author:  gstuning [ Fri 11. Jan 2013 12:55 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

fart wrote:
gstuning wrote:
Nei alls ekki, kerfið hefur verið alveg opnað og fullt af lofti.

Þá ert þú greinilega betri en flestir :lol: því menn tala um að þetta sé alveg notoriously hard



Ég komst að þessu að þetta virkaði þegar ég og Stefán vorum í Liege að sækja bílinn hans Lentz, hann hafði orð af því að kúplingin væri eitthvað skrýtin, klukkan var 5 um morgun og við höfðum ekkert nema bremsuvökva, kúplingin virkaði ekki baun og við heltum á, prufuðum að pumpa þónokkuð og hún lifnaði við og virkaði alveg fullkomlega. Ég prufaði þetta svo aftur á öðrum bíl og þetta hefur alltaf gengið upp síðann.

Author:  fart [ Fri 11. Jan 2013 13:34 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

ein pæling í þessu, af hverju að pedalinn tekur svona neðarlega er hvort að ég hef sett kúplingsleguna vitlaust í gaffalinn... það gæti orsakað það að öxullinn í þrælnum þarf að fara lengra út en hann ætti að þurfa til að ná átaki.

Image
legan er svona. Eini möguleikinn sem ég sé að ég gæti hafa klikkað á er að sléttu fletirnir séu láréttir í gafflinum en ekki lóðréttir.. Þá fellur legan innar í gaffalinn en hún á að vera.

kanski er maður bara komin út í smá örvæntingu..

Skil ekki alveg hvernig ég hefði átt að klúðra því, þetta er s.s. í fyrsta skipti sem ég set svona saman, þetta ætti bara að geta farið á einn hátt.. en maður veit aldrei. Ef einhver ætti mælingu á því hvað það eru margir sentimetrar frá bellhousing gatinu fyrir þrælinn og í gaffalinn þá myndi ég geta staðfest/vísað þessari pælingu frá.

Author:  gstuning [ Fri 11. Jan 2013 15:10 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Sléttu flestirnir passa bara í á einn veg.

Author:  fart [ Fri 11. Jan 2013 15:15 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

gstuning wrote:
Sléttu flestirnir passa bara í á einn veg.

Èg ætla ekki að fullyrða um það en mig minnir að þetta geti snúið norður/suður og austur/vestur.. Skoða það líka í kvöld á hinum kassanum.

Author:  fart [ Sat 12. Jan 2013 16:02 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Það er ekki séns að ég hafi getað klúðrað legunni vitlaust í, þannig að sá möguleiki er úr myndinni.

Annars hef ég verið að berjast við að koma return gorminum aftur í helvítis pedalann og er bara ekki að fatta hvernig það virkar. Furðuðlegt að maður kunni að tíma inn ása, skipta um gírkassa og rífa vélina úr, en ekki að koma einhverjum einföldum gorm fyrir... :x :x :x

Author:  Alpina [ Sat 12. Jan 2013 17:14 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Triple disc 8)

Author:  fart [ Sat 12. Jan 2013 17:50 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Gormurinn komin á sinn stað :alien:

Nýr þræll klár

Fer að verða búinn

Page 363 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/