bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 361 of 423

Author:  Lindemann [ Thu 03. Jan 2013 23:56 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

ég myndi giska á master cylinderinn. Ég hef lent í því nokkrum sinnum að þeir gefi upp öndina eftir að vökvinn hefur tæmst af þeim. Sérstaklega ef hann er orðinn gamall.

Author:  fart [ Fri 04. Jan 2013 05:23 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 Getrag 420G kominn

Það verður að teljast líklegra en þrællinn, þar sem að hann er nýr.

Ný kúpling og pressa
Nýr þræll
Nýr vökvi
Gamall master

Sami master í öllum E36 þannig að ég ætla að veðja á að þetta sé til í varahlutabúð frá ATE eða álíka. Grunar að þetta sé € 150 hjá BMW en kanski € 70 hjá öðrum, sami partur. þar sem nánast allt annað er nýtt í bílnum, af hverju að vera með gamlan kúplingsmaster :x :?

Edit: fór og keypti kúplingsmaster, hann er úr járni en ekki ekki plasti. Það getur nú varla verið verra.

Keypti líka oldschool olíukönnu, eftir að hafa séð þennan mjög trúverðuga náunga sýna hvernig best sé að lofttæma kúplinguna.

Author:  fart [ Sat 05. Jan 2013 09:44 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Masterinn sem ég fékk var rangur þannig að þetta þarf að bíða þangað til á mánudag.

Sá gamli er kominn úr og er með rifna hosu og virkar hálf laus í sér eitthvað, vonandi að hann sé vandamálið.

Annað, það er einhverskonar rofi sem kúplingspedalinn fer á í efstu stillingu, hvað gerir þessi rofi? Mig grunaði að þetta væri eitthvað svona "ekki hægt að starta nema stíga á kúplinguna" unit.. sem er aldrei enableað í EURO bílum.

Kallast "clutch switch" í realoem. Nr 8 http://www.realoem.com/bmw/diagrams/r/o/67.png

Einhverjar hugmyndir?

Author:  Alpina [ Sat 05. Jan 2013 11:30 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

ATH,,,,,,,,, ALDREI að stíga sundur þegar þú startar bílnum,,, ef menn eru með öflugar kúpplinger osfrv ,, þá kemur heavy átak á endaslagsleguna í sveifarásnum .. og það er ekki sniðugt ef hægt er að komast hjá því.. núningurinn margfaldast að óþörfu..

ég er með öflugustu twinnmass kúplingu sem ég veit um,, og það var eflaust yfir 1.00 mm slag í sveifarásnum á gula ,, BARA SLÆMT

ath .. þessi lega er allavega í 6 cyl BMW staðsett fyrir miðju .. þeas lega nr, 4




sjá mynd

Image

Author:  fart [ Sat 05. Jan 2013 11:36 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Og starta þá bara í hlutlausum?

Ég er náttúrulega með MJÖG létt flywheel og kúplingsunit.

Það er væntanlega búið að finna út úr þessum rofa sem ég spurði um. Er líklega tengdur cruise controlinu og því óþarfur núna.

Author:  Alpina [ Sat 05. Jan 2013 11:41 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

fart wrote:
Og starta þá bara í hlutlausum?


Já,, annars er alltaf pressa á sveifarásnum áður en olían fer að flæða

Það er alþekkt að þegar er verið að taka upp vél með ssk vs bsk þá er nær EKKERT bil í endaslagslegunni vs að oft er þetta hellingur á bsk bílum.. en eðlileg myndast smá slit í vél þar sem er verið er að skipta um gír svo hundruðu þúsunda skiptir vs automatic ..

Author:  fart [ Sat 05. Jan 2013 14:03 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Ok.. kanski að maður fari að starta í N..

Author:  gardara [ Sat 05. Jan 2013 15:00 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

áhugaverðar upplýsingar, maður er klárlega ekki að fara að starta með kúplinguna niðri í framtíðinni

Author:  IngóJP [ Sat 05. Jan 2013 16:29 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Ég þarf að starta með pedalann niðri USA bíll. En alltaf á leiðinni að taka þetta úr því þetta er bara vesen. Það er eyra á stykkinu sem tengist í masterinn hjá mér sem bognar með tímanum og þá þarf að fara ýta fastar og fastar á kúplinguna sem veldur því að þetta bognar allt og kúplingin slítur ekki

Image

Drasl

Author:  ömmudriver [ Sat 05. Jan 2013 17:48 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Áhugaverðar upplýsingar varðandi gangsetningu á MANUAL bílum en sem betur fer hef ég fyrir löngu vanið mig á það að starta bílnum alltaf í frígír og alveg eins ef ég þarf að stoppa lengi á gatnamótum þá set ég bílinn í frígír og sleppi kúpplingunni á meðan. Og ég skil bílana mín líka alltaf eftir í frígír með handbremsuna á nema um mikinn halla sé að ræða :)

Author:  fart [ Mon 07. Jan 2013 20:15 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Hvernig í fjandanum festir maður gorminn sem er á kúplingspedalanum upp í pedalaboxið. Gormurinn og það dót er í 4 pörtum og ég finn alls ekki leið til að festa þetta upp.
Gormur
Armur
Endi á gorminn
Einhverskonar smella

Image
Þessi gormur

Image
Ég er s.s. með unit 10, 11, 12, 13

Author:  BirkirB [ Tue 08. Jan 2013 01:05 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Hulk er tilnefndur sem bíll ársins hjá performancebmwmag :thup:

http://www.performancebmwmag.com/caroftheyear/

Author:  bimmer [ Tue 08. Jan 2013 01:16 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Svalt 8)

Author:  fart [ Tue 08. Jan 2013 05:30 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

BirkirB wrote:
Hulk er tilnefndur sem bíll ársins hjá performancebmwmag :thup:

http://www.performancebmwmag.com/caroftheyear/



Cool, nú er bara málið að kjósa :)

En að öðru, ég náði að brjóta öxulinn sem heldur gorminum,, æðislegt.

Ég næ ekki að fatta hvernig þetta fer saman :thdown: það er frekar augljóst hvernig og hvert gormurmurinn fer en ekki hvernig hann er festur, þarf nauðsynlega hjálp með þetta trix.

Ég pantaði nýjan pedala, gúmí, fóðringar, og draslið með gorminum, just in case.

Author:  JOGA [ Tue 08. Jan 2013 11:22 ]
Post subject:  Re: 1995 M3 111/356 6Gang/twin-disk

Nú veit ég ekki hvernig þetta er fest en getur verið að þetta sé svipað og í gormum fyrir handbremsur.
Þ.e. pressir gorminn inn og snúir svo til að læsa?

P.s. til hamingju með PBMW. Búinn að kjósa :thup:

Page 361 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/