bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 318 of 423

Author:  fart [ Tue 10. Apr 2012 20:21 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen-

Aron M5 wrote:
Er ekki bara kominn vírus í hann ? hvaða Windows ertu með ?


búinn að klippa það allt í burtu :lol:

Author:  Kristjan PGT [ Tue 10. Apr 2012 21:38 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen-

Ég lenti í svona veseni með honduna mína. Þá var swiss vírinn farinn í sundur einhversstaðar lengst inní í lúmi og náði stundum og stundum ekki straum. Ég var búinn að skipta um tvo alternatora og var að verða geðveikur. Spurning um að setja beinan straum á sviss tengið...

Bara hugmynd :)

Author:  -Siggi- [ Tue 10. Apr 2012 23:16 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen-

Hvaða bjánar eru þetta sem eru að skoða þetta fyrir þig ?

Það á auðvitað að vera 12v á B
Hinn vírinn er L eða hleðsluljósið, sem er greinilega í lagi þar sem ljósið virkar hjá þér.

Ég skil ekki til hvers þeir eru að mæla þarna á milli.

Alternatorinn þarf bara að fá 12v í gegnum peruna til að byrja að hlaða.

Image

Author:  fart [ Wed 11. Apr 2012 06:46 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen-

-Siggi- wrote:
Hvaða bjánar eru þetta sem eru að skoða þetta fyrir þig ?

Það á auðvitað að vera 12v á B
Hinn vírinn er L eða hleðsluljósið, sem er greinilega í lagi þar sem ljósið virkar hjá þér.

Ég skil ekki til hvers þeir eru að mæla þarna á milli.

Alternatorinn þarf bara að fá 12v í gegnum peruna til að byrja að hlaða.


Slappi var aðeins að hjálpa mér með þetta í gær.

Spurningarnar eru þessar.
1. á ég að fá jörð út úr L vírnum ef ég tengi hann við B? Þannig er það núna.
2. ef ég mæli úr L í jörð með svissað af fæ ég 0Volt
3. ef ég mæli út L í jörð með svissað á fæ ég 0.2Volt og þess vegna byrjar alternatorinn væntanlega ekki að hlaða því að triggerinn er ekki nógu sterkur.

Sem dæmi þá hlóð bíllinn ekkert þegar ég setti fyrsta alternatorinn í, en eftir að ég revaði aðeins byrjaði hann að hlaða 14volt, svo þegar ég setti aftur í gang var hann aftur dauður, en þegar ég keyrði niður á verkstæði fór hann stuttlega aftur í 14Voltin.

Það gæti verið eitthvað 4000rpm trigger á þessu einhverstaðar, eða,, þegar ég reva upp nær vírinn contacti.

Okkur grunar að það sé eitthvað að L vírnum, að hann sé shortaður einhverstaðar því að hann gefur ekki 12v ef hann er tengdur í jörð með svissað á.

Author:  fart [ Wed 11. Apr 2012 08:14 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen-

Fundið!!

Rakti alla leið frá alternator upp í loom og ákvað að byrja á kaplinum sem fer farþegamegin þar sem að ég er búinn að vera meira að vinna þeim megin í bílnum. Sá kapall fer niður í gamla diagnostics tengið.

Það sem hafði gerst var að backpressure rörin sem koma upp þar höfðu legið utaní diagnostics köplunum og brennt í gegnum þá. Það útskýrir væntanlega að þetta var gradually að gerast en ekki kvissbang. svo hafði blái L vírinn legið utaní rörunum og myndað jörð.

:thup: takk fyrir hjálpina drengir! gott að eiga góða að 8)

Byrjaði hérna
Image

rakti mig hingað
Image

ákvað svo að rekja þann sem fer farþegamegin..
Image

Sökudólgurinn fundinn
Image

Nánari skoðun.. :x
Image

Þá er bara að laga þetta til.. og allt hitt sem ég er búinn að rífa... :bawl:

Author:  bimmer [ Wed 11. Apr 2012 08:27 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Flottur.

Author:  apollo [ Wed 11. Apr 2012 09:53 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Gott þetta sé fundið!

Author:  Kristjan PGT [ Wed 11. Apr 2012 10:07 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Hah! Ekki er öll vitleysan eins ;)

Gott að þetta sé fundið!

Author:  slapi [ Wed 11. Apr 2012 12:48 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Góður , TEAM Banker að gera það gott

Author:  fart [ Wed 11. Apr 2012 13:45 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Jæja, búinn að ganga frá þessu öllu í samt horf aftur, sem og lóða inn tölvuna og skjáinn aftur.

EN næsta job verður að tækla olíulekann á milliheddinu.

Author:  fart [ Sat 21. Apr 2012 12:47 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Smá skjávideo


Author:  gstuning [ Sat 21. Apr 2012 13:08 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Glæsilegt alveg.

:thup:


Notar vemsið alveg í botn svona.

Author:  slapi [ Sat 21. Apr 2012 16:00 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

Hanskahólfið er eitthvað skakkt.

Author:  bimmer [ Sat 21. Apr 2012 17:13 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

slapi wrote:
Hanskahólfið er eitthvað skakkt.


Einhverfur much???? :lol:

Author:  fart [ Sat 21. Apr 2012 17:23 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GTtt -Rafmagnsvesen FIXED!!!!111-

bimmer wrote:
slapi wrote:
Hanskahólfið er eitthvað skakkt.


Einhverfur much???? :lol:


Þetta er E36 Hanskahólf en þau eru flest skökk, þar að auki 17 ára :santa:

Page 318 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/