bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 255 of 423

Author:  fart [ Mon 12. Sep 2011 11:56 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Standard S50B30GT ásarnir er það ekki, man ekki gráðurnar

Author:  fart [ Tue 13. Sep 2011 09:36 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Endakúturinn hjá mér var kominn á síðasta séns, kjarnin brotinn laus að innan þannig að ég hef verið að líta eftir nýjum/notuðum á Ebay.

Datt áðan á SuperSprint kút, nánst ónotaður og á hlálfvirði á ebay.de sem er líka TUeV approved og því mun auðveldari í meðhöndlun hérna varðandi skoðun.

Image

s.s. svona.

Grunar að hann verði mun hljoðlátari (minni bassi)

Author:  gardara [ Tue 13. Sep 2011 16:50 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Supersprint hljóma bara vel! :thup:

Author:  bimmer [ Tue 13. Sep 2011 17:57 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Gott stuff.

Author:  fart [ Tue 13. Sep 2011 18:56 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-



Datt niður á þetta myndband.... Ef maður bara hefði haldig sig við upphaflega planið :santa:

Author:  bimmer [ Tue 13. Sep 2011 21:44 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Þér myndi hundleiðast með allt í standi.

Author:  fart [ Wed 14. Sep 2011 06:32 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

En mikið rosalega leit þessi GT vel út, kanski yrði maður leiður á því að keyra :lol:

Author:  fart [ Fri 16. Sep 2011 18:23 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Supersprintið komið í hús, einn af kostunum við að búa hérna að maður þarf ekki að bíða mikið meira en 2-3 daga eftir sendingum. Í þetta skiptið lá ekki mikið á...

En þetta lítur út fyrir að vera nýtt :shock: og mikið rosalega er Supersprint vel smíðað, miðað við það sem ég var með áður, en virkar líka aðeins þyngra (eftir minni).


Nú þarf bara að fá bílinn áður en snjórinn kemur.

Author:  slapi [ Fri 16. Sep 2011 18:51 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Hvernig er statusinn annars???
Ég er orðinn TUNED að sjá hvað gerist með þetta


Ef snjórinn kemur á undan þá þarf bara að sækj bílinn með öllum ráðum
Image

Author:  fart [ Fri 16. Sep 2011 19:30 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Gunni er í helgarfríi og líklega að taka rönn :naughty: :naughty:

Ég er samt að vona svo innilega að það séu ekki nema 2 helgar eftir í mesta lagi, þ.e. næsta og þarnæsta. Einnig að verkstæðiseigandinn verði búinn að ventlastilla og tíma inn ásana þannig að Gunni geti tekið á því strax næstu helgi, dressað mótorinn, sett hann í og í gang.

Þá gæti hann tjúnað helgina á eftir.

En þetta er búið að dragast aaaaaaaaaaðeins of mikið.

Author:  tinni77 [ Sat 17. Sep 2011 03:04 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Manstu það sem Þórður sagði með delivery time á varahlutum um daginn ?

Þetta er svipað dæmi, bara ekki jafn ýkt.


Þegar maður fer út í bílaviðgerðir setur maður sér alltaf áætlun, og sú áætlun er sem stystur tími og reiknar maður oftast með að allt gangi upp..

en svo ef eitthvað kemur uppá, þá dregst þetta, sem tefur hitt, þá þarf að bíða eftir þessu og svo framvegis :wink: :wink:

Author:  fart [ Sat 17. Sep 2011 05:38 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

tinni77 wrote:
Manstu það sem Þórður sagði með delivery time á varahlutum um daginn ?

Þetta er svipað dæmi, bara ekki jafn ýkt.


Þegar maður fer út í bílaviðgerðir setur maður sér alltaf áætlun, og sú áætlun er sem stystur tími og reiknar maður oftast með að allt gangi upp..

en svo ef eitthvað kemur uppá, þá dregst þetta, sem tefur hitt, þá þarf að bíða eftir þessu og svo framvegis :wink: :wink:

Jújú, bara verst þegar maður hefur enga stjórn á verkhraða.

Author:  bimmer [ Sat 17. Sep 2011 10:45 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Bíllinn verður ready og búið að debugga allt fyrir áramót.

Author:  fart [ Sat 17. Sep 2011 10:57 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

ÆTLA RÉTT AÐ VONA að þetta verði allavega ekki eftir áramót! Fjandinn hafi það

Author:  fart [ Sat 24. Sep 2011 17:48 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Supersprint-

Ég bind miklar vonir við að Gunni sjái sér fært að vinna eitthvað í þessum nú um helgina, enda er þetta líklga orðið eitt mest slow bang-to-rebuild sem sögur fara af, þar sem að ekki er um fjárskort eða varahlutaskort að ræða og kerfið er fullbúið og functioning og því ekkert design issue.

Page 255 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/