bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 253 of 423

Author:  fart [ Fri 02. Sep 2011 17:58 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Pistons take 2-

Nóg um það :):)

KOMA svo Gunni!!, build myndir requirement :thup:

Good luck and have fun

Author:  fart [ Sun 04. Sep 2011 07:06 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

:drool: :drool: :drool:

Author:  gstuning [ Sun 04. Sep 2011 09:24 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

í gær strippaði ég B30 blokkina, bar stimplanna samann og byrjaði að gappa hringina á nýju stimplunum.

Stimplar : það er ~0.482mm compression height munur á nýju og gömlu. Þ.e fjarlægðin frá gudgeon pin og að hæðsta punktinum á stimplinum. Á móti kemur að gömlu stimplarnir voru þynnri að innan sem líklega hefur gefið sömu þjöppu og nýju stimplarnir. Ég sá engann annan mun á þeim fyrir utan það bara að nýju eru meira beefy í útliti.

Ef gamla blokkin hefði verið sama bore og sú nýja þá hefðu hringirnir verið þokkalega þröngir í , enda mældi ég gömlu blokkina víðari enn þá nýrri. Ég sé til hvort ég mæli gapið sem var í gömlu blokkinni.

Efsti hringurinn verður með 0.48mm gap , næsti hringur á milli 0.58-0.685mm og svo olíu hringirnir minnst 0.38mm. Þetta er eftir ráðleggingunum frá CP í bæklingnum þeirra um hvaða gap á að velja fyrir NA street , turbo , nitro og svo framvegis.

Engar myndir því að netsambandið hjá mér er mega lélegt.
Á eftir klára ég að færa sveifarásinn yfir og byrja að púsla samann, mér líst ekki nógu vel á legurnar fyrir stangirnar og mun því líklega redda nýjum, þær eru frá BMW þannig að verður ekkert mál að fá nýtt. Enn tekur nokkra daga.

Author:  fart [ Sun 04. Sep 2011 10:12 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

gstuning wrote:

Ok, þannig að þessar fínu VAC húðuðu eru Toast, hvernig eru þá sveifaráslegurnar? Skrítið að það sé að koma í ljós núna.
BMW Motorsport legurnar eru síst verri skv. sérfræðingum þannig að það er vel í lagi að nota þannig. það borgar sig allavega ekki að nota lélegar stangar/sveifaráslegur. Hvað með slípisett (pakningasett) var það klárt?

Hversu langt kemstu án þess að hafa stangarlegurnar?

Author:  gstuning [ Sun 04. Sep 2011 10:45 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Þær eru ekki toast, þær eru bara ekki góðar.

Sveifarás legurnar litu mikið betur út.

pakkningasettið er komið.

Ég byrja að bolta utan á vélina og svona, verð að skilja eftir að festa stangirnar við sveifarásinn þangað til að ég fæ legur. Þá er hægt að loka botninum.

Author:  fart [ Sun 04. Sep 2011 11:35 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Toast = ónothæfar :wink:

Ok cool, gera bara eins mikið og hægt er, meira er ekki hægt að fara fram á 8)

Author:  gstuning [ Sun 04. Sep 2011 20:22 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Sveifarás kominn í, hringir komnir á og gappaðir,

mældi clearance á legunum, það er alveg á mörkunum "loose" miðað við BMW blueprint specanna.

Panta stangalegur á morgun og svo kíki ég aftur þangað þegar þær eru komnar. Vantar frekar mikið að fá stimplanna ofan í til að hægt sé að púsla restinni utan á.

Author:  fart [ Mon 05. Sep 2011 06:16 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Ágætis progress, pirrandi með þessar legur samt.

Sá að netið var í rugli en það væri gaman að fá myndir.

Author:  gstuning [ Mon 05. Sep 2011 09:14 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Myndir.

Hérna sést gappið sem ég mældi á compression height, gamli stimpillinn heldur uppi nýjum frá undir fletinum og eru þeir tengdir samann með gudgeon pinnanum(ég man ekki hvað hann heitir á íslensku)

Image

Image

Hérna sést munurinn á hvar gatið er fyrri pinnan í stimplinum

Image

Olíu sprauturnar allar merktar með númeri til að fara aftur á sama stað og áður.

Image

Sveifarásinn kominn í
Image

Hringir komnir á stimplanna og allir merktir fyrir rétt bore þar sem að hringir voru gappaðir fyrir hvert bore fyrir sig.
Image

Hérna sést hvenær front coverið á vélinni var framleitt og líklega vélin á svipuðum tíma.
Image

Author:  fart [ Mon 05. Sep 2011 09:42 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Takk fyrir myndirnar Gunni! :thup:

Svona fyrir refrence á það sem er verið að gera þá er hér það sem hefur verið keypt / sourcað / sent til UK:

Gunni:
S50B32 Mótor (á ótrúlegu verði!)
Borun á mótor og plönun
Slípisett/pakningasett fyrir utan heddpakningu
Stangarlegurnar
Backpressure bunges og leiðslur í manifoldin

Ég:
CP stimplasett
Stock heddpakning sem ég átti til (sem er vonandi hægt að nota)
Sett af NGK R-2929-9 kertum sem ég notaði c.a. 5-6,000km 2009-2010
Sett af NGK R-2929-10 kertum sem eru nánast ónotuð enda stigi kaldari og bílilnn var erfiður í gang með þeim
Tvö sett af pakningum fyrir oildrain á túrbínunum ásamt nýjum bunges og boltum, það var smá leki þarna áður
Nýr olíuöndunartankur (er að velja núna)

Það sem stendur til að gera er að setja stærri olíuöndun á ventlalokið efst á það, sem mun flæða í catch can og svo í pönnuna. það er ekki búið að ákveða hvert öndundin fer en það væri best maður gæti andað því inn í rásina aftur eftir airfilters og pre-turbo.

Eitthvað svipað þessu en kanski ekki endilega 3xAN tengi, hugsa að eitt myndi duga ef maður notar OEM líka og drainar það í seporatorinn og svo í pönnuna.
Image

Author:  fart [ Sat 10. Sep 2011 19:58 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Heyrði í Gunna áðan, mótornum verður lokað á morgun og raðað utaná.

Svo er bara spurning um framhaldið....

Ein hugmynd :santa:

Image

Author:  BjarkiHS [ Sat 10. Sep 2011 20:49 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

DO IT 8)

Author:  Axel Jóhann [ Sat 10. Sep 2011 20:51 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

er ekki frekar hæpið að plássið leyfi þetta? :lol:

Author:  fart [ Sat 10. Sep 2011 21:07 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

Top mount með GT35 stærð fyrir ofan fremra manifoldið myndi líklega ganga, svo þarf að pípa smá :alien:

Keyra svo litlu bínurnar við 14psi og max gain, sem myndi þýða mega quick spool, svo tekur stóra við og keyrir topendið upp

P.s. Tetta er liklega eins og tripple turbo dæmið myndi líta út á F30M3

Author:  carhartt [ Sat 10. Sep 2011 21:49 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK -Rebuild??-

verður pottþétt eitthvað svona :lol:

Page 253 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/