bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 246 of 423

Author:  bimmer [ Wed 06. Jul 2011 18:02 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Jæja, hvenær fer HULK að rúlla?

Author:  gstuning [ Wed 06. Jul 2011 21:45 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Þegar allt er komið.

Blokkin og stimplarnir eru hjá vélarverkstæðinu, þetta verður komið tilbaka í næstu viku og þá fer öll samsetning af stað.
Ættu að vera myndir á hverjum degi þaðann af.

Er kominn með vanos mappið og búinn að skoða hauginn allann af vanos möppum þannig að ég er með góða hugmynd um
hvernig er best að byrja á þessu, eitt sem er fyndið með þessa vél er að hún notar ekki einu sinni vanosið almennilega
fyrr enn í 7k þegar hún slær næstum út.

Það verður líkast til meira retard í gangi á inntakinu í gegnum allt sviðið útaf og þökk sé túrbínunum.

Author:  gstuning [ Sat 09. Jul 2011 09:05 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Einhverjar myndir frá því um daginn.

B32 blokkin sem verður notuð

Image

Image

Image

Author:  fart [ Thu 14. Jul 2011 13:25 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Þá styttist í lokin á þessu verkefni.

Blokkin hefur verið boruð og verður sótt af Gunna á Laugardag. Samfara því verður hafist handa við að setja motorinn saman. Auk þess er búið að sjóða bunges fyrir backpressure mælingar í manifoldin. Vonandi að það komi eitthvað alvöru update um helgina ásamt myndum.

Author:  -Hjalti- [ Thu 14. Jul 2011 13:38 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

fart wrote:
Þá styttist í lokin á þessu verkefni.

Blokkin hefur verið boruð og verður sótt af Gunna á Laugardag. Samfara því verður hafist handa við að setja motorinn saman. Auk þess er búið að sjóða bunges fyrir backpressure mælingar í manifoldin. Vonandi að það komi eitthvað alvöru update um helgina ásamt myndum.


it's alive..!

Author:  JOGA [ Thu 14. Jul 2011 16:16 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Glæsilegt. Verður gaman að sjá myndir.
Vonandi gengur allt vel.

Author:  Axel Jóhann [ Thu 14. Jul 2011 17:19 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Gott að heyra.

Author:  Alpina [ Thu 14. Jul 2011 17:47 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

fart wrote:
Þá styttist í lokin á þessu verkefni.

Blokkin hefur verið boruð og verður sótt af Gunna á Laugardag. Samfara því verður hafist handa við að setja motorinn saman. Auk þess er búið að sjóða bunges fyrir backpressure mælingar í manifoldin. Vonandi að það komi eitthvað alvöru update um helgina ásamt myndum.


Hvað er þetta ,,,,,,,, á ekki ,,,,,,,,,,tæknimáli :idea:

Author:  fart [ Thu 14. Jul 2011 17:59 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Það eru núna 2 bung (inngangar/útgangar) á hvoru manifoldi fyrir sig en var bara 1 áður. Núna er s.s. 1 fyrir EGT og 1 fyrir bakþrýsting í hvoru manifoldi.

Það þýðir í raun að það er hægt að fylgjast nákvæmlega með því þegar viðbótar þrýstingur (xpsi) á inntaki er xpsi+1 í bakþrýstingi og því ekkert meira gain af því að hækka boostið enn frekar. Þetta gæti komið í veg fyrir of mikið álag á vélina við tjúningu. Í raun hlutur sem getur í senn sagt til um max potential power og boost en að auki verndað vélina.

Í framhjáhlaupi kom upp sú hugmynd áðan að setja V-bands á milli exhaust hússins og downpipes til að auðvelda útskipti ef eitthvað bilar, en þetta er í skoðun og verður væntanlega gert ef það er ekki of flókið og dýrt. Í dag eru downpipes skrúfuð með 3 boltum hvert á exhaust húsin og það þýðir að þetta er óaðgengilegt með meiru ef eitthvað fer úrskeiðis.

Author:  bimmer [ Thu 14. Jul 2011 22:06 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Hvernig sensor ertu með til að mæla þrýstinginn?

Þarf maður einhvern spes hitaþolinn sensor eða er hægt
að nota venjulega sensora, td. þennan?:
http://www.zeitronix.com/installation/m ... tion.shtml

Author:  gstuning [ Thu 14. Jul 2011 22:42 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Það er extra langt rör sem gerir það að verkum að enginn hiti kemst að skynjaranum þar sem að það eru svo lengri vacuum slanga sem fer á endann á því röri.

Svo er 400kpa MAP skynjari á endanum
Ég notaði þennan skynjara á turbo kerfinu sem var á B28 vélinni.

http://shop.vems.hu/catalog/sensor-p-89.html

Author:  bimmer [ Fri 15. Jul 2011 05:43 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Hvað þarf maður að hafa þetta rör langt, þe. áður en maður skiptir yfir
í vacum slöngu? Áttu mynd af setupinu á B28?

Author:  fart [ Fri 15. Jul 2011 06:24 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Hann var ekki með backpressure mælingu á B28 ef ég man rétt, er að ég held að vísa í þrýstingsmælinn sem hann notaði á B28 fyrir boost.

Það sem er gert er að búa til "gorm" úr koparröri, grunar að 50cm snúið í gorm sé nóg til að draga úr hitanum.

eitthvað svona
Image

Eða setur bara langt rör.

Þetta verður náttúrulega bara í við tjúningu, og svo fjarlægt.

Hérna er ágætis umfjöllun um þetta

Author:  gstuning [ Fri 15. Jul 2011 08:18 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Það var backpressure mæling á B28 kerfinu. Þessi skynjari sem ég nota hérna er sá sami og ég notaði þar.

Þetta er í raun eins og Sveinn sýnir, svona bremsu rör rúllað upp til að spara pláss enn auka lengd.

Það var soðin í greinina svo bremsu fitting til að hægt sé að setja þetta rör á.

Author:  bimmer [ Fri 15. Jul 2011 10:01 ]
Post subject:  Re: 1995 E36 M3 GT aka HULK

Ok, þetta er áhugavert.

En af hverju að rífa þetta úr - er ekki í lagi að hafa þetta í og
geta skoðað þetta af og til?

Page 246 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/