bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 27. Apr 2024 08:04

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 6333 posts ]  Go to page Previous  1 ... 255, 256, 257, 258, 259, 260, 261 ... 423  Next
Author Message
PostPosted: Tue 11. Oct 2011 06:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
SævarM wrote:
Seinasta sem ég ætla að gera er að röfla á netinu. finnst bara oft eins og það sé einhliða frásögn hérna og það er oft leiðinlegt, og auðvitað skil ég þig enn ég get líka sagt að ég finn mun meira til með Gunna enn nokkurn tíma þér eftir allt þetta vesen og höfuðverk og fleiri hundraðkalla úr eigin vasa þá skilar Gunni bílnum og þú ferð ánægður heim með miklu betri bíl enn þú varst með.

Þetta þarf ekkert að vera einhliða, öllum frjálst að skrifa hérna inn, það virðist bara vera þannig að það er meira tilefni fyrir mig að "röfla" yfir seinagangi heldur en fyrir Gunna að pósta einhverjum framförum í þessu verkefni. Á meðan þetta er þannig er eðlilegt að það halli aðeins á hann í þessu.

Það er líka ósköp eðlilegt að þú finnir meira til með Gunna í þessu heldur en mér þar sem að þið þekkist en þú þekkir mig ekkert. Ég hef fullan skilning á því, menn standa með sínum.
Mér finnst hinsvegar eins og flestir hugsi um Gunna eins og einhvern "poor Gunni" dæmi, eins og hann sé eitthvað grey sem ekkert getur. Þetta er fullorðinn maður sem að selur sig út sem Tjúner og er með Meistaragráðu í Mótorsportverkfræði. Ekki einhver algjör aumingi sem getur ekkert. Stærsti "útgjaldaliðurinn" fyrir einhvern annan en hann við svona rebuild væri vinnan, ekki varahlutirnir. Hann getur sett þetta saman sjálfur, auðveldlega.
Ég er pínu þreyttur á því að menn líti á mig sem "vonda kallinn", sterkari aðilinn, sem er að lemja á einhverjum smástrák eða minni máttar. Það er allavega það sem ég fæ á tilfinninguna. Það er vert að geta þess að Gunni ekki bara bauðst til þess að tjúna bílin heldur bað eiginlega um það.


Varðandi kostnaðinn við þetta rebuild:
Þessir hundraðkallar hjá Gunna hafa oft borið á góma. Það sem ég veit að hann er búinn að kosta til er eftirfarandi (annað veit ég ekki um).
Replacement mótor sem var GBP 300 ef ég man rétt (á eftir að draga frá mögulegt söluverð á pörtum sem verða ekki notaðir eins og B32 sveifarás, stangir og olíupanna).
Plönun á heddinu og vinnan í blokkinni sem ég veit ekki hvað kostar, en varla mikið meira en nokkur hundruð GBP.
Pakningasett fyrir utan heddpakningu, enda skaffaði ég hana
Stangarlegur
Suðuvinna við backpressuremæli á manifoldum (varla meira en GBP 50).
Sendingarkostnaður á USA stimplunum þegar hann sendi mér þá.
Bensínkostnaður við akstur..

Annað dettur mér ekki í hug.

Á meðan er ég búinn að kosta til nýjum stimplum, sem enduðu á því að kosta mig uþb € 1000 með sendingarkostnaði fram og til baka tvisvar sinnum ásamt sendingarkostnaði á heddpakningu, pakningunni sjálfri og kertum. Ætli kostnaðurinn liggi ekki einhverstaðar um € 1200 total hjá mér. Jú eitthvað átti ég af þessu nú þegar þannig að útlagður kostnaður er líklega rétt rúmlega € 1000.

Og N.B. það er algjör viðbótar kostnaður sem ég ætlaði aldrei í og hefði aldrei átt að þurfa að kosta til enda gerði ég ekkert til að valda þessu tjóni.

Við skulum hafa það á hreinu að Gunni ekki bara bauðst til þess að tjúna bílin heldur bað eiginlega um það.



Snúum þessu aðeins öðruvísi upp. Þú ert að gera upp hús, kanski nokkuð frægt hús sem margir fylgjast með. Svo þarf að breyta pípulögn. Vinur þinn sem er að klára meistarann í pípulögnum ekki bara býðst til að græja þetta heldur eiginlega óskar eftir því, þar sem að þetta gæti hugsanlega nýst honum í framtíðinni (segja frá því að hann hafi pípað upp þetta hús). Svo einhverstaðar í ferlinu gleymir félaginn að þrýstiprófa kerfið áður en hann helypir vatninu á, vanið flæðir um húsið og skemmir parket og innréttingar sem að höfðu kostað háar upphæðir í sérsmíði, óg ómældan tíma, blóð svita og tár húseignadans að setja upp.

Hvor er í verri málum, píparinn eða húseigandinn? Ég myndi halda húseigandinn því að ekki er bara búið að skemma fyrir honum hluti sem hann hefur unnið í lengi og lagt mikið fé í heldur verður líka töluverð tímatöf á því að hann geti notað húsið.

Píparinn er allur af vilja gerður að lagfæra þetta, segist þekkja smið og annan og að þetta verði græjað. Húseigandinn segir að hann sé tilbúinn að skaffa parketið þannig að það sé hægt að gera þetta sem fyrst. Svo líða mánuðir áður en að viðkomandi pípari mætir á svæðið til að rífa upp parketið og taka niður innréttingar, þar sem að það vantaði kúbein..

Svo þegar parketið er komið af líða mánuðir, og í millitíðinni gerir píparinn ekkert og fær heldur ekki sérfræðing til að meta tjónið að fullu. Enn stendur húsið ónotað, þar sem að Píparinn er að klára prófin og lokaverkefnið, en lofar að vaða í þetta um leið og skólinn er búinn. Svo klárast skólinn, og þá loksins er beðið um parket því nú er búið að kaupa innréttingar. Parketið kemur og þá á að fara að leggja á, en þá kemur í ljós að undirlagið er rennandi blautt og það hefur alveg láðst að meta tjónið að fullu og því þarf að bíða eftir því að undirlagið verði lagað. Svo hefst parketlögnin....... ...á meðan stendur húsið ónotohæft og/eða ósöluhæft. 9 mánuðum seinna..

Hvort er í verri málum????

Það má vel vera að ykkur finnist þetta ekki sambærilegt, en mér finnst það.
Bíllinn hefur staðið ónothæfur í næstum 9 mánuði vegna mistaka. (þar af er 1 mánður vegna þess að við fengum ranga stimpla) :thdown: sem var ekki Gunna að kenna, nér mér. En það er aukaatriði, segjum 8 mánuðir.

Við skulum hafa það alveg á hreinu að þetta er nú bara 6cyl BMW mótor sem tekur menn hér á kraftinum ekki nema eina helgi að rífa í sundur og setja saman. Það er ekki verið að smíða geimflaug, og.. það er nákvæmlega ekkert í hardwareinu sem þarf að custom smíða, þetta var fullkomlega functioning verkfæri.

Mér tellst til að það séu liðnar c.a. 30 helgar síðan að mótorinn fór. Þar af eru allavega 15 síðan að Gunni kláraði skólann. Það má því lauslega áætla að það hefði verið hægt að smíða þennan mótor ALLAVEGA 7 sinnum ef maður er helmingi hægari en einhver sem er fær.

Svona að lokum þá leyfi ég mér að efast um að það væri eitthvað búið að gerast í þessu ef ég væri ekki "röflandi" um þetta við og við hérna, að ógleymdum röflinu í mér á msn/sms og í síma við Gunna sjálfan. Þá má vera að á einhverjum tímapunkti muni þetta fara að virka neikvætt á hann :lol: I will have to risk it. Þetta er svona eins og þegar fótboltaþjálfarar taka "hárþurrkuna" á leikmenn.

ÉG er algerlega undir Gunna komin í þessu máli, hann er sá eini sem ég get nuddast í. Það má kanski fallast á það að sumum finnist óeðlilegt að ég sé að því hér, en þá má líka segja að það sé óeðlilegt að almennt að menn spjalli um hina og þessa hluti opinberlega. Ég er ekki í neinum persónublammeringum hérna, hef ekkert sagt um einn eða neinn sem ætti að vera særandi eða sem ég ætti eftir a þurfa að sjá eftir síðar meir, og ég veit að ég og Gunni eigum örugglega eftir að fallast í faðma þegar þessu er lokið og hann réttir mér lyklana, eigum báðir eftir að læra mikið á þessu dæmi.


p.s. af hverju segja menn að ég fái bílinn miklu betri en hann var. Hvað var eiginlega að honum? Ekkert nema tjúnið. Ef ég hefði látið þann ofmetna tjúna OEM tölvuna, væri hann þá mikið verri þannig? Það má teljast líklegt að bíllinn verði betri með VEMS tölvunni, en það veltur algerlega á tjúninu.
Þessi mótor var skotheldur þegar hann kom til UK, það sést best á því að hann tók á sig 60 dyno rönn með leanspot við max torque og dugði (að sögn Gunna) síðan langleiðina aftur til Oxford. Heddpakningin var meira að segja í lagi þó svo að stimplarnir hafi fengið nóg.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 11. Oct 2011 09:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
þolinmæði þín er oumdeild. ég persónulega væri búinn að ná í bílinn

í þessu felst ekkert drull yfir gunna, öfunda hann ekkert af þessari stöðu

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 11. Oct 2011 11:23 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6764
SævarM wrote:
Finnst svo gaman að lesa þessi update, það hljómar bara eins og Gunni gerir ekkert nema sitja með þumallinn á vísum stað og horfi á vélina sundur tekna og bíði með að gera eitthvað, enn ég bara veit allt annað og veit líka hvað þetta er ROSALEGA óþolandi fyrir hann að geta ekki bara klárað þetta 1.2 og búið og geta skilað bílnum og aldrei séð eða heyrt um hann aftur.



Auðvitað finnur þú eitthvað ógurlega til með Gunna :lol:


held málið sé bara að hætta þykjast vera alltaf svona busy og klára hlutina af..

skelfilega pirrandi þegar einhver segir alltaf: "á morgun" "í næstu viku" "verður klárt í næsta mán" eða aðrar álíka setningar.. Skil Svenna barasta vel. Ég sjálfur væri orðinn brjálaður í skapinu yfir þessu öllu.

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 13. Oct 2011 21:58 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 10. Jul 2003 11:05
Posts: 344
Location: Hafnarfjörður
Mér finnst nú góð samlíkingin við píparann, þarna hittir þú naglan á höfuðið Sveinn, ótrúleg þolinmæði sem að þú hefur, og ert algerlega uppá Gunna kominn !

Eins og þú bentir á Sveinn þá var bílinn í 100 % lagi þegar að hann fer til UK, og svo þarft þú bara að bíða og bíða, mér sjálfum pesónulega finnst 8 mánuðir helv. langur tími !

Vonandi fer þetta mál að klárast svo að maður geti sníkt rúnt næst þegar að maður kemur til Lux 8)

Baráttukveðjur til ykkar beggja :thup:

_________________
Gunnar Már Gunnarsson
Sími 690-2222
Mercedes Benz w108 280 SE V8 3.5 ár.1971 R-71
Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 14. Oct 2011 07:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
gmg wrote:
Mér finnst nú góð samlíkingin við píparann, þarna hittir þú naglan á höfuðið Sveinn, ótrúleg þolinmæði sem að þú hefur, og ert algerlega uppá Gunna kominn !

Eins og þú bentir á Sveinn þá var bílinn í 100 % lagi þegar að hann fer til UK, og svo þarft þú bara að bíða og bíða, mér sjálfum pesónulega finnst 8 mánuðir helv. langur tími !

Vonandi fer þetta mál að klárast svo að maður geti sníkt rúnt næst þegar að maður kemur til Lux 8)

Baráttukveðjur til ykkar beggja :thup:

Takk fyrir það Gunni, já ef þetta verður í lagi þegar þú kemur verður tekið rönn, og það á reyndar við um alla kraftslimi. Ég hef tekið nokkuð vel á móti þeim sem hafa komið á svæðið og mun halda því áfram.

En nú er helgi framundan og mig grunar að Gunni ætli að taka session í bílnum um helgina, allavega miðað við FB færsluna í gær.

Nafni þinn er eftir því sem ég best veit góður strákur og hefur oft verið mér innan handar síðustu ár, það er á hreinu og það vita allir hérna.
Mögulega finnst honum þetta einhvernvegin óyfirstíganlegt verkefni enda nokkuð margir að fylgjast með. Oft virkar það letjandi á menn þegar aðstæður eru þannig og oft virkar svona hvabb á sama hátt þegar það er frekar meint sem hvatning.

Ég vona svo sannarlega að við getum farið að ræða einhverja skemmtilegri hluti hérna fljótlega. Ungfrú Apríl (eins og bíllinn var kallaður hér áður) á nefnilega frátekna forsíðu á einu tímariti um leið og hún er komin úr aðgerð :lol:

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 15. Oct 2011 21:41 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Posts: 5509
Location: 108 Reykjavík
Er eitthvað verið að vinna í honum þessa helgina? :)

_________________
Ódýrir OEM Bosch súrefnisskynjarar til sölu!

Vantar þig aðstoð við að panta af ebay eða annarstaðar á netinu? Sendu mér PM.

1994 BMW E36 332i sedan
1991 Chevrolet Camaro Z28
1982 Toyota Carina A60
2005 Ford Fiesta ST


Svezel wrote:
Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 00:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
gardara wrote:
Er eitthvað verið að vinna í honum þessa helgina? :)


Skilst að vélin sé seld til Úkrainu

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 01:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39
Posts: 3691
Sendir bara Bartek út
Hann kann að græja og gera!

_________________
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 01:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10992
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Alpina wrote:
gardara wrote:
Er eitthvað verið að vinna í honum þessa helgina? :)


Skilst að vélin sé seld til Úkrainu

Image

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 01:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
srr wrote:
Alpina wrote:
gardara wrote:
Er eitthvað verið að vinna í honum þessa helgina? :)


Skilst að vélin sé seld til Úkrainu

Image


:lol: :lol:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 01:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
gardara wrote:
Er eitthvað verið að vinna í honum þessa helgina? :)


Skilst að vélin sé seld til Úkrainu


Image

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 06:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Maður vonar það besta allavega

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 09:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15127
Location: Spenge, DE
Það verða engin update frá mér fyrr enn ég er búinn að afhenda bílinn alveg ready.
Ég mun hringja í Svein þegar ég er á leið til Lux. Mig vantar bara póstnúmer til að vita hvert ég á að fara þar. Mér sýnist þetta vera 7.5tíma akstur sem er ekkert stórvægilegt. Samt bara flug til Heatrow eða City sem er ekki beint nálægt því sem ég á heima enn líklega verður það ekkert vesen. Verður besta flugferð sem ég fer á þessu ári.

Bara svo að menn fari nú ekki yfir um þangað til, þá er þetta í hinum besta mögulega farveg núna, allt að þakka smá ráðstöfunum í síðustu viku.

:thup:

EDIT. Nevermind London city lookar fínt. Næsta miðvikudag þá get ég metið stöðuna uppá afhendingu og bóka flugið í ljósi þess.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 10:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
171 Rue Kohlenberg
L-1870 Cessange

Þetta eru 800km c.a.

Er ekki hægt að fá status update hvernig þetta stendur? Af hverju ekki að halda áfram að pósta updates og myndum, það er nú varla svo tímafrekt.

Allavega gott að þetta er í besta mögulega farvegi, það er ekki hægt að biðja um meira en það :thup:

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 16. Oct 2011 20:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15127
Location: Spenge, DE
status updates gefa til kynna stöðu, tími sem er eftir þá stöðu er mismunandi í hvers manns haus. Þegar menn eru komnir þá með sýnar eigin tíma áætlanir og ef það myndast óstýranleg töf eða eitthvað virðist taka lengri tíma þá verða menn ósáttir. Þess vegna er bara best að þetta klárist þegar það klárist miðað við þann fría tíma sem er til að setja í þetta.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 6333 posts ]  Go to page Previous  1 ... 255, 256, 257, 258, 259, 260, 261 ... 423  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 223 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group