Microupdate.
Fór með bílinn í dag til helvíti skemmtilegra Ítala sem eru með verkstæði hér 1.5km frá húsinu sem ég bý í.
Þeir s.s. gera við allskonar bíla og annar bróðirinn keppir á Peugeot 206 í einhverjum "one type" kappaksti (fullpreppaður bíll með búri og slikkum).
Þeir bræður eiga ágætis safn bíla, t.d.
Integrale HF með stærri túrbínu og græjum
Intregrale Martini Racing (örfáir framleiddir)
Ferrari 308 undir teppi á verkstæðinu
Ferrari 550 2001 keyrðan 25þús og eins og nýr og...
Alveg helmagnaðan LAGUNA SECA bláan E46 M3 heavy moddaðan.
Ég fékk einmitt rúnt í þeim bíl áðan eftir að hafa tekið "race driver" bróðurinn í mitt fræga S6 LC LuxRönn. Þessi E46 BARA VIRKAR. Modds eru knastásar, Alpha-N, CSL airbox, FULL Eisenmann púst frá mótor og lægra drif, shortshifter og GT3 sæti. Magnaður bíll. BBS LM með svörum miðjum og CSL look. Brjálæðislega cool sound í honum.
Anyways... back to the topic. Ég fór með GTinn til þeirra til að installa Powerflex fóðringum í spyrnurnar að framan.. Þegar ég kom að sækja bílinn þá sögðu þeir mér að þeir hefðu ekkert gert við bílinn, og áður en ég byrjaði að verða pissed þá sögðu þeir mér að það væru einhverjar fyrir spes fóðringar í spyrnunum til að vinna með negative camber að framan?? þekkir þetta einhver.. Anyway ef þeir hefðu sett powerflexið þá hefði bíllinn orðið mjög skrítinn og þeir vildu meina að hann væri mun betri í óbreyttu formi, þ.e. með þessu moddaða dóti sem var í honum. Þetta virka líka mjög heiðarlegir gaurar (samt Ítalir) því þeir rukkuðu ekki krónu.
Við fórum að ræða mótorbreitingar eða swapps... því ég hef verið að hugleiða vetrarverkefni í formi S62 Transplant.
Þeir sögðu að það yrðu MEGA mistök. Bíllinn myndi missa allan karakter við það, og að setja Turbo eða Supercharger væri bara ekki máli (þeirra álit).
Það sem þeir vilja gera er að tjúna S50B30 sem er að þeirra mati besti 6cyl mótorinn frá BMW til að tjúna og sá LANG sterkasti. Meira að segja svo öflugur að sumir þeirra sem race-a E46 M3 (sérstaklega í 24hour dæmum) swappa S54 út fyrir Old-fashoned single vanos S50B30. Það sem er síðan gert er 3.4L modd, knastásar, airbox, Alpha-N og exhaust alla leið.. fyrir slatta en 380 alvöru 8000rpm hestar og öskur í stíl.
Svei-mér-þá hljómar ANSI FREISTANDI
Vonandi að Onno regnguð meginlandsins sleppi regndansinum í kvöld því að á morgunn er RÖNN