Angelic0- wrote:
gdawg wrote:
fart wrote:
Það er samt nokkuð ljóst að
1. ég get farið mun hraðar ef ég fæ mér semi-slicks
2. powerið í bílnum virðist vera í lagi, sérstaklega top-end
3. ég gæti alveg notað meira low-end power
4. Oliver (held ég) sagði mér að stífa bílinn upp að aftan til að minnka undirstýringu.
5. þetta er BARA gaman!
Smá pæling varðandi 4. þá gætu aukaverkanir af því að stífka afturendan orðið minna grip út úr beygju að aftan (power down over steer), spurning hvort að það er kannski það sem þú vilt!
Hvernig understeer er þetta nákvæmlega, nærðu gripi í byrjun og skrikar framendinn síðan út eða er erfitt að miða bílnum inn í beygjuna ?
Ef þú ætlar á endanum að fá þér ný dekk þá er spurninga að halda setup-inu eins og það er núna (
allavega ekki eyða pening í gorma) og prófa sig frekar áfram á nýju dekkjunum.
Er þessi bíll ekki með coilovers ?
Þú breytir veltistífleika (rollstiffness) með gormum og anti-roll bars.
fart wrote:
Það er lítið mál að stýra bílnum inn, en svo missir hann gripið.
Hann er svo gripmikill að aftan núna að hann nær ekki að losa afturendan við gjöf, en hann losar afturendan í lift off.
Jú það eru H&R clubsport coilovers og stillanlegar H&R jafnvægisstangir. það sem ég ætla að prufa að gera er að setja innri götin á jafnvægisstönumun að aftan.
Er bíllinn nokkuð að snerta bump stop gúmmíið??
Ég geri ráð fyrir því að þetta sé þá í raun exit understeer. Þá er þetta alveg rétt sem þeir segja. Það er lítið hægt að hafa áhrif á gripið að framan þar sem öll vigtin er á afturöxlinum.
Önnur atriði sem mögulega geta líka haft áhrif eru; of mikil toe að framan og ekki nógu mikið droop að framan, ef þú getur stillt það.
Ég geri líka ráð fyrir að þú sért að gefa bílnum allt sem hann getur, ef ekki þá er það númer 1,2 & 3