Fékk SMS frá Frits í gær (kunningi af M5board). Hann er einnig að smíða sér brautarhæfan E36 M3 coupe. Hans er hvítur á hvítum felgum sem er nokkurnvegin eing og ég ætlaði að hafa minn.
Anyway.. við höfum verið að leita að skynsamlega verðlögðum stillanlegum camber/caster plötum. Ég var komin með nokkrar útgáfur frá USA á svona 350-400dollara án shipping og skatts, og svo eitt sett í þýskalandi á €500 settið sem mér fannst of mikið.
Frits fann þessar í gær
310 euros total fyrir settið, hann ætlar að panta fyrir mig og senda. Þetta ætti að laga eitthvað rubbing að framan, og jafnvel ætti ég að geta lækkað hann aðeins meira en hann er núna.
En það er eitt sem mig langar að benda ykkur á. Þetta brautardæmi er alls ekki ókeypis. Eins og þið hafið séð hjá Þórði þá getur ýmislegt komið uppá, sama hjá mér með einfaldan snúning á brautinni. Hann er að kosta mig total líklega nærri €400 evrum þar sem ég ætla að skipta um miðjubrackeið á framspoilernum (vonlaust að ná því réttu, járnið er orðið teigt), kastari, bremsukælingarduct o.s.frv. Þetta safnast saman. Auk þesss nær maður að fara langleiðina í að klára einn gang af semislikkum á heilum Touristfahrt degi skv. því sem ég hef lesið.
Fyrir utan þetta þá finn ég hvað átökin í bílnum hafa aukist gríðarlega við klístraðri dekk og mun öflugri fjöðrun.. já og bremsur. Ég er ekki búinn að skipta um fóðringarnar í trailing arms að framan en ég held að ég bara verði að gera það áður en ég týni framfjöðruninni í einhverri niðurneglingunni.
Allavega myndi ég ekki mæla með því að keyra dýran daily driver á brautinni á semislikkum. Get ímyndað mér að OEM dótið ráði bara enganvegin við átökin.