Tóti wrote:
fart wrote:
Þetta fer nú að verða pirrandi, dead-play í kúplingspedalanum er alltof mikið, það er því enn eins og það sé loft í kerfinu þrátt fyrir ýmsar æfingar í gær. Svo í morgun eftir smá akstur var pedalinn kominn alveg niður þannig að ég gat ekki valið gír. Ég gat hinsvegar pumpað upp þrýsting í kerfið, en samt var helvítis dead-play.
Ég er farinn að gruna að þessi nýji slave cylinder (FAG eins og hinir) sé eitthvað gallaður?
Any ideas?
Hvernig lofttæmdirðu þrælinn? Með því að pumpa og opna eða dæla vökva í gegn neðanfrá?
Ég reyndi í raun 4 aðferðir.
1. Reservoir tómt, pedalinn uppi, slave í bellhousing. Dældi inn um loftventilinn með olíukönnu þangað til það voru hættar að koma loftbólur úr reservoir. Pedalinn var samt linur. Sogaði nokkrum sinnum upp úr reservoir og dældi meira.
2. Reservoir fullt, vacume pumpa á loftventlinum á slave, slave í bellhousing. Lét vacume ganga og fyllti á reservoir. c.a. 250mm sem ég bætti á, þannig að lílega hef ég náð alveg í gegn. Pedalinn var enn frekar linur áfram og tók neðarlega.
3. tók slave úr bellhousing, pumpaði með höndunum, þrýsti arminum inn og lofttæmdi, gerði þetta svona 5-6 sinnum. Mér fannst ég samt heyra skrítið bubbling hljóð í slave. Installaði, pedalinn varð aðeins þyngri, en tók samt enn vel neðarlega.
4. Konan á pedalanum, pumpað og haldið, lofttæmt og sleppt, 6-7 sinnum, án þess að eitthvað breyttist verulega.
Ég mældi líka lengdina frá opinu á bellhausing inn að gafflinum, og það eru c.a. 6.5cm. Kúplingsþrællinn mælist c.a. 9cm frá bellhousing og að endanum á pushrod. það þýðir travel upp á 2.5-3.0cm sem ætti að vera nóg til að aftengja kúplinguna.
ÉG er farinn að hallast að því að þessi þræll sé bara gallaður.....
Why..
1. Kúpling og lega. Nýr pinni fyrir aftan gaffalinn, kúplingin kúplar út
2. Nýr slave cylinder, free-play var frekar mikið til að byrja með
3. Ótrúlegt í raun að Masterinn geti bilað einn tveir og þrir, að vísu var gúmíið rifið, en það var enginn vökvaleki samt.
Eina alvöru variableð í þessu er þrællinn er mér farið að finnast. Það er enginn leki, en það gæti verið einhver galli inni í honum.