x5power wrote:
eigum við ekki bara að skipta? það lekur ekkert í minum!
Það kemur oft upp í hugan í hvaða sporum ég væri í dag ef ég hefði farið í S62 swap. Líklega hrikalega ánægður, en svo veit maður aldrei með reliability og slíkt. Á endanum hlýt ég að komast fyrir alla þessa leka. Í gær var þetta bara dropi og dropi.
Einarsss wrote:
Eru þeir svona hrikalega harðir að þú fengir endurskoðun út á nokkra olíudropa?
Neinei, en í fyrra fékk ég athugasemd út á olíuleka en fékk samt skoðun, ef ég kem aftur með leka er líklegt að þeir verði með leiðindi. Auk þess eru svo geðveikt margir hlutir breyttir á bílnum (eiginlega ekkert orginal ennþá þannig séð) og því gætu þeir tekið mig í full check, farið í gegnum alla pappíra, en þeir eiga að vera í lagi, samt geta þeir verið með vesen.
Eina sem er ekki TUV approved í dag í bílnum eru camber/caster plöturnar.. en ég hef ekki fengið bögg á þær enn.
Til þess að koma í veg fyrir einhver leiðindi í skoðuninni keypti ég t.d. tvö ný aðalljós (glerin) þar sem að linsan í aðalljósinu farþegamegin var farin að gulna (brunnin). Þegar það ljós var komið í virkaði hitt svo hrikalega gamalt að ég keytpi það líka.
Annars fór ég í morgun í specialised fyrirtæki sem framleiðir olíu/glussaslöngur og slíkt og lét búa til 5cm lengri feed slöngu ásamt því að kaupa slönguklemmu til að festa við mótorinn og tvo koparhringi (seals). Þegar þetta verður komið saman, ásamt nýrri pakningu í drainið ætti þetta að vear alveg til friðs, nema einhver pakningin sé farin í túrbínunni.. en ég efa það þar sem þær eru nánast nýjar.
Ég er dálítið "anal" þegar það kemur að svona skoðunum, vill fara í gegn ÁN athugasemda ef það er mögulegt.