Page 1 of 5

730, jeppi eða lowrider..?

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 04:27
by Chrome
Jæja það var víst komin tími á að setja smá klausu um tryllitækið...
Þetta er sumsé 92'árg. af 730 BMW og er þetta er vísitölu bíll af skemtilegustu gerð hann er 6-cyl 3,0L (M30)...
Liturinn er Brokatrot Metallic (256) og er með Anthrazit Stoff (0427) tau innréttingu (kom mér bara skemmtilega á óvart, sakna leðursins bara ekkert nema bara uppá að hafa það :) vildi þó að sama væri sagt um rafmagnið sem sárlega vantar í sætin..svo ég tali ekki um cc-ið :(

Búnaður:
209 Læst drif (25%)
241 Loftúði fyrir ökumann og farþega
320 Ekkert Badge
401 tvívirk rafdrifin topplúga
415 sóltjald afturí
428 viðvörunarþríhyrningur
510 hæðarstillanleg ljós
529 frjókornasía
556 útihitamælir
564 Inni Ljósapakki
660 BMW magnari í skotti
690 kassettu geymsla
801 Þýska útfærslan
...býsna basic einsog sjá má en, þetta kemur manni á milli A og B :wink:

það er nú búið að gera eitt og annað fyrir hann síðan ég eignaðist hann þrátt fyrir að fæst að því sjáist :) en það stendur til að gera bót á því í sumar :wink:

...svo verslaði ég mér 17" style 32 felgur af Djöflinum og vildi svo skemmtilega til að bíllin varð einhvað óvenju hár að aftan þegar ég mátaði þær á, vildi þá ekki svo skemtilega til að bíllinn sat á gúmmíinu :evil: en eigi skal örvænta því það vill svo skemtilega til að ég veit um sett af sportfjöðrunargormum sem liggja og safna ryki :twisted:

...Stal einni mynda af Binna...
Image
svona leit hann út áður en ég eignaðist hann :)

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 16:57
by íbbi_
"Bílar meðlima
Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!
Stjórnandi Gunni"

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 16:59
by X-ray
íbbi_ wrote:"Bílar meðlima
Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!
Stjórnandi Gunni"


Bílinn festist ekki á filmu :wink:

Re: 730, jeppi eða lowrider..?

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 17:08
by zazou
Chrome wrote:...af 730 BMW og er þetta er vísitölu bíll af skemtilegustu gerð hann er 6-cyl 3,0L (M30)...

Það er ekkert vísitölulegt við BMW, sérstaklega ekki sjölínu. Vísitala eru 'skynsamlegir' framhjóladrifsbílar ss Toyota, Hjúndeij etc.

Re: 730, jeppi eða lowrider..?

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 21:27
by Chrome
zazou wrote:
Chrome wrote:...af 730 BMW og er þetta er vísitölu bíll af skemtilegustu gerð hann er 6-cyl 3,0L (M30)...

Það er ekkert vísitölulegt við BMW, sérstaklega ekki sjölínu. Vísitala eru 'skynsamlegir' framhjóladrifsbílar ss Toyota, Hjúndeij etc.

Vísitölubíll, er nú barasta hvað þú metur, þessi bíll er t.d. mun ódýrari í rekstri en 750 :wink: annars fara myndir að streyma eftir helgina hef ekki komið mér í það ennþá :)

Re: 730, jeppi eða lowrider..?

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 22:16
by ömmudriver
Chrome wrote:
zazou wrote:
Chrome wrote:...af 730 BMW og er þetta er vísitölu bíll af skemtilegustu gerð hann er 6-cyl 3,0L (M30)...

Það er ekkert vísitölulegt við BMW, sérstaklega ekki sjölínu. Vísitala eru 'skynsamlegir' framhjóladrifsbílar ss Toyota, Hjúndeij etc.

Vísitölubíll, er nú barasta hvað þú metur, þessi bíll er t.d. mun ódýrari í rekstri en 750 :wink: annars fara myndir að streyma eftir helgina hef ekki komið mér í það ennþá :)


No offense, en það er ekkert skrítið að þessi bíll sé ódýrari í rekstri en 750, þessi sjöa er nánast eins ódýr og þær fengust :wink: Og svo man ég ekki eftir því að hafa séð bílinn þinn hreinan EVER !!!!!

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 22:20
by íbbi_
man eftir þessum bil frá því að binni átti hann, hann er eins hrár og hann gæti verið, en hann var mjög heill

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 22:22
by Alpina
,,,,,,,,, til hamingju með bílinn,,,,,,,,,,

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 22:27
by ömmudriver
íbbi_ wrote:man eftir þessum bil frá því að binni átti hann, hann er eins hrár og hann gæti verið, en hann var mjög heill


Mikið rétt, man vel eftir því þegar Stebbi fékk bílinn hvað vélin malaði fallega 8) Ég hafði bara aldrei heyrt annað eins, en sagan er nú önnur í dag........

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 22:28
by íbbi_
er búið að skemma hann :(

PostPosted: Sun 04. Feb 2007 22:37
by ömmudriver
íbbi_ wrote:er búið að skemma hann :(


Lausagangurinn er farinn fyrir bí......

PostPosted: Mon 05. Feb 2007 00:07
by Chrome
Vóvóvó Arnar minn það er bilaður skynjari já! og bíllinn minn er nú þrifin einu sinni eða 2svar yfir mánuðin en einsog þú ættir að vita fer hann á milli RVK og Keflavíkur hérumbil 2svar á dag þannig að hann er ekki hreinn lengi! mér gremst þetta komandi frá þér sérstaklega eftir að þú stútaðir heddinu á 7-uni hjá þér á því að keyra með ónýtan vatnskassa og leyfa honum að ofhitna "einu" sinni eða "tvisvar"...oki flame off... :evil:

PostPosted: Mon 05. Feb 2007 00:21
by ömmudriver
Chrome wrote:Vóvóvó Arnar minn það er bilaður skynjari já! og bíllinn minn er nú þrifin einu sinni eða 2svar yfir mánuðin en einsog þú ættir að vita fer hann á milli RVK og Keflavíkur hérumbil 2svar á dag þannig að hann er ekki hreinn lengi! mér gremst þetta komandi frá þér sérstaklega eftir að þú stútaðir heddinu á 7-uni hjá þér á því að keyra með ónýtan vatnskassa og leyfa honum að ofhitna "einu" sinni eða "tvisvar"...oki flame off... :evil:


Djöfull hlýtur að vera hart að vera harðfiskur :slap: Ástæðan fyrir því að bíllinn var að hitna(hann náði aldrei að ofhitna) var vegna þess að heddið var sprungið. Talandi um að vera ekki hæsta tréið í skóginum...........

*EDIT* Það sem amaði að vatnskassanum var að það lak aðeins af honum og aldrei nógu mikið til þess að það sæist þegar kíkt var á forðabúrið. Lak t.d. aldrei eins mikið og lekur af OZ enda er hann með ÓNÝTAN vatnskassa.

PostPosted: Mon 05. Feb 2007 00:23
by Chrome
ömmudriver wrote:
Chrome wrote:Vóvóvó Arnar minn það er bilaður skynjari já! og bíllinn minn er nú þrifin einu sinni eða 2svar yfir mánuðin en einsog þú ættir að vita fer hann á milli RVK og Keflavíkur hérumbil 2svar á dag þannig að hann er ekki hreinn lengi! mér gremst þetta komandi frá þér sérstaklega eftir að þú stútaðir heddinu á 7-uni hjá þér á því að keyra með ónýtan vatnskassa og leyfa honum að ofhitna "einu" sinni eða "tvisvar"...oki flame off... :evil:


Djöfull hlýtur að vera hart að vera harðfiskur :slap: Ástæðan fyrir því að bíllinn var að hitna(hann náði aldrei að ofhitna) var vegna þess að heddið var sprungið. Talandi um að vera ekki hæsta tréið í skóginum...........

... :roll: ég sá það nú einu sinni gerast Arnar minn :lol:rétt áður en þú stoppaðir við bílskúrinn heima hjá þér til að bæta á vatnið :wink:

PostPosted: Mon 05. Feb 2007 00:28
by Alpina
Er þetta ekki komið gott af skothríðinni