bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E30 320ik. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=19911 |
Page 1 of 2 |
Author: | Svíþjóð. [ Tue 30. Jan 2007 22:43 ] |
Post subject: | E30 320ik. |
Jæja, á einhverju verður maður að keyra, Pissat seldist og ég er hreinlega of latur til að labba neitt. Fann mér ódýrann vetrarbíl sem vonandi kemur sæmilega út. E30 320ik, demantssvartur. Var að fá hann í kvöld. Tek myndir í vikunni, en hér er annars linkur á síðu fyrrum eigandans. Clicky... Ekkert vel útlítandi svosem en gæti orðið ágætis annarbíll með tímanum. |
Author: | gunnar [ Tue 30. Jan 2007 23:51 ] |
Post subject: | |
ik ? Hvað er það ? |
Author: | Lindemann [ Tue 30. Jan 2007 23:51 ] |
Post subject: | |
til hamingju! En K ????? |
Author: | arnibjorn [ Wed 31. Jan 2007 07:50 ] |
Post subject: | |
Kúp? (coupe) ![]() ![]() Fínasti bíll ![]() |
Author: | Svíþjóð. [ Wed 31. Jan 2007 08:17 ] |
Post subject: | |
Ég hélt það stæði fyrir Kjút ![]() Nei þeir eru skráðir sem "k" hér í Svídden, sb. click... |
Author: | Svíþjóð. [ Wed 31. Jan 2007 21:11 ] |
Post subject: | |
Hah, elska gamla bíla. Endalaust mikið af hlutum sem þeir komast upp með... Ýmisskonar takkar og jafnvel hlutar úr innréttingu eru meira og minna lausir. Samt ekki nægilega mikið til að ég verði svekktur. Pústið er tildæmis ekki til fyrirmyndar, "eldra" Simons kerfi sem vantar (annan) hljóðkútinn á, alltsvo, fyrrum eigandinn setti einn lítinn kút undir og eitt rör! ![]() Gírhnúðurinn er skrambi nálægt því að pirra mig, virkilega andstyggilegt plaststykki með "á-prentuðu" carbon-fiber munstri.. Kaupi mér annann, fann engann í dag. Minna af ryði finnst í rauninni en ég bjóst við en í sjálfu sér er það ekki mikilvægur þáttur í dæminu þar sem að ég hef í hyggju að vera inni í bílnum en ekki fyrir utan hann(ef ÉG sé það ekki, er það ekki til! ![]() Ef að tími gefst á samt að ráðast á sílsana þar sem að ég lít stundum á þá á leiðinni inn. Hljóðið er þrátt fyrir "dodgy" pústkerfið alveg þrælfínt, við WOT fljúga fuglar úr trjám í kring og mér finnst það ágætt akkúrat núna... Sé til í vor hvurt það sé svaravert að splæsa í Ferrita kerfi(40000kr) Númerið á bílnum er kremið á kökuna, MGN555 eða Magneee!!!! Ultimate vetrarbíllinn ![]() |
Author: | Svíþjóð. [ Thu 01. Feb 2007 14:48 ] |
Post subject: | |
Smá dund. Pipercross sía komin í, farið í gegnum alla þræði og pöntuð kerti frá BMW hér í växjö... Svo er hann á "bakvagni" af 318i, diskabremsur og að mér skildist lægri hlutföllum?? Shortshifter af óþekktri gerð, svo á að sitja cam frá --dr schrick--, hvort sem að það er satt eða ekki.... ![]() Þarf að finna mér vetrardekk á svörtu stáli, þá er hann eins og vetrarbíll á að vera. Eða hvað? |
Author: | siggik1 [ Thu 01. Feb 2007 15:00 ] |
Post subject: | |
heimta fleirri myndir |
Author: | arnibjorn [ Thu 01. Feb 2007 15:20 ] |
Post subject: | |
Bíllinn er á fullkomnum vetrarfelgum. Alveg óþarfi að fara splæsa í stál ![]() |
Author: | Róbert-BMW [ Thu 01. Feb 2007 16:21 ] |
Post subject: | |
burt með þetta króm Shadowline og Dekkja stefnuljósin á framan ![]() |
Author: | Bjarkih [ Thu 01. Feb 2007 16:29 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: Bíllinn er á fullkomnum vetrarfelgum. Alveg óþarfi að fara splæsa í stál
![]() Hér í Svíþjóð keyra allir um á svörtu stáli á veturna, maður sér flotta og dýra bíla á svörtum stálfelgum ![]() P.s. Var í símasambandi við Gunna þegar hann steig á gjöfina inni í bílskúr hjá sér og það var sko alvöru hljóð sem kom úr pústinu ![]() |
Author: | siggik1 [ Thu 01. Feb 2007 19:48 ] |
Post subject: | |
soldið sætur, bara -króm |
Author: | Svíþjóð. [ Mon 12. Feb 2007 16:15 ] |
Post subject: | |
![]() EN hvað heitir þessi svunta? Ég er ekki nógu blóðhreinn til að þekkja svona... |
Author: | bjornvil [ Mon 12. Feb 2007 16:20 ] |
Post subject: | |
Er þetta ekki bara M-Tech I Lip? Mig minnir að það hafi verið svona á mínum gamla 320i. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |