Page 1 of 2

1986 316 (Mr.Winter)

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 18:28
by ///M
Datt í hug að setja inn myndir af vetrarbílnum mínum.

Þetta er 316 með blöndung og öllum græjum keyrður rétt yfir 200 þúsund.

Hann kom með ótrúlegum aukahlutalista frá verksmiðju eins og má sjá hér: http://www.blurtool.net/images/coupe/316.pdf :shock:

Og svo nokkrar myndir:

Image
Image
Image
Image
Image
Image

:mrgreen:

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 18:31
by Aron Andrew
Þessi er flottur í slabbið maður, og góður aukahlutalisti :lol:

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 18:36
by íbbi_
flottur.. alveg BONE stock og góður..

haha ég held að aukahlutalistinn minn sé eitthvað svipaður

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 18:46
by bjahja
Ég er búinn að sjá þennan og boddýið er virkielga heilt, flottur beater 8)

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 19:49
by Saxi
Flottur og heillegur bíll, getur ekki verið að ég keyri gjarnan framhjá þessum í Kópavoginum?

Saxi

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 21:01
by Jónki 320i ´84
Ég sá þennan bíl um daginn og hann er fáránlega heill, eins og hann hafi bara varla verið notaður :wink:
Geggjaður beater :twisted:

Re: 1986 316 (Mr.Winter)

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 21:55
by iar
///M wrote:Hann kom með ótrúlegum aukahlutalista frá verksmiðju eins og má sjá hér: http://www.blurtool.net/images/coupe/316.pdf :shock:


Fast Voll !! :naughty:

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 14:28
by sindrib
:shock: ég átti bláan 1986 módel af 316 með nrið HX325
ég ætlaði að seigja að einhver hefði farið í furu og gert hann upp og sprautað hann hvítann.
btw snilldar bílar þetta þolir allt. ég náði ekki að drepa minn eftir fimm mánuði af misþyrmingu, það endaði með að hann riðgaði í sundur hjá mér

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 14:47
by Svezel
þetta er aðal blingarinn 8)

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 22:15
by Danni
Þessi lítur ekkert smá vel út :shock:

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 23:04
by ta
ah, var ekki standard smá dekking á rúðum,
þessar eru alveg clear. og þessir fínu
drullusokkar, eru þeir ekki aukabúnaður?
súperheillegur bíll að sjá,,, einhver plön?

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 23:11
by gstuning
ta wrote:ah, var ekki standard smá dekking á rúðum,
þessar eru alveg clear. og þessir fínu
drullusokkar, eru þeir ekki aukabúnaður?
súperheillegur bíll að sjá,,, einhver plön?


Það er ekkert staðalbúnaður í E30, svona næstum ekkert,
allt er option,

PostPosted: Sat 21. Oct 2006 13:05
by JOGA
Þessi er virkilega flottur 8)

Væri svaðalega fallegur með vel völdum breytingum.

Þyrftir að prófa að skella felgunum undan Touring á þennan og smella mynd. Kannski svolítið of hár til að það looki rétt en væri gaman að sjá það.

Good luck og ekki keyra mikið í slabbinu :wink:

PostPosted: Sat 21. Oct 2006 13:25
by gunnar
Ég átti svona E30 316 seinasta vetur og guð minn góður hvað þetta drífur ekki NEITT!! Mæli með því að setja ansi mikinn þunga í skottið og góð vetrardekk.

Eini bíllinn sem ég hef átt sem hefur fest sig á jafnsléttu í varla smá snjó.

PostPosted: Sat 21. Oct 2006 18:08
by ///M
Ég á heima í kópavogi þanngi að það getur passað að þú sjáir hann einhverstaðar þar ;)

Það var aukabúnaður að fá grænt eða brons litað gler og þessum drullusokkum hefur verið bætt í eftir á, einnig hefur verið sett í hann slökkvitæki sem mér finnst mega kúl :P

gunnar ég var á 318i automagic síðasta vetur á einhverjum sóluðum norðdekk vetrardekkjum og ég komst allt sem ég vildi fyrir utan að ég festi mig einusinni á allveg sléttu bílastæði fyrir utan flugskóla íslands... mér leið frekar aulalega þá :oops: