Page 1 of 7

E60 530d, kominn til landsins

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 20:38
by ice5339
Jæja, núna ákvað ég að stökkva til og versla mér einn alveg sjúkan frá Þýskalandi.

Bíllinn er af gerðinni BMW 530d og er fæddur á árinu 2004.

Bíllinn er metallic grár og með 19” álfelgum og m-vindkljúfasetti, sjálfskiptur.

Vélin er sjálfsagt ekkert sú öflugasta en hún skilar rúmlega 218 hestöflum en skilar alveg helling af NM eða um 500.
Þetta þýðir einhverstaðar um 7, (eitthvað) sek í 100.

Bíllinn er með nánast öllu sem hægt er að henda í svona kvikindi, en svona lauslega reiknað myndi þessi aukabúnaður kosta á fimmtu milljón hér á landi (fyrir utan verðið á bílnum)

Má þar nefna leður, topplúgu, Dynamic Drive (réttir af boddíið í beygjum), active steering (breytir beygjuradíus eftir hraða osf), rafdrifin sæti, olíuhitun með fjarstýringu, Heads Up display (sýnir hraða osf á framrúðu), navigation, sportfjöðrun, Bi-Xenon, fjarlægðarskynjarar(framan og aftan), shadow line, sjálfsdekkjandi speglar, regnskynjari, ljósgeisli beygjir með bílnum, loftkæling, active cruise control (skynjar hægari bíl fyrir framan og hægir á sér, ef cruise control er virkt), bluetooth, DVD spilun, steptronic, hiti í sætum, þjófavörn, DSP hljóðkerfi, 6 diska geisladiskamagasín osf osf.

Ég verð þriðji eigandi af bílnum og vonast til að geta haft efni á að eiga hann a..m.k einhvern tíma (bara að hætta að borða og kaupa föt hehe)

Ég á örugglega ekki eftir að sofa dúr þangað til að hann kemur á klakann, en meistari Smári er búinn að vera minn maður í þesssu öllu saman og fann þennan bíl fyrir mig (eins og síðast).

Þetta er algjör gullmoli og hefur t.d. aldrei verið auglýstur til sölu og ég veit að seljandinn var alveg á báðum áttum með að selja hehe (Takk Smári).

Annnars er von á bílnum í næsta mánuði, og þá kemur greinargóð lýsing á öllu saman.

Nokkrar preview myndir.

Image

Image

Image

Image

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 20:45
by DiddiTa
8) :bow:

Hrikalega flottur, Til hamingju.

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 20:47
by Aron Andrew
Glæsilegur 8)

Nú hefur maður eitthvað nýtt til að skoða hérna í hverfinu :oops:

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 20:52
by Þórir
Vá!

Þú ert alvöru.

Kv. 0302

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 21:16
by Jss
Rosalega flottur að sjá á þessum myndum og skemmtilega útbúinn. Til hamingju með þetta. :clap:

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 21:22
by íbbi_
ertu ekki að grínast.. þetta er bara eins og M5 fyrir utan framstuðaran

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 21:23
by IceDev
VÁ!

Ég er ekki mikill E60 maður en þessi er FÆÆÆHÆÆN

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 21:25
by ValliFudd
djöfull er þessi flottur!! congrats :drool: :bow:

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 21:55
by Kull
Bara flottur, til lukku.

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 21:57
by Lindemann
Djöfull er þetta geðveikur bíll!!!
maður er líka alltaf að verða veikari og veikari fyrir dísel


íbbi_ wrote:ertu ekki að grínast.. þetta er bara eins og M5 fyrir utan framstuðaran


og pústið og ristarnar á frambrettunum :wink:

Re: Einn sá svalasti E60 530d, með ÖLLU

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 22:25
by Hemmi
:bow: ég er með fetish fyrir gráum bílum :bow: sleeefsleefsfele

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 22:31
by Arnarf
Þetta er svakalega flottur bíll

Til hamingju með þennan

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 22:57
by BrynjarÖgm
svalur á því ;)

PostPosted: Tue 22. Aug 2006 23:59
by ///MR HUNG
Djö.....Þetta er dísel græja sem ég væri heldur betur til í :bow: :drool:

PostPosted: Wed 23. Aug 2006 00:46
by HPH
Vá djöfull er þetta Geðveikur bíll hjá þér.

kv 3674.