Jæja ég er þá búinn að kaupa mér annan bimma. Þetta mun vera 318 '93 svartur (demants) 4ra dyra beinskiptur með topplúgu. Kom til landsins 2000 og ég er 3. eigandi síðan. Þetta er ágætis grey, en það þarf að laga hann smá, sem verður gert hið fyrsta. Ég fékk hann á mjög fínu verði miðað við allt, en það eru engar álfelgur á honum

Ef einhver á 16-17" álfelgur sem hann hefur áhuga á að selja þá er ég vel tilbúinn að skoða það.
Ég skal svo henda inn myndum þegar maður er búinn að fiffann og þrífann! Ég efast nú um að maður komist á honum norður, nema viðgerðarsnillingurinn sé ofur hress og hafi tíma í hann
kv. Gunni stoltur BMW eigandi, aftur
