bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bílakakan mín
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=14965
Page 1 of 1

Author:  xiberius [ Tue 11. Apr 2006 21:20 ]
Post subject:  Bílakakan mín

Ég fór að sækja dót í bílinn minn í Krók í dag og smellti af nokkrum myndum. Eins og sést er tjónið framan á bílnum og höggið var það mikið að hanskahólfið er skakkt og vinstri framhurðin er pikk-föst.

Ég vil helst ekki vera að tala mikið um tildrög slysins á svona "opinberlega" fyrr en það er allavegana kominn einhver mynd á tryggingamálin, bið menn bara að virða það. Kem síðan líklega með alla söguna þegar þar að kemur...

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Author:  Geirinn [ Tue 11. Apr 2006 21:23 ]
Post subject: 

Sæll xiberius.

Þú hittir mig og vin minn á Essó um daginn þó við höfum ekki verið á mínum bíl heldur hans... anyways.

Leiðinlegt að sjá.

Author:  Djofullinn [ Tue 11. Apr 2006 21:24 ]
Post subject: 

Shit :?
Samhryggist

Author:  Ingsie- [ Tue 11. Apr 2006 21:25 ]
Post subject: 

En leiðinlegt Jonni minn :(

Author:  bjahja [ Tue 11. Apr 2006 21:28 ]
Post subject: 

Leiðinlegt að sjá, en gott að bílinn gerði það sem hann átti að gera og verndaði farþegana.

Author:  Aron Andrew [ Wed 12. Apr 2006 01:45 ]
Post subject: 

Úff ömurlegt að sjá :(
Sérstaklega þarsem að þú varst með góð plön fyrir þennan bíl.

En sluppu samt ekki allir ómeiddir úr þessu?

Author:  xiberius [ Wed 12. Apr 2006 19:13 ]
Post subject: 

Þakka hlý orð.

Já, bíllinn stóð sig eins og hetja, og gerði ákkurat það sem hann átti að gera. Ekki einu sinni mar eftir belti eða neitt, þannig að ég myndi segja að ég sleppi alveg hreint fáránlega vel frá þessu.

Held að parið í Daewoo'num hafi sloppið við teljandi meiðsl líka, reyndar ekkert heyrt í þeim frá því að þetta gerðist...

Heyrði hinsvegar í lögreglunni um daginn, og sá sem tók skýrsluna skrifaði hana víst ekki upp nógu vel, þannig að hún var send til hans aftur, og þar sem hann er ekki á vakt aftur fyrr en á sunnudag er ekki mikið að fara að gerast fyrr en eftir páska.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/