bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=1414
Page 6 of 6

Author:  gunnar [ Wed 28. Sep 2011 12:45 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Alltaf gaman að sjá þennan bíl hjá þér, þetta er svona einn af þeim bílum sem hefur tórað afar lengi hjá sama eigandanum og maður getur ekki hugsað sér að annar aðili eignist.

Author:  rockstone [ Wed 28. Sep 2011 20:43 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

lýtur vel út hjá þér þetta eintak :)

Author:  jonthor [ Thu 19. Dec 2013 15:48 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Jæja, nú er ég búinn að eiga þennan í ríflega 10 ár. Eðal bíll sem er búinn að reynast einstaklega vel í gegnum árin, á Íslandi sem og í Frakklandi. Ég keyri hann reyndar ekki lengur dags daglega, enda 2 dyra bíll óheppilegur fyrir barnastólana. Bíllinn er í notkun hjá fjölskyldunni og í góðum höndum. Úr þessu er líklegt að ég selji hann aldrei, enda 17 ára (kominn á bílprófsaldur) og enn stráheill.

Síðasta mynd var frá 2009 svo ég ákvað að henda inn einni nýrri mynd af gripnum frá því í sumar:

Image

Author:  bErio [ Thu 19. Dec 2013 16:14 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Virkilega flottur :thup:

Er þetta eini BMWinn á heimilinu? :mrgreen:

Author:  Mazi! [ Fri 20. Dec 2013 01:07 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Hrikalega flottur

það þarf að varðveita svona gullmola vel!

Author:  Angelic0- [ Fri 20. Dec 2013 03:58 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Þessi framljós.... :bawl:

Annars mega clean... elska M-Contour á E36... vildi óska að það væru til 18" staggered Replicur....

Author:  jonthor [ Fri 03. Jan 2014 10:40 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

bErio wrote:
Virkilega flottur :thup:

Er þetta eini BMWinn á heimilinu? :mrgreen:


Nei, ekki sá eini. Ég keypti mér e60 fyrir nokkrum árum, vantaði fleiri hurðir og datt niður á mjög gott eintak.

Ætli ég hendi ekki einhverntíman inn upplýsingum um hann.

Author:  Alpina [ Fri 03. Jan 2014 15:51 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Hvað er að frétta Jón Þór...... þessi bíll er búinn að vera NOKKUÐ lengi hjá þér

Author:  jonthor [ Tue 03. Jun 2014 10:47 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Alpina wrote:
Hvað er að frétta Jón Þór...... þessi bíll er búinn að vera NOKKUÐ lengi hjá þér


Fínt að frétta og já, ég virðist hanga lengi á góðum eintökum, búinn að eiga þennan í 11 ár og 550i bílinn í 5 ár.

Author:  Svenni Litli [ Sat 02. Aug 2014 18:16 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Ekkert lítið flottur hjá þér! Alveg að elska hann hjá þér! Keep up the good work!
Þessir bílar eru af skornum skammti í dag í svona ástandi!

Author:  Emil Örn [ Tue 11. Sep 2018 17:55 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Ég hef enga trú á því að þetta berist nokkurntíma til þín, Jón, þar sem krafturinn er steindauður. En hver er staðan á þessum bíl í dag?

Author:  Kristjan [ Sat 29. Sep 2018 16:52 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Emil Örn wrote:
Ég hef enga trú á því að þetta berist nokkurntíma til þín, Jón, þar sem krafturinn er steindauður. En hver er staðan á þessum bíl í dag?


Hann hefur ekki verið á skrá síðan 2015

Author:  Kull [ Sat 06. Oct 2018 10:08 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6

Hann er enn í fínu standi :)

Page 6 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/